Þriðja lengsta gosi frá aldamótum lokið

Eld­gos­inu við Sund­hnjúka, því sem staðið hefur yfir síð­ustu 54 daga, er lokið að sögn sér­fræð­inga Veð­ur­stof­unnar. Annað mun að öllum lík­indum hefj­ast fljót­lega.

Þriðja lengsta gosi frá aldamótum lokið
Búið Nýir gígar, nokkuð mynda­legir, hafa orðið til í eld­gos­inu við Sund­hnjúk. Því gosi er nú lokið. Myndin er tekin úr dróna­flugi almanna­varna. Mynd: Almannavarnir

Eldgosi sem hófst við Sund­hnjúk norðan Grinda­víkur þann 16. mars er lokið að sögn Veð­ur­stofu Íslands. Það stóð í 54 daga og er því þriðja lang­lífasta eld­gos á þess­ari öld, að því er fram kemur á Facebook-síðu Eld­fjalla- og nátt­úru­vá­r­hóps Suð­ur­lands. Aðeins gosin í Geld­inga­dölum árið 2021 og Holu­hrauni árin 2014-15 stóðu lengur.

„Því verður að telj­ast lík­legt að kvika hlaupi aftur úr kviku­hólf­inu undir Svarts­engi yfir í Sund­hnúks­gíga­röð­ina áður en langt um líður“

Sér­fræð­ingar eru margir sam­mála um að stutt sé í að aftur dragi til tíð­inda á Reykja­nesskag­anum hvað eldsum­brot snertir. Ástæðan er sú að kviku­söfnun undir Svarts­engi heldur áfram og land­ris er áfram stöðugt. Þá hefur spennan á skag­anum öllum vaxið tölu­vert, að því er Eld­fjalla- og nátt­úru­vá­r­hóp­ur­inn bendir á, sem hafi birst í formi skjálfta­hrina. 

Um 13 milljón rúmmetrar af kviku hafa safn­ast fyrir í kviku­hólf­inu undir Svarts­engi og er það meira en í aðdrag­anda eld­gos­ana þriggja sem orðið hafa á þessum slóðum eftir ára­mót.

Lík­leg­asta sviðs­myndin, að mati margra vís­inda­manna, er að kvikan hlaupi af stað og í Sund­hnúka­röð­ina á nýjan leik, frekar en að koma upp á nýjum stað. Í til­kynn­ingu á vef Veð­ur­stof­unnar er þetta orðað svona: „Því verður að telj­ast lík­legt að kvika hlaupi aftur úr kviku­hólf­inu undir Svarts­engi yfir í Sund­hnúks­gíga­röð­ina áður en langt um líður.“

Sér­fræð­ingar Almanna­varna flugu dróna yfir gos­s­töðv­arnar við Sundhnúk í gær­kvöldi og þá var enga virkni að sjá í gígnum. Gosórói hafði farið minnk­andi í gær og engar hraun­slettur sáust úr gígnum í nótt. Þetta þykir Veð­ur­stof­unni til marks um að þessu til­tekna gosi sé nú lokið.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.
Ríkið kaupir íbúðarhúsnæði Grindvíkinga á 61 milljarð króna
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Ríkið kaupir íbúð­ar­hús­næði Grind­vík­inga á 61 millj­arð króna

Rík­is­stjórnin hefur komið sér saman um frum­varp sem kveður á um að rík­is­sjóður muni bjóð­ast til þess að kaupa íbúð­ar­hús­næði Grind­vík­inga og taka yfir íbúð­ar­lán sem á þeim hvíla. Tilkynnt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins að frum­varpið hafi verið sam­þykkt á rík­is­stjórnar fundi í dag og birt í sam­ráðs­gátt. Kostn­aður aðgerð­ar­innar er met­inn á 61 millj­arð króna. Sérstakt félag verður stofnað til að ann­ast fram­kvæmd­ina.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár