Leggur hempuna á hilluna eftir jól

Ólafur Jóhann Borg­þórs­son sókn­ar­prestur þjónar í síð­asta sinn í opinni messu á aðfanga­dag. Hann söðlar svo um strax fyrsta dag nýs árs og verður fram­kvæmda­stjóri Herjólfs, ferj­unnar á milli Vest­manna­eyja og fasta lands­ins. „Það verður engin jarð­ar­far­ar­stemn­ing,“ segir hann glaður í bragði um sína síð­ustu messu.

Leggur hempuna á hilluna eftir jól
Út til Eyja Ólafur Jóhann prestur flytur búferlum til Vest­manna­eyja, þar sem hann er fæddur, og hættir að predika yfir fólki um ára­mótin. Í stað stýrir hann örk­inni sem siglir milli lands og Eyja. Mynd: samsett

Síðasta messan verður á aðfanga­dag klukkan 18, svo verða jarð­ar­farir og skírnir á milli jóla og nýárs og svo fer hempan á hill­una,“ segir Ólafur Jóhann Borg­þórs­son prestur, sem söðlar um á fyrsta degi nýs árs, flytur búferlum til Vest­manna­eyja þar sem hann verður fram­kvæmda­stjóri Vest­manna­eyja­ferj­unnar Herjólfs. Hann segir gaman að fá að enda prests­fer­il­inn á sjálfri aðfanga­dags­mess­unni.

„Alla jafna er þetta fjöl­menn­asta guðs­þjón­usta árs­ins, sex-messan á aðfanga­dag, og margir sem koma kannski bara í kirkju í þessa messu. Það er svo­lítið gaman að fá að enda fer­il­inn á þess­ari messu. Full kirkja og allir í hátíð­ar­skapi. Það verður engin jarð­ar­far­ar­stemn­ing,“ segir hann.

Ólafur seg­ist ætla að vanda sig í þess­ari loka­messu og reyna að vera í hátíð­ar­skapi. „Þó að líka muni ég sakna þess. Ég er búinn að vera í þessu starfi í átján ár og haft gaman af því og verið með fólki á stærstu stund­unum, bæði í …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár