80 ár frá Bagration, mestu sókn Rauða hersins

Í júní var þess minnst að 80 ár voru frá inn­rásinni í Normandí. Hún skipti miklu máli við að sigra Hitler og nóta hans en seinna í mán­uð­inum hóf Rauði her­inn svo aðra inn­rás sem varð ekki síður afdrifa­rík.

80 ár frá Bagration, mestu sókn Rauða hersins
Þann 17. júlí 1944 átti sér stað ótrú­leg og mögnuð upp­á­koma á Rauða torg­inu í Moskvu. Þýski her­inn hafði á sínum tíma ekki farið dult með þá fyr­ir­ætlun sína að halda mikla her­göngu á torg­inu þegar hann hefði sigrað Rússa end­an­lega. Nú smöl­uðu Rússar saman 57.000 þýskum stríðs­föngum sem þeir höfðu náð eftir sigra í Bagration-árásinni, sem enn var í fullum gangi, og létu þá mar­sera í „göngu hinna sigr­uðu“ yfir torgið. Mynd: rarehistoricalphotos.com

Íjúní var þess minnst víða um heim að 80 ár voru frá inn­rás hinna vest­rænu banda­manna í síð­ari heims­styrj­öld­inni frá Bret­lands­ströndum yfir til Frakk­lands. Áætlun Overlord, eins og inn­rásin var kölluð, var á sinn hátt mjög mik­il­vægur áfangi í stríði banda­manna gegn Þýska­landi Hitlers og ber síst að van­meta það.

Sextán dögum eftir inn­rás­ina í Normandí hófu Banda­menn hins vegar aðra sókn sem varð ekki síður örlaga­rík á þeim loka­spretti heims­styrj­ald­ar­innar sem þá var að hefj­ast. Þar var hinn Rauði her Sov­ét­ríkj­anna að verki og áætl­unin var nefnd Bagration eftir hers­höfð­ingj­anum Piotr Bagration sem atti mjög kappi við Napóleon Frakka­keis­ara og átti það sam­eig­in­legt með Jósef Stalín, ein­ræð­is­herra Sov­ét­ríkj­anna, að vera upp­haf­lega frá Georgíu.

Hér segir af Bagration.

Hluti Úkraínu frelsaður

Í ágúst 1943 höfðu Þjóð­verjar gert síð­ustu eig­in­legu til­raun sína til stór­sóknar gegn Rauða hernum þegar þeir hófu árás á borg­ina Kursk í miðju Rúss­landi. Árásin mistókst algjör­lega og í stað­inn hóf Rauði her­inn sókn sem stóð nær sleitu­laust til stríðsloka.

Sov­ét­menn lögðu í fyrstu mesta áherslu á að ná Úkraínu sem Þjóð­verjar höfðu hernumið 1941. Þrátt fyrir mjög harða and­stöðu Þjóð­verja náði Rauði her­inn Kyiv í nóv­em­ber '43 og á útmán­uðum 1944 hafði stór hluti Úkraínu verið frels­aður og síðan Krím­skagi þegar komið var fram í apríl.

Í norðri hafði öðrum sov­éskum her tek­ist að létta umsátr­inu grimma um Lenín­grad í jan­úar '44 en sóknin stöðv­að­ist svo áður en sá her næði alla leið að Eystra­salts­lönd­unum. Í Belarús héldu Þjóð­verjar hins vegar enn velli.

Bannað að hugleiða ósigur

Fyrstu vikur sum­ars 1944 varð sjald­gæft hlé á stórað­gerðum en allir vissu að það var ein­ungis lognið á undan storm­inum. Allt frum­kvæði á víg­stöðv­unum var nú komið svo tryggi­lega í hendur Sov­ét­manna að ekki einu sinni Adolf Hitler lét sig dreyma um að Þjóð­verjar gætu hafið sókn þetta sum­arið.

Þeir yrðu bara að bíða eftir því hvar Rauða hernum þókn­að­ist næst að sækja fram og reyna að standa atlög­una af sér. Rétt eins og þeir biðu líka eftir því hvar vænt­an­legir inn­rásarprammar banda­manna í vestri myndu lenda.

Enda þótt Þjóð­verjum, jafn­vel hæst settu hers­höfð­ingj­unum, væri í raun bannað að svo mikið sem hug­leiða mögu­legan ósigur var öllu raun­sæju fólki ljóst að leið Þjóð­verja til sig­urs var nú úti­lokuð eða svo gott sem.

Draumórar Hitlers

Eini hugs­an­legi mögu­leiki þeirra – og sá var ekki stór – væri sá að vera leift­ur­snöggir að sigr­ast á inn­rásinni í vestri, þegar hún kæmi, svo þeir gætu síðan sent mest­allt sitt lið úr vestri nægj­an­lega snemma til að mæta fyr­ir­sjá­an­legri árás Rauða hers­ins.

Ef tæk­ist að stöðva þá árás og jafn­vel sækja eitt­hvað til baka mætti þá gera sér vonir um nýja stór­sókn austur á bóg­inn sum­arið 1945 þegar þau „undra­vopn“ sem Hitler batt æ meiri vonir við yrðu komin í gagnið, og kannski farið að trosna veru­lega úr banda­lagi Stalíns ann­ars vegar og Vest­ur­veld­anna hins vegar. 

En Rauði her­inn ætl­aði ekki, frekar en hug­mynda­smiðir Overlords, að leyfa draum­órum Hitlers og nóta hans að ræt­ast.

Möguleikar Rauða hersins

Þegar sov­éska her­ráðið (stavka) tók að íhuga á útmán­uðum hvert ætti að beina sum­ar­sókn­inni stóðu menn frammi fyrir fjórum kostum.

Norð­ur­leið­inni til Eystra­salts­land­anna.

Mið­leið­inni inn í Belarús.

Vest­ur­leið­inni inn í vest­ur­hluta Úkraínu.

Og suð­vest­ur­leið­inni inn í Rúmeníu til að her­taka olíu­lindir lands­ins.

Þjóð­verjar voru nokkuð vissir um að vest­ur­leiðin yrði fyrir val­inu. Ef Rauði her­inn næði góðum árangri þar gæti hann átt greiða leið inn í Pólland og jafn­vel farið að líta Þýska­land sjálft hýru auga.

Stalín var for­maður her­ráðs­ins og eftir á þakk­aði hann sjálfum sér allar réttar ákvarð­anir her­ráðs­ins og sú þjóð­saga varð til að snilld Stalíns hefði ráðið öllum úrslitum í stríð­inu svo þakka mætti honum sig­ur­inn á Þjóð­verjum. Í reynd var það fjarri lagi. Stalín var ekki mik­ill her­stjóri og meðan hann fékk að ráða í byrjun stríðs­ins gerðu Sov­ét­menn trölls­leg mis­tök á víg­vell­inum sem kost­uðu millj­ónir manns­lífa.

Það sem Stalín hafði fram yfir Hitler

Stalín hafði það hins vegar fram yfir Hitler, sem taldi sig allt til loka óskeik­ulan her­stjóra, að hann fékkst til að læra af mis­tökum sínum og eft­ir­lét sér flinkari hers­höfð­ingjum smátt og smátt æ meiri stjórn herj­anna á víg­vell­inum – þótt eftir sem áður fylgd­ist hann yfir­leitt grannt með, sem for­maður stövku, og stærri ákvarð­anir þyrfti ævin­lega að bera undir hann til sam­þykkis.

Nú voru helstu mar­skálkar og hers­höfð­ingjar Rauða hers­ins settir í að ákveða hvar skyldi ráð­ast til atlögu. Þeir komust fljót­lega að þeirri nið­ur­stöðu að fara skyldi mið­leið­ina inn í Belarús en ekki vest­ur­leið­ina. Ástæð­urnar voru ýmsar en meðal ann­ars sú að þeir þótt­ust vita að varnir Þjóð­verja væru mun veik­ari í Belarús en Úkraínu.

Tilgangur Bagration

Til­gang­ur­inn með áætl­un­inni, sem nú hafði fengið nafn Bagrations, var í sjálfu sér að frelsa Belarús undan Þjóð­verjum og koma Rauða hernum í ákjós­an­lega stöðu til að sækja í allar áttir í næsta áfanga.

En síð­ast en ekki síst var til­gangur Rauða hers­ins að eyði­leggja sem mest af þýska hernum til að svipta Þjóð­verja góðum hluta af varn­ar­mætti sínum í fram­hald­inu.

Nú er oft sagt – og með miklum rétti – að helsta hern­að­ar­að­ferð Rússa í bar­dögum sé að dæla bara sífellt meiri liðsafla inn á víg­völl­inn og hirða lítið eða ekk­ert um hve margir falli. Rússar treysti því að þeir eigi alltaf mun meira lið en and­stæð­ing­ur­inn. Þeir hafi því efni á að missa ógrynni liðs en and­stæð­ing­ur­inn ekki.

Þannig vinni þeir alltaf að lokum.

Blekkingar og kænska

Mörg óskemmti­leg dæmi eru um þessa aðferð Rauða hers­ins í síð­ari heims­styrj­öld, einkum framan af, en áætlun Bagration var hins vegar skipu­lögð með öðrum hætti. Hún þykir eitt besta dæmið um þá „djúpu orr­ustu“ sem fram­sýnir her­for­ingjar Rauða hers­ins höfðu lagt drög að ára­tug­inn fyrir heims­styrj­öld­ina og fólst í árang­urs­ríkri sam­vinnu fjöl­mennra herja á sviði mark­miða, aðgerða og her­bragða.

Og Rauði her­inn beitti líka blekk­ingum og kænsku­brögðum alls konar í meira mæli en oft áður – og með betri árangri – til að sann­færa Þjóð­verja end­an­lega um að árásin yrði gerð eftir vest­ur­leið­inni.

Það voru þeir Kon­stanín Rokossov­sky og Georgí Zhukov sem báru hit­ann og þung­ann af skipu­lagn­ingu Bagration. Þeir vissu að inn­rásar banda­manna var von í vestri en vissu ekki hvenær hún hæf­ist. Þegar Overlord hófst svo þann 6. júní var þeim ekk­ert að van­bún­aði.

Bagration hefst

Þann 22. júní voru Banda­ríkja­menn og félagar búnir að koma sér fyrir á strönd Frakk­lands og ljóst að þeir yrðu ekki hraktir út í sjó aftur.

Og þann dag – þegar rétt þrjú ár voru hafin frá Bar­barossa-inn­rás Hitlers í Sov­ét­ríkin – hófst Bagration.

Er þarna var komið sögu höfðu Sov­ét­menn algjöra yfir­burði bæði í mann­afla og her­bún­aði öllum. Í flest­öllum stór­orr­ustum voru þeir tvisvar til þrisvar sinnum lið­fleiri en Þjóð­verjar. Í orr­ustum sem stóðu þá tvo mán­uði sem Bagration var í gangi gátu Þjóð­verjar teflt fram 800 skrið­drekum en Sov­ét­menn 3.800. Luftwaffe gat sent á loft 1.200 flug­vélar eða þar um bil en flug­her Sov­ét­ríkj­anna 8.000.

Og mann­afl­inn sjálfur? Þjóð­verjar tefldu fram milljón manns. Það virð­ist ógur­legur fjöldi en í þeim Rauða her sem sótti nú í vestur var hálf þriðja milljón.

„Þjóð­verjar tefldu fram milljón manns. Það virð­ist ógur­legur fjöldi en Rauði her­inn sótti nú í vestur með hálfri þriðju milljón.“

Varnir Þjóðverja hrynja

Óhætt er að segja að varnir Þjóð­verja hrundu. Á tveimur mán­uðum rudd­ust Rokossov­sky og herir hans yfir allt Belarús og hálft Pólland og stað­næmd­ust loks við Varsjá um miðjan ágúst. Hvað þar gerð­ist er önnur saga sem síðar verður frá sagt.

En hvar­vetna voru varnir Þjóð­verja í upp­námi. Öll Úkraína hafði verið frelsuð. Rauði her­inn var kom­inn inn í Eystra­salts­löndin úr austri. Innrás í Rúmeníu yfir­vof­andi. Ung­verska sléttan blasti við herjum sem komnir voru upp í Karpata­fjöll.

Allt frá byrjun hafði mantra Hitlers við her­stjórn verið sú að Þýska­land mætti aldrei heyja stríð á tveimur víg­stöðvum í einu líkt og í fyrri heims­styrj­öld. En nú var það orðið að veru­leika.

Overlord og Bagration sáu til þess.

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár