Ætlar að nýta tímann sem forsætisráðherra til að afla trausts á ríkisstjórninni

Bjarni Bene­dikts­son, frá­far­andi utan­rík­is­ráð­herra, vill auka traust á rík­is­stjórn­inni. „Ég held að fólk þurfi að finna að það býr í sam­fé­lagi sem styður það í að elta drauma sína,“ segir hann í því sam­hengi. Bjarni telur van­traust­s­til­lögu á hendur Svandísi Svav­ars­dóttur nú úr sög­unni.

Ætlar að nýta tímann sem forsætisráðherra til að afla trausts á ríkisstjórninni
Bjarni Bene­dikts­son verð­andi for­sæt­is­ráð­herra var glað­beittur á blaða­manna­fundi fyrr í dag. Mynd: Golli

Bjarni Bene­dikts­son, verð­andi for­sæt­is­ráð­herra, seg­ist ætla að nýta tíma sinn í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra til að afla trausts á rík­is­stjórn­inni. Hann nefnir að skoð­ana­mæl­ingar breyt­ist frá einum tíma til ann­ars, spurður hvort honum þyki hann hafa nægi­legan stuðn­ing hjá þjóð­inni til að taka við þessu æðsta emb­ætti stjórn­kerf­is­ins. En Bjarni mæld­ist sá ráð­herra sem flestir, eða þrír af hverjum fjórum, van­treystu sam­kvæmt könnun Maskínu í des­em­ber. 

„Þessar mæl­ingar sem þú vísar til núna voru í kjöl­far þess að ég var kannski mitt í tals­verðum átaka­málum,“ segir Bjarni í sam­tali við Heim­ild­ina á blaða­manna­fundi í dag. Hann seg­ist von­ast til að menn dæmi hann á verkum hans í nýju emb­ætti.

„Skoð­ana­kann­anir í gegnum tíð­ina hafa verið svo fjöl­breyttar og mis­mun­andi að þær eru ekki það sem að mér er efst í huga á þessum tíma­mótum.“ Honum þyki allt önnur staða uppi heldur …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár