„Forsætisráðherrann Katrín er náttúrulega bara manneskjan Katrín“

Katrín Jak­obs­dóttir for­seta­fram­bjóð­andi og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra var meðal við­mæl­enda í Pressu í dag. Hún var spurð hvort hefði tekið nógu vel á ummælum þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra um tjald­búð­irnar svoköll­uðu á Aust­ur­velli fyrr á árinu. „Ég ætla bara að tala fyrir mín ummæli en ekki ummæli ann­arra,“ svar­aði Katrín, líkt og áður.

„Forseti hefur þetta tæki­færi til að horfa á stóru mynd­ina og beita áhrifum sínum. For­set­inn er ekki að leggja fram frum­vörp eða gera og græja eða taka ákvarð­anir eða ákveða fjár­veit­ingar. En for­set­inn hefur það tæki­færi að tala fyrir ákveðnum gildum, bæði hér heima og að heiman. Gildum sem ég hef áhyggjur af.“ Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir í Pressu í dag þegar Helgi Seljan spurði hana hvers vegna hún þyrfti að fara á Bessa­staði til að setja ýmis mál­efni á odd­inn haf­andi verið for­sæt­is­ráð­herra. 

Katrín fór ekki að telja upp þau atriði sem hún hefur gert sem for­sæt­is­ráð­herra. „Það er auð­vitað svo að stjórn­mál eru bara allt annar hlutur en for­seta­emb­ættið,“ sagði Katrín. 

For­seta­emb­ættið„Það er auð­vitað svo að stjórn­mál eru bara allt annar hlutur en for­seta­emb­ættið.“

Tjaldbúðirnar á Austurvelli

Helgi spurði Katrínu út í ummæli Bjarna Bene­dikts­sonar, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, um tjald­búð­irnar svoköll­uðu á Aust­ur­velli fyrr á árinu. „Tókstu nægi­lega fast á því?“ spurði Helgi. 

„Ég ætla bara að tala fyrir mín ummæli en ekki ummæli ann­arra,“ svar­aði Katrín sem er sama svar og hún hefur áður gefið við fjöl­miðla spurð um þetta mál­efni. Hélt hún sig við það svar þegar Helgi þrýsti á hana að svara.

Um útlend­inga­mál sagði Katrín að henni hafi alltaf þótt mála­flokk­ur­inn kalla á það að vandað sé til verka.  „Það er ann­ars vegar krafa um það að við séum með lög og reglu­verk sem sé skýrt og gegn­sætt og hins vegar að við tökum til­lit til hvers og eins ein­stak­lings. Þetta er mála­flokkur sem er vand­með­far­inn.“

„For­sæt­is­ráð­herr­ann Katrín er nátt­úru­lega bara mann­eskjan Katrín og for­set­inn er vænt­an­lega bara mann­eskja,“ sagði Katrín. Spurð hvort hún hefði brugð­ist öðru­vísi við ummælum Bjarna sem for­seti svar­aði hún ekki. 

Hér má horfa á Pressu í heild sinni þar sem for­seta­fram­bjóð­end­urnir fjórir mætt­ust. Fyrri helm­ingur þátt­ar­ins er aðgengi­legur öllum en þátt­ur­inn í heild sinni er aðgengi­legur áskrif­endum.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár