Þrír sótt um leyfi til hrefnuveiða

Mat­væla­ráðu­neytið hefur fengið inn á sitt borð umsóknir þriggja aðila sem vilja fá leyfi til að veiða hrefnur við Íslands­strendur. Verið að skapa þá ímynd að hval­veiðar snú­ist um fleiri en Kristján Loftsson, segir fram­kvæmda­stjóri Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands.

Þrír sótt um leyfi til hrefnuveiða
Á stökki Hrefna leikur listir sínar við Íslands­strendur. Mynd: Elding

Engar hrefnu­veiðar hafa verið stund­aðar hér við land frá árinu 2021 og það ár var aðeins ein hrefna veidd. Árin 2022 og 2023 fékk mat­væla­ráðu­neytið engar nýjar umsóknir um leyfi til hrefnu­veiða en í ár hafa þrjár umsóknir borist ráðu­neyt­inu. Umsækj­endur eru Fast­eigna­fé­lagið Ból, Tjald­tangi og Útgerð­ar­fé­lagið Vonin. Hrefnu­veiðar eru stund­aðar í flóum við landið og hafa ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sagt þær trufla upp­lifun ferða­manna.

Fram­kvæmda­stjóriÁrni Finnsson.

Hvalur hf. er sem fyrr eini aðil­inn sem sótt hefur um leyfi til veiða á lang­reyði. „Hrefnu­veiði­menn hafa löngum verið eins konar skálka­skjól fyrir Kristján Loftsson,“ segir Árni Finnsson, fram­kvæmda­stjóri Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands. Hann segir hrefnu­veiðar ekki borga sig og því veki það vissu­lega athygli að þrjú fyr­ir­tæki hafi sótt um slík veiði­leyfi. „Ég held að umsækj­endur vilji skapa þá ímynd að hval­veiðar snú­ist um fleiri en Kristján Loftsson.“

Bjarni Bene­dikts­son, sem tók við mat­væla­ráðu­neyt­inu eftir að Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna hvarf þaðan á braut hefur sagt að til greina komi að veita Hval hf. leyfi til veiða á lang­reyði líkt og félagið sótti nýverið um. Þá er Jón Gunn­ars­son búinn að ýja að hinu sama eftir að Bjarni skip­aði hann sér­stakan aðstoð­ar­mann sinn í mat­væla­ráðu­neyt­inu. Hvorugur þeirra hefur þó skýrt lýst því yfir að leyfi til veiða á hvölum verði veitt fyrir kosn­ingar.

Katrín Odds­dóttir, lög­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands, segir að það yrði algjört stór­slys fyrir íslenska stjórn­sýslu ef hval­veiði­leyfi yrðu gefin út fyrir kosn­ingar.

LögmaðurKatrín Odds­dóttir.

„Það sem er kannski alvar­leg­ast við það að Jón Gunn­ars­son, sem ein­hver sér­legur ráðu­nautur Bjarna Bene­dikts­sonar inni í mat­væla­ráðu­neyt­inu, ætli að hafa afskipti af umsóknum um hval­veiði­leyfi, er ekki bara það að við erum með stjórn­ar­skrár­varða venju í land­inu um að starfs­stjórnir eigi bara að halda í horfi og ekki gera neitt sem ekki telst nauð­syn­legt, rétt eins og for­seti árétt­aði í sínu ávarpi þegar hún sam­þykkti þing­rofið,“ segir Katrín við Heim­ild­ina, „heldur erum við líka að horfa fram á það að þarna er maður sem er mögu­lega van­hæfur gagn­vart Krist­jáni Lofts­syni vegna mik­illa tengsla, ráð­inn inn í fram­kvæmda­valdið til að taka skyndi­á­kvörðun um leyf­is­veit­ingu á tíma­punkti þegar það liggur ekk­ert á að veita slíkt leyfi enda er ver­tíðin langt undan.“ 

Hún segir það aldrei hafa gerst áður í sögu leyf­is­veit­inga til hval­veiða að leyfi séu veitt á þessum árs­tíma. „Við þetta bæt­ist að þegar Kristján sér að vinur hans er  kom­inn í ráðu­neytið þá sækir hann í fyrsta sinn um ótíma­bundið leyfi til hval­veiða. Sem er í raun og veru til að und­ir­strika það hvað hann telur sig eiga inni góðan greiða hjá þessum herra­mönnum.“ 

Katrín seg­ist vita fyrir víst að ef leyfin gangi í gegn núna yrði látið reyna á „allar hliðar þessa máls fyrir dóm­stólum“.

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár