Telur sönginn ekki hafa haft úrslitaáhrif

Tillaga borg­ar­full­trúa Við­reisnar um að finna skuli flugi einka­þotna og þyrlu­flugi annan stað en á Reykja­vík­ur­flug­velli var sam­þykkt í borg­ar­stjórn í vik­unni. Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir telur það að hún hafi sungið í pontu ekki hafa haft mikil áhrif á nið­ur­stöð­una.

Telur sönginn ekki hafa haft úrslitaáhrif

Tillagan markast af því að við viljum tryggja sjúkra­flug áfram og áætl­un­ar­flug – og láta það hafa allan for­gang á Reykja­vík­ur­flug­velli. En einka­þotum hefur fjölgað gríð­ar­lega og þyrlu­ferðum. Það er óþarfi að hafa það inni í mið­borg Reykja­víkur. Þetta snýst um að lág­marka umferð­ina á flug­vell­inum við það sem snýr að almanna­hags­munum.“

Þetta segir Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, borg­ar­full­trúi Við­reisnar. Í vik­unni fékkst til­laga hennar, sem snýr meðal ann­ars að því að einka­þotum og þyrlu­flugi verði fund­inn annar staður en á Reykja­vík­ur­flug­velli, sam­þykkt í borg­ar­stjórn.

Almannahagsmunir yfir sérhagsmuni

„Það sem okkur gengur til er að draga fram hvað það skiptir miklu máli að tryggja almanna­hags­muni fyrir alla þjóð­ina en finna sér­hags­mun­unum þarna annan stað,“ segir Þórdís Lóa. Hún bendir á að einka- og þyrlu­flug hafi auk­ist mikið á síð­ast­liðnum árum en slíkt flug þurfi ekki að vera í mið­borg­inni þar sem fjöl­margir íbúar verði fyrir hávaða­mengun og verri loft­gæðum. 

Tillaga Þórdísar Lóu er tví­þætt. Annars vegar snýr hún að því að borg­ar­stjóri beiti sér fyrir því að einka­þotur og þyrlu­flug hverfi úr Vatns­mýr­inni. Hins vegar að því að staðið verði við sam­komu­lag frá 2013 sem und­ir­ritað var af þáver­andi borg­ar­stjóra og inn­an­rík­is­ráð­herra. En sam­komu­lagið kveður meðal ann­ars á um að einka- og kennslu­flug hverfi frá flug­vell­inum. „Þetta er ell­efu ára gam­alt sam­komu­lag sem hefur ekki verið fylgt eftir að fullu og það þarf að klára það.“

„Alveg til í að syngja oftar“

Nokkra athygli vakti þegar borg­ar­full­trú­inn tók upp á því á borg­ar­stjórn­ar­fund­inum að syngja Láttu þér líða vel með Stjórn­inni í pontu. Þórdís Lóa segir að Heiða Björg Hilm­is­dóttir borg­ar­stjóri hafi farið yfir það í ræðu um málið að ein fjöl­margra úttekta um flug­völl­inn hefði verið frá 1991. „Ég fór að hugsa. Vá, hvað það er langt síðan. Hvað var eig­in­lega vin­sælt þá? Svo ég gúglaði það. Þá kom þetta lag upp.“

Þórdís Lóa seg­ist þá einnig hafa farið að hugsa um Skúla Helgason, borg­ar­full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar, sem sé að verða sex­tugur á næst­unni. „Af því að Stjórnin var nátt­úr­lega vin­sæl þegar hann var ungur maður. Svo ég ákvað að syngja fyrir hann lag sem ég kunni ekki einu sinni.“ Hún seg­ist þó ekki hafa leitt hug­ann að því að það gæti endað á net­inu. 

Heldurðu að söng­ur­inn hafi hjálpað við að fá til­lög­una sam­þykkta?

„Ég held að þau láti ekki eitt­hvert gaul í mér hafa áhrif á sig,“ segir Þórdís Lóa. „Ég held bara að það hafi verið margir sam­mála því að við þyrftum að vera með skýra línu í þessu. En ef það er þá er ég alveg til í að syngja oftar,“ segir hún létt í bragði. 

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár