Ríkið kaupir íbúðarhúsnæði Grindvíkinga á 61 milljarð króna

Rík­is­stjórnin hefur komið sér saman um frum­varp sem kveður á um að rík­is­sjóður muni bjóð­ast til þess að kaupa íbúð­ar­hús­næði Grind­vík­inga og taka yfir íbúð­ar­lán sem á þeim hvíla. Tilkynnt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins að frum­varpið hafi verið sam­þykkt á rík­is­stjórnar fundi í dag og birt í sam­ráðs­gátt. Kostn­aður aðgerð­ar­innar er met­inn á 61 millj­arð króna. Sérstakt félag verður stofnað til að ann­ast fram­kvæmd­ina.

Ríkið kaupir íbúðarhúsnæði Grindvíkinga á 61 milljarð króna
Rík­is­stjórnin sam­þykkti í dag frum­varp sem kveður á um að rík­is­sjóður muni bjóð­ast kaupa íbúða­hús­næði Grind­vík­inga og taka yfir áhvílandi lán Mynd: Golli

Rík­is­sjóður mun bjóð­ast til þess að kaupa íbúð­ar­hús­næði í eigu ein­stak­linga í Grinda­vík. Í laga­frum­varpi sem sam­þykkt var á rík­is­stjórn­ar­fundi fyrr í dag er gert ráð fyrir að kostn­að­ur­inn við upp­kaup á íbúð­ar­hús­næði Grind­vík­inga muni kosta rík­is­sjóð um 61 millj­arð króna. Þá segir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins að stefnt sé að því að festa frum­varpið í lög á Alþingi í næstu viku.

Gert er ráð fyrir því að fast­eign­irnar verði keyptar á verði sem nemur 95 pró­sent af bruna­bóta­mati að frá­dregnum veð­skuldum. Sem er í takt við bóta­greiðslur sem Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingar Íslands greiða þegar hús er metin ónýt af völdum ham­fara.

Frum­varpið var unnið í sam­starfi við alla þing­flokka og kynnt fyrir bæj­ar­stjórn Grinda­víkur. Aðgerðin er stór liður í lang­tíma aðgerð­á­ætlun stjórn­valda sem miða að því að eyða þeirri óvissu sem Grind­vík­ingar hafa búið við frá því í nóv­em­ber í fyrra, þegar rýma þurfti bæinn vegna jarð­hrær­inga.

Í gær greindi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið frá því að tek­ist hafi að semja við tólf líf­eyr­is­sjóði um að rík­is­sjóður muni taka að sér að greiða vexti og verð­bætur sem leggj­ast á líf­eyr­is­sjóðs­lán Grind­vík­inga fram til maí mán­aðar.

Fasteignafélagið Þórkatla stofnað

Í til­kynn­ingu stjórn­ar­ráðs­ins kemur fram að til stendur að stofna og fjár­magna félag sem mun hafa umsjón með kaupum á umræddum fast­eignum og rekstri þeirra fyrir hönd rík­is­sjóðs. Mun nýja fyr­ir­tækið heita Fast­eigna­fé­lagið Þórkatla.

Þá segir í til­kynn­ing­unni að gert sé ráð fyrir að „félagið eigi til­kall til mögu­legra bóta úr Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands (NTÍ) og beri mögu­legan kostnað við nið­ur­rif komi til þess."

Lagt er til að fyr­ir­tækið verði fjár­magnað með tvenns konar hætti. Annars vegar með fjár­magni frá lán­veit­endum og hins vegar með greiðslum úr rík­is­sjóð.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Það er eins gott að lánin verði ekki yfirtekin á nafnvirði, heldur samkvæmt raunhæfu verðmati, þar sem veðin á bak við þau eru ónýt eða stórskemmd. Annars væri um um að ræða ívilnun til lánveitenda sem eiga engan rétt á að fá óinnheimtanleg lán greidd að fullu. Þetta væri hægt að útfæra með því að færa skuldbindingarnar í félag án ríkisábyrgðar og setja það svo í slitameðferð (gjaldþrotaskipti) líkt og hefur verið fyrirhugað að gera við ÍL-sjóð.

    Samskonar lausn hefði gjarnan mátt bjóða upp á eftir bankahrunið 2008. Nema þá voru íbúðirnar og húsin ekki ónýt og hefði því verið hægt að bjóða þeim sem bjuggu í þeim að leigja húsnæðið á meðan þau voru að koma aftur undir sig fótunum, í stað þess að missa heimilin sín.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár