Framtíð hvalveiða ræðst á þriðjudaginn

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra ætlar að birta nið­ur­stöðu sína um það hvort hún veiti hval­veiði­leyfi eður ei næst­kom­andi þriðju­dag. Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, gagn­rýndi Bjarkeyju á þingi í dag fyrir það sem hann telur seina­gang. „Hvað tefur orm­inn langa?“ spurði Bergþór.

Framtíð hvalveiða ræðst á þriðjudaginn
Bjarkey Olsen Er mat­væla­ráð­herra og tekur ákvörðun um hval­veiði­leyfi. Mynd: Matvælaráðuneytið

Hval­veiði­fyr­ir­tækið Hvalur hf. sótti um end­ur­nýjað hval­veiði­leyfi í lok jan­úar síð­ast­liðnum og nú, fjórum mán­uðum síðar, hefur nið­ur­staða ekki feng­ist í það mál. Veiði­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins rann út á síð­asta ári. 

Bergþór Ólason gerði þetta að umtals­efni sínu í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í morgun. Hann vakti athygli á því að mik­ill fjöldi aðila fengu umsagn­ar­beiðnir frá ráðu­neyt­inu þrátt fyrir að vera ekki lög­bundnir umsagn­ar­að­ilar og sagði Bjarkey að ástæðan fyrir því væri sú að það væru ekki bara veið­arnar sem væru undir í mál­inu. 

„Þess vegna taldi ég ástæðu til þess að fá álit ann­arra aðila heldur en bara þeim sem lögum sam­kvæmt ber að sækja álit til þannig að þeim gef­ist þess kostur,“ sagði Bjarkey. „Ég fór ekki af stað í þetta fyrr en ég var búin að safna gögnum til að und­ir­byggja að þetta væri sú veg­ferð sem ég vildi fara á.“

Margt og mikið undir

Bjarkey sagði að ýmis­legt hafi breyst síðan Kristján Þór Júl­í­us­son gaf síð­ast út hval­veiði­leyfi árið 2019. 

„Það er margt undir og mikið undir,“ sagði Bjarkey. 

BergþórSpurði ráð­herr­ann hvort hún ætl­aði sér ekki að fara að ráð­legg­ingum Hafró.

Bergþór benti á að óbreytt ráð­gjöf liggi fyrir frá Haf­rann­sókn­ar­stofnun í mál­inu en ráð­gjöfin gildir til árs­ins 2025 og mið­ast við veiðar á 160 lang­reyðum að hámarki árlega. 

„Ætlar núver­andi mat­væla­ráð­herra í ein­hverju að hverfa frá þeirri meg­in­stefnu sem við­höfð hefur verið um langa hríð að fara að ráð­gjöf Hafró hvað varðar nytja­stofna landið um kring máls?“ spurði Bergþór en Bjarkey gaf ekk­ert uppi um það hver ákvörðun hennar í mál­inu verður. Hún sagði að hún væri byrjuð að lesa umsagnir um málið og að Hvalur hefði rétt til þess að koma með athuga­semdir og nýta sinn and­mæla­rétt.

„Fyr­ir­tækj­unum var til­kynnt það í þessu bréfi til and­mæla að ég hygg­ist birta nið­ur­stöðu mína á þessu máli á þriðju­dag­inn,“ sagði Bjarkey.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Ein helsta ástæða þess að þetta dýraníð hefur viðgengst við
    strendur Ísland er sú að Hvalur hf er einn helsti fjárhagslegi
    stuðningsaðili Sjálfstæðisflokksins
    1
  • ÞTÞ
    Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
    Að sjálfsögðu á að banna þessar "hobbí" hvalveiðar .
    2
    • Margrét Sólveig Ólafsdóttir skrifaði
      Sammála, þetta skilar engum arði, alltaf tap í mörg ár. Að lokum fer þetta í hundamat og Hvalur hf græðir á tapinu, sem fer í að lækka skatta. Viðbjóðslegar veiðar.😭
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár