200 börn hafa verið drepin á Gaza

Að minnsta kosti 200 börn hafa verið drepin á Gaza eftir að Ísrael rauf vopna­hlé og hóf umfangs­miklar árásir. Donald Trump styður aðgerðir Ísraels og kennir Hamas um ástandið.

200 börn hafa verið drepin á Gaza
Konur og börn Tveir þriðju þeirra sem Ísrael hefur drepið í árásum á Gaza eru konur og börn, sam­kvæmt opin­berum tölum heil­brigð­is­yf­ir­valda á Gaza. Árás­irnar hófust þegar flótta­fólk víðs­vegar um Gaza var sof­andi. Mynd: afp

Að minnsta kosti 200 börn hafa verið drepin á Gaza síðan ísra­elskar her­sveitir rufu tveggja mán­aða vopna­hlé og hófu umfangs­miklar árásir á svæðið. Árás­irnar hófust aðfara­nótt þriðju­dags, þegar 100 sam­stilltar loft­árásir voru gerðar víðs vegar um Gazasvæðið.

Upp­lýs­inga- og stað­reynda­teymi Al Jazeera, SANAD, hefur auð­kennt 23 skot­mörk sem ísra­elski her­inn réðst á frá dögun fram til um klukkan 14:00 að stað­ar­tíma á þriðju­dag. Samkvæmt heil­brigð­is­ráðu­neyti Gaza hafa yfir 500 Palest­ínu­menn verið drepnir síðan árás­irnar hófust á ný, þar á meðal 200 börn, og rúm­lega 900 særst.

Banda­ríkja­for­seti, Donald Trump, hefur lýst yfir fullum stuðn­ingi við end­ur­nýj­aðar loft- og land­árásir Ísraels á Gaza, að því er Karoline Leavitt, tals­kona Hvíta húss­ins, sagði á fimmtu­dag. Hún kenndi Hamas um ofbeldið.

„Hann styður Ísrael og IDF [ísra­elska her­inn] og þær aðgerðir sem þeir hafa ráð­ist í síð­ustu daga,“ sagði Leavitt við blaða­menn þegar hún var spurð hvort Trump væri að reyna að koma …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár