Við erum sálufélagar

Hjónin Pan Thoraren­sen og Guðrún Lár­us­dóttir sitja á bekk við tjörn­ina og njóta fyrsta alvöru vor­dags­ins. Þau kynnt­ust á götum mið­borg­ar­innar fyrir 20 árum og hér finnst þeim best að vera. Þau eru sálu­fé­lagar.

Við erum sálufélagar
Sigling Hjónin Guðrún Lár­us­dóttir og Pan Thoraren­sen hafa ferð­ast saman í gegnum lífið í 20 ár. „Stundum eru öldur og stundum er lygnt. Við erum alltaf á ein­hverri sigl­ingu,“ segir Guðrún. Mynd: Heimildin/Erla María

Þetta er fyrsti vor­dag­ur­inn í dag, við finnum hit­ann frá sól­inni. Nú er þetta að ger­ast, loks­ins. Pásk­arnir eru svo seint, maður vonar að það komi ekki páska­hret, en hver veit?“ segir Guðrún Lár­us­dóttir, sem situr á bekk við Reykja­vík­ur­tjörn ásamt Pan Thoraren­sen, eig­in­manni sínum. 

Hvernig lágu leiðir ykkar saman? 

„Það var bara á götum borg­ar­innar,“ segir Pan. „Og til­vilj­anir,“ segir Guðrún. „Það ger­ist allt í mið­borg­inni,“ bætir Pan við. 

Hvað heill­aði í fari hvort ann­ars? 

„Við erum sálu­fé­lagar, var það ekki eitt­hvað svo­leiðis? Við réðum ekki við þetta. Við erum mjög lík innra með okkur, til­finn­inga­lega. Það er alltaf gaman,“ segir Guðrún og Pan tekur undir. „Við erum bæði easy going, það er ekk­ert stress.“

„Við erum hjón, búin að vera í nokkur ár og saman í næstum því 20. Við erum búin að búa í mið­bænum síð­ustu sex árin og viljum hvergi ann­ars staðar vera. Það er bara þessi þorps­fíl­ingur, maður bara hleypur á milli staða og fær allt sem maður þarf á að halda. Við erum sjálf með rekstur í mið­bænum og erum að harka, eða ekki. Bara hafa gaman. En við erum ekk­ert að græða. En okkur finnst við bera sam­fé­lags­lega ábyrgð, að það séu ekki bara túristar í mið­bænum,“ segir Guðrún. 

„Stundum eru öldur og stundum er lygnt

Pan mænir út í vor­kyrrð­ina á Tjörn­inni, þar til flug­vél kemur inn til lend­ingar. Hann er alltaf að leita að hljóðum, hann starfar í tón­list og skapar hljóð­heima. Guðrún sér meira um talið, að minnsta kosti þessa stund­ina. „Við erum búin að sjá um tón­list­ar­há­tíð í 15 ár, Extreme Chill, hún er jafn­gömul og barnið okkar. Við eigum eig­in­lega tvö börn, eða þrjú. Þetta er Nóra, sem kom upp í hend­urnar á okkur fyrir þremur árum síðan,“ segir Guðrún og bendir á hund­inn Nóru sem fylgist með fugla­líf­inu. „Hún kom í pössun, átti að vera í tvær vikur en hún er enn þá hjá okkur og mun ekki fara neitt. Hún er orðin partur af fjöl­skyld­unni.“

„Þetta er ferða­lag hjá okkur. Stundum eru öldur og stundum er lygnt. Við erum alltaf á ein­hverri sigl­ingu. Það eru aldrei nein læti samt,“ segir Guðrún. Pan á loka­orðin: „Alltaf mikið í gangi. En aldrei stress.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár