England—Holland í sögulegu ljósi: Þegar Hollendingar lögðu undir sig England

England og Holland mæt­ast í dag í und­an­úr­slitum Evr­ópu­móts­ins í fót­bolta karla. Fullvíst má telja að örlaga­ríkur atburður í sögu ríkj­anna tveggja árið 1688 verði fyr­ir­lið­unum Harry Kane og Virgil Van Dijk mjög ofar­lega í huga.

England—Holland í sögulegu ljósi: Þegar Hollendingar lögðu undir sig England
Það var eng­inn smá­ræðis inn­rás­ar­floti sem Hol­lend­ingar sendu að Eng­lands­ströndum 1688. Þeim mun furðu­legra er að Eng­lend­ingar skuli hafa kom­ist upp með að láta eins og þetta hafi alls ekki gerst og ein­göngu hafi verið um að ræða upp­reisn enska aðals­ins gegn ómögu­legum kóngi.

Þið hafið sjálf­sagt heyrt ein­hvern tíma í sjón­varps­þáttum eða lesið í sögu­bókum að allt frá því 1066, þegar Vil­hjálmur her­togi í Normandý sigldi með her sinn yfir Ermar­sund og sigr­aði enska her­inn við Hastings, þá hafi eng­inn inn­rás­ar­her náð fót­festu á Englandi, hinu ósigr­andi vígi í haf­inu.

Þetta er rétt — og þó ekki.

Rúmum sex öldum eftir að Vil­hjálmur her­togi vann orr­ustu sína við Hastings og tók sér svo kon­ungs­nafn á Englandi, þá kom nefni­lega annar öfl­ugur her­floti að ströndum Englands, annar erlendur fursti steig á land og gerði kröfu til kon­ungs­tignar og svo öfl­ugur var her hans að allt lið enska kóngs­ins hrökk undan í fáti og það leið ekki langur tími þangað til útlenski inn­rás­ar­fur­st­inn hafði verið krýndur kon­ungur yfir Englandi.

Af til­viljun hét hann sama skírn­ar­nafni og her­tog­inn frá Normandý og er hann því í enskum sögu­bókum kall­aður William 3. 

En í raun­inni hét hann Willem Hendrik van Oranje og ef ykkur finnst nafnið hljóma svo­lítið hol­lenskt, þá er ein­föld skýr­ing á því.

Willem Hendrik van Orjanje var hol­lenskur.

Í fylkingarbrjósti innrásarhers

Hol­lenskur fursti — hann kall­að­ist raunar prins — hafði komið í fylk­ing­ar­brjósti inn­rás­ar­hers og hrakið enska kóng­inn úr hásæt­inu og sest þar sjálfur með kerlu sinni.

Innrás! Valdarán! Hernám! — hljótum við að kalla þetta.

En hvers vegna er því þá ein­dregið haldið fram í sögu­bókum að síðan 1066 hafi eng­inn inn­rás­ar­her lagt undir sig England?

Það er vegna þess að málið er örlítið flókn­ara en frá­sögn mín hér að ofan gefur til kynna. 

Og í til­efni af fót­bolta­leik Englands og Hollands í und­an­úr­slitum EM, sem fram mun fara í kvöld, þá er kjörið tæki­færi til að rifja upp þá dramat­ísk­ustu atburði í sögu ríkj­anna tveggja sem áttu sér í nóv­em­ber 1688.

Þegar Hol­lend­ingar lögðu undir sig England, þó allir hafi síðan sam­mælst um að þagga það niður.

Forysta Hollendinga

Baksvið atburða var svona, í örstuttu máli:

Um miðja sautj­ándu öld háðu Eng­lend­ingar og Hol­lend­ingar gríð­ar­lega keppni um sigl­ingar og sigl­inga­leiðir og verslun og við­skipti á úthöf­unum. Nokkrum sinnum á öld­inni kom til stríðs­á­taka en þau fóru aðal­lega fram á höf­unum og oft­ast veitti Hol­lend­ingum betur.

Þeir voru færri en Eng­lend­ingar en lengst af útsjón­ar­sam­ari, nask­ari og vef­vís­ari á tæki­færi, gróða­vegi og góð skip.

Hol­lend­ingar voru þá sjálf­stæðir og yfir þeim réði svo­kall­aður „stadtholder“ eða rík­is­stjóri. Und­an­farna öld hafði emb­ætti rík­is­stjóra í raun verið arf­gengt í fjöl­skyldu prinsanna af Óraníu eða Oranje. 

Óranía er ekki í Hollandi

Það er ein af brellum sög­unnar að Óranía er í raun­inni alls ekki í Hollandi heldur er um að sveit eina og svo­lít­inn bæ allra syðst í Frakk­landi, nán­ast við Mið­jarð­ar­hafs­strönd­ina.

Ástæðan fyrir því að prins­inn í Hollandi kenndi sig við Óraníu — og hol­lenska lands­liðið í fót­bolta kennir sig líka við Oranje — er ein­fald­lega sú að árið 1544 erfði þáver­andi rík­is­stjóri Hol­lend­inga tit­il­inn „prins af Óraníu“ sem ætt­ingi hans hafði áður skartað.

Willem de Zwijger var þessi Hol­lend­ingur kall­aður, eða „hinn þögli“, og hann var alls ekki kom­inn af neinum fyrri prinsum af Óraníu, en kunni vel við nafn­bót­ina og not­aði hana síðan.

Og 1672 tók við emb­ætti rík­is­stjóra Hol­lend­inga nýr prins af Óraníu, Willem Hendrik son­ar­son­ar­sonur Willems hins þögla. Það er til marks um hver stöndugir Hol­lend­ingar voru að móðir Willems Henriks var kon­ungs­dóttir frá Englandi.

Keppinautar á hafinu

Karl 1. Eng­lands­kon­ungur hafði gefið hana til eig­in­orðs þáver­andi prinsi af Óraníu þrátt fyrir eða kannski einmitt vegna þess hvað Hol­lend­ingar voru miklir keppi­nautar Eng­lend­inga á haf­inu um þær mundir.

Willem Hendrik var þannig syst­ur­sonur Jakobs 2. Eng­lands­kon­ungs sem tekið hafði við völdum 1685.

En ekki nóg með það, heldur hafði Willem Hendrik nokkrum árum fyrr gengið að eiga dóttur Jakobs, náfrænku sína, Maríu að nafni.

Þau voru systk­ina­börn, Willem Hendrik og María.

Willem Hendrik hafði sóst eftir hjú­skap við frænku sína bein­línis til þess að eiga meiri mögu­leika á hag­stæðum samn­ingum við Eng­lend­inga og alt­ént til að reka fleyg milli Eng­lend­inga og Frakka sem höfðu verið í skugga­legu banda­lagi gegn Hol­lend­ingum.

Vil­hjálmur 3. (Willem Hendrik) og María 2. eru eina fólkið sem deilt hefur hásæt­inu á Englandi, bæði voru full­gildir þjóð­höfð­ingjar.Þeim mun furðu­legra er að engin mynd hefur fund­ist af þeim saman.

Englandskóngur á undir högg að sækja

En stuttu eftir að Jakob móð­ur­bróðir og tengda­faðir Willems Hendriks komst til valda á Englandi, þá fékk hol­lenski Óran­íu­prins­inn allt í einu óvænt tæki­færi upp í hend­urnar.

Jakob 2. reynd­ist vera mjög óvin­sæll í landi sínu, sér í lagi meðal nokk­urra valda­mestu og valda­rík­ustu aðals­mann­anna. Fyrir því voru ýmsar ástæður en sú helst að hann var kaþ­ólskur en aðals­menn­irnir ekki.

Brátt kom á dag­inn að illska milli Jakobs kon­ungs og aðals­mann­anna var orðin slík að eitt­hvað hlyti undan að láta.

Aðals­menn­irnir hófu að und­ir­búa upp­reisn gegn kon­ungi sínum.

En hvað áttu þeir að gera eftir að kóngi væri steypt af stóli? Hver átti þá að taka við?

Dóttir gegn föður

Jú, þá stað­næmd­ust þeir við Maríu, þá eldri af tveimur dætrum Jakobs kóngs. Hún var ekki kaþ­ólsk og því vel ásætt­an­leg. Það sak­aði heldur ekk­ert að hún var nú gift Willem Hendrik rík­is­stjóra Hollands sem líka var af bresku kon­ungs­ætt­inni, þótt í móð­ur­ætt væri.

Þegar ámálgað var við Maríu hvort hún væri til í að setj­ast í hásætið á Englandi ef faðir hennar væri rek­inn úr því, þá reynd­ist hún alveg til í það.

Senni­lega hafði henni alltaf leiðst pabbi sinn hvort eð var.

Og Willem Hendrik var líka alveg til í að fylgja konu sinni út í þetta ævin­týri. Hann gerði samt aðal­s­mönn­unum ensku ful­ljóst að ef hann tæki þátt í að reka Jakob tengda­föður sinn frá völdum og setja Maríu í hásætið í stað­inn, þá ætl­aði hann ekki að sætta sig við valda­laust hlut­verk við­hengi­mennis konu sinnar.

Innrásarfloti úti fyrir ströndum

Hann krafð­ist þess að þau hjón myndu þá ríkja sam­eig­in­lega sem jafn­ingjar í hásæt­inu.

Og þá krafð­ist hann þess líka að aðals­menn­irnir birtu opin­ber­lega bréf þar sem þeir bæru sig aum­lega undan harð­stjórn Jakobs 2. og grát­bæðu hina góðu dóttur hans og hennar prúða eig­in­mann, prins­inn af Óraníu og rík­is­stjóra Hollands, að koma ensku þjóð­inni til bjargar.

Ensku aðals­menn­irnir voru svo­lítið tregir til að sam­þykkja þetta en létu sig hafa það að lokum.  

Og þann 5. nóv­em­ber 1688 gerð­ust óvæntir atburðir úti fyrir strönd smá­bæj­ar­ins Brixham á suð­vest­ur­strönd Englands.

Þangað var mættur hol­lenskur floti sem taldi 463 skip af öllum stærðum og gerðum.

Þetta var mun stærri floti — já, lík­lega helm­ingi stærri — en „flot­inn ósigr­andi“ sem Spán­verjar höfðu sent gegn Eng­lend­ingum einni öld fyrr.

Hervaldið skipti sköpum

Vel þjálfaðir sjóliðar hófust þegar handa um að ferja dáta í land og gekk það allt átaka­laust fyrir sig. Í dags­lok var nærri 30.000 manna her til­bú­inn til að mar­sera af stað hina rúm­lega 200 kíló­metra leið til London. Þar átti að setja af Jakob kóng og for­ingi inn­rás­ar­hers­ins ætl­aði að setj­ast sjálfur í hásætið.

Willem Hendrik van Oranjen var þarna mættur.

Síðasti mað­ur­inn sem hefur lagt undir sig England með her­valdi.

Því þótt hann stæði vissu­lega í makki við enska aðals­menn, þá var það her­valdið sem skipti sköpum. Þegar frétt­ist um allt England á svip­stundu hve öfl­ugur her væri þarna mættur — þrisvar ef ekki fjórum sinnum fjöl­menn­ari en her her­tog­ans af Normandý árið 1066 — þá tók þegar að gufa upp sá stuðn­ingur meðal aðals og her­for­ingja sem Jakob hafði enn talið sig geta gengið að vísum.

Og eftir því sem her­inn nálg­að­ist London, þeim mun meira gufaði upp.

Churchill segir skilið við kónginn

Loks frétt­ist að eig­in­legi eini her­for­ing­inn sem eitt­hvað kvað enn að í liði kon­ungs, John Churchill, hann væri stokk­inn frá borði líka og hefði lýst yfir stuðn­ingi við Maríu kóngs­dóttur og Willem Hendrik.

Það mun­aði um hann, hann er senni­lega flinkasti her­for­ingi Eng­lend­inga fyrr og síðar og öðl­að­ist síðar frægð sem her­tog­inn af Marlborough, auk þess sem John Churchill er líka for­faðir — já, þess Churchills.

Rétt fyrir jólin 1688 spurði svo Jakob kóngur að hinn mikli her dóttur hans og tengda­sonar væri kom­inn nálega alla leið­ina til London.

Og hann átti öngvan vin.

Þá lúpað­ist Jakob kon­ungur úr landi og snemma árs 1689 voru María og Willem Hendrik krýnd til kon­ungs yfir Englandi, Skotlandi, Veils og Írlandi.

Saman í hásætinu

Í breskri sögu eru þessir atburðir nefndir „dýrð­lega bylt­ingin“. Ástæðan er sú að þarna urðu vissu­lega ansi mikil umskipti í bresku stjórn­ar­fari. María og Willem Hendrik — eða Vil­hjálmur kon­ungur 3., eins og hann kall­að­ist nú — féllust á að form­gera heil­mikil völd þings aðals­manna.

Frá og með „dýrð­legu bylt­ing­unni“ má segja að þing­ræði hafi farið að þró­ast á Bret­landseyjum.

Og það hljóm­aði miklu betur að leggja áherslu á nýjar og spenn­andi hug­myndir í sögu­bókum, draga upp mynd af sam­taka inn­lendum aðli að tryggja þjóð­inni — eða alt­ént hluta hennar — völd og rétt­indi, heldur en að horfast í augu við að þarna hafði í raun­inni verið gerð inn­rás og Hol­lend­ingar höfðu hernumið England.

Og þau María og Vil­hjálmur 3. eru einu kon­ungs­hjónin sem telj­ast hafa setið sem jafn­gild á hásæti Englands eða Bret­lands. Aðrir eig­in­menn drottn­inga sem þar hafa setið síðan — Önnu, Viktoríu og Elísa­betar 2. — hafa ekki fengið kon­ungs­titil að bera.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Eini "gallinn" við skýringar þessar er væntanlega að hugtakið "þjóð" hafði ekki enn mótast í þá tíð í okkar nútímalega skilningi. Hollendingar voru enn borgarar sinna héraða fremur en einnar heildar (líklega ekki ósvipað og við teljum okkur vera Evrópufólk en tilgreinum okkur samt fyrst og fremst vera íslendingar); nafnið "Hin 17 héruð" fyrir Niðurlöndin sýnir það glöggt.
    Annars staðar, t.a.m. líka í Englandi, var fólk þegn landeigandans, sem sagt aðalsins; hollustan almúgans tilheyrði ekki konginum í London heldur þeim lávarði sem átti landsvæðið sem fólkið bjó í.
    Að þessu leyti er staðhæfingin að "Hollendingar" hafi gert innrás í Englandi kolröng. Það var persónan Willem sem notaði til þess það herafl sem hann réð yfir. Og ef vel er gáð má vera að í þeim herafla hafi verið einstaklingar frá allri Evrópu eins og tíðkaðist í þá daga.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár