Drekamaðurinn rís úr djúpinu

Ein­hverjar merki­leg­ustu lík­ams­leifar í sögu mann­kyns­ins voru faldar í brunni ára­tugum saman. Ástæða þess fólst í ógur­legum svipt­ingum mann­kyns­sög­unnar.

Drekamaðurinn rís úr djúpinu
Höf­uð­kúpan fræga

Í sept­em­ber árið 1931 rudd­ust jap­anskar her­sveitir inn yfir landa­mæri Kína frá Kóreu, sem Japanir höfðu þá ráðið í rúm 20 ár. Þótt Kína væri mörgum sinnum fjöl­menn­ara en Japan hafði ríkt slík upp­lausn í land­inu í ára­tugi að Kín­verjar komu engum vörnum við. Á nokkrum mán­uðum lögðu Japanir undir sig allt hið risa­stóra hérað Man­sjúríu og komu þar upp lepp­ríki sem var nærri tíu sinnum stærra en Ísland; köll­uðu það Man­sjúkúó.

Stærsta borgin í lepp­rík­inu nefnd­ist Harbin og stóð við Songhúa-fljót norð­ar­lega á svæð­inu. Borgin átti sér merki­lega sögu þótt ekki væri hún gömul því hún hafði til skamms tíma verið mið­punktur í lífi Rússa aust­ast í Síberíu og síðan tísku­borg mikil, kölluð París Norð­austur-Asíu þegar best lét. Nú á dögum þekkjum við borg­ina helst af því að öðru hvoru birt­ast frétta­myndir af mik­illi hátíð ís-skúlp­t­úra sem þar er haldin. Það er nefni­lega afar kalt í borg­inni yfir vet­ur­inn; Ísborgin er eitt af auknefnum Harbin.

Hin viðurstyggilega Deild 731

Nema hvað, Japanir höfðu sem sagt kastað eign sinni á borg­ina og öns­uðu ekki Þjóða­banda­lag­inu sem krafð­ist þess að þeir yrðu á brott. Þvert á móti sýndu þeir öll merki þess að ætla sér að ráða Harbin og Man­sjúkúó til langrar fram­tíðar og hófu þar marg­vís­legar fram­kvæmdir.

Meðal ann­ars reistu Japanir voldug húsa­kynni fyrir rann­sókn­ar­stöð sem sögð var mundu helguð sjúk­dóma­vörnum og hreinsun á meng­uðu vatni en var í raun og veru hin við­ur­styggi­lega Deild 731 sem gerði til­raunir með efna- og sýkla­vopn á lif­andi fólki. Þá sögu ætla ég þó ekki að segja núna, heldur bein­ist athyglin að brú einni sem þeir tóku til við að reisa yfir Songhúa-fljót. Þetta var brú fyrir járn­braut sem átti að tengja saman Harbin og Bei'an, eina af hér­aðs­höf­uð­borgum Japana norðar í Man­sjúkúó. Þessi brú var nefnd Dongji­ang og er enn til; þið getið skoðað mynd af henni á Wikipedíu ef þið viljið.

En nú er frá því að segja að þessi grein fjallar í raun­inni ekki um járn­braut­ar­brúna Dongji­ang, heldur um svo­lítið sem gerð­ist meðan smíði hennar stóð yfir árið 1933.

Grimmir nýlenduherrar

Þá kemur til sög­unnar kín­verski karl­mað­ur­inn Wang. Ég veit raunar ekki hvað hann hét í raun og veru. Það leynd­ar­mál er á fárra vit­orði. Hann gæti hins vegar vel hafa heitið Wang því Wang er algeng­asta eft­ir­nafnið í Kína. Nema hvað, Wang þessi var nokkuð stönd­ugur karl, hann var ein­hvers konar verk­taki og hafði þó nokkra menn í vinnu.

Og Wang hafði ráðið sig og sinn vinnu­flokk til þeirra japönsku herra sem stýrðu brú­ar­smíð­inni yfir Songhúa.

Kín­verjar og/eða Man­sjúr­íu­menn voru að vísu lang­flestir lítt hrifnir af yfir­ráðum Japana. Japanir voru nefni­lega mjög grimmir nýlendu­herrar á fyrri hluta 20. aldar; raunar í hópi þeirra verstu sem sagan kann frá að greina. En menn eins og Wang þurftu að hafa í sig og á og þess vegna var hann mættur með vinnu­flokk sinn að taka þátt í að reisa Dongji­ang-brúna.

Brúnaþung höfuðkúpa

Svo var það einn góðan veð­ur­dag að vinnu­flokkur Wangs var að grafa fyrir und­ir­stöðum brú­ar­innar á öðrum bakka Songhúa-fljóts. Og hvað ger­ist þá, nema að upp kemur haus­kúpa af manni?

Vinnu­menn Wangs köll­uðu sam­stundis á hús­bónda sinn sem skoð­aði vand­lega haus­kúp­una. Þetta var raunar aðeins efri hluti kúp­unnar, kjálk­ann vant­aði. Og kúpan bar þess merki að hafa legið lengi í jörð þarna á árbakk­anum, að minnsta kosti var ekki á henni nokkur húð­tægja né hár­brúskur. Á hinn bóg­inn fór ekki hjá því að Wang og vinnu­flokkur hans undr­uð­ust hve gríð­ar­miklar brúnir virt­ust á haus­kúp­unni.

Sá hefur verið svip­mik­ill að sjá, sögðu þeir hver við annan.

Þá rann skyndi­lega upp ljós fyrir Wang.

Árið 1921 hafði fund­ist nokkuð heil­leg beina­grind og þar á meðal höf­uð­kúpa af manni í helli einum 60 kíló­metra frá Bejing, hinni gam­al­grónu höf­uð­borg Kína, en rúma 1.000 kíló­metra frá Harbin. Eftir að vís­inda­menn höfðu velt vöngum um stund varð nið­ur­staða þeirra sú að þarna væri komin ævaforn frum­stæð mann­teg­und og væri nokkur hund­ruð þús­und ára gömul, takk fyrir!

„Vinnu­menn Wangs köll­uðu sam­stundis á hús­bónda sinn sem skoð­aði vand­lega haus­kúp­una“

Ævaforn bein

Fundur þessi vakti gríð­ar­mikla athygli. Jafnvel við­var­andi róstur svo stapp­aði nærri borg­ara­stríði í land­inu höfðu ekki megnað að kveða niður áhug­ann. Þetta var ein heil­leg­asta beina­grind frummanns sem þá hafði fund­ist í jörðu. Fyrir Kínverja var sér­lega mik­ils virði að geta sýnt fram á að þar um slóðir hefðu merki­legir áfangar í þróun mann­kyns­ins átt sér stað, ekki síður en í Evrópu og Afríku.

Wang hafði á sínum tíma fylgst vel með fréttum af þessum merka fundi og nú rifj­að­ist upp fyrir honum að lýs­ingar á höf­uð­kúpu Peking-manns­ins (eins og lík­ams­leif­arnar voru kall­aðar) höfðu einmitt talað um afar miklar brúnir, líkt og ein­kenndu höf­uð­kúp­una sem vinnu­flokkur hans hafði fundið. Hann ályktaði því – og það rétti­lega – að þarna væri komin önnur æva­gömul beina­grind af ein­hvers konar frummanni.

Og að þessi fundur væri lík­lega ekki minni tíð­indi en fundur Peking-manns­ins.

Beint upp úr ævintýrum

En hvað átti Wang nú að gera? Ef hann léti vita af fundi haus­kúp­unnar myndu japönsku her­náms­yf­ir­völdin í Harbin ein­fald­lega hirða hana. Hann sjálfur fengi ekki notið fund­ar­ins í neinu, allra síst pen­inga­lega, og jap­anskir vís­inda­menn myndu baða sig í frægð­ar­ljósi höf­uð­kúp­unnar en ekki kín­verskir.

Wang tók því haus­kúp­una, vafði hana í klæði og pakk­aði henni vand­lega inn og faldi hana svo djúpt í nálægum brunni. Það fylgir sög­unni að í kín­verskum þjóð­sögum og ævin­týrum úi og grúi af sögum um fjár­sjóði sem grafnir eru í brunnum og því fannst Wang þetta við hæfi.

Svo tók hann eið af vinnu­mönnum sínum að segja ekki eitt ein­asta orð og þeir héldu svo allir áfram að reisa brúna og hún stendur sem sé enn keik.

Rauði herinn, svo Maó

Wang mun ekki hafa haft alveg á hreinu hvað hann ætl­aði sér með haus­kúp­una í brunn­inum. Kannski ætl­aði hann að fiska hana upp úr brunn­inum ein­hvern tíma þegar farið væri að hægj­ast um og koma henni þá burt frá Man­sjúkúó. Kannski von­aði hann að Japanir yrðu á brott fyrr en síðar.

Það fór alla vega ekki svo. Japanir urðu þaul­sætnir í Man­sjúríu og 1937 hófu þeir inn­rás í hið eig­in­lega Kína. Það stríð geis­aði svo allt til 1945 þegar Banda­ríkja­menn og banda­menn þeirra höfðu kné­sett Japan eftir harða hríð.

Þann 20. ágúst lagði sov­éski Rauði her­inn Harbin undir sig og neit­aði síðan að afhenda hana her­sveitum Kína­stjórnar en þær voru gjarnan kall­aðar „þjóð­ern­is­sinnar“ á þeim árum. Hins vegar fengu upp­reisn­ar­sveitir komm­ún­ista borg­ina í hendur árið eftir og mun Harbin hafa verið fyrsta stóra borgin í Kína sem sveitir Maó Zedongs réðu.

Árið 1949 höfðu komm­ún­istar svo náð öllu land­inu og Maó stofn­aði alþýðu­lýð­veldi svo­kallað.

Eftir að Japanir og síðan Sov­ét­menn voru á brott mun Wang hafa hug­leitt hvort hann ætti nú að skjót­ast í brunn­inn og ná í höf­uð­kúp­una sem þar leynd­ist í djúp­inu. Þegar til kom þorði hann það ekki.

Fangabúðavist?

Ástæðan var ein­föld. Þeir menn sem höfðu unnið fyrir japönsku her­náms­yf­ir­völdin í Man­sjúkúó voru ekki bein­línis vin­sælir í hinu nýja Kína Maós. Wang bjóst fast­lega við að þó hann reyndi að vísa til þess að honum og vinnu­flokki hans hafi verið nauð­ugur einn kostur að þiggja vinnu hjá Japönum, þá kæmu slíkar afsak­anir að litlu gagni – hann mætti fast­lega búast við fanga­búða­vist í stað þess að vera fagnað fyrir að hafa bjargað stór­merkum forn­leifa­fundi undan japönskum krumlum.

Svo Wang, sem nú var orð­inn land­bún­að­ar­verka­maður, gerði ein­fald­lega ... ekki neitt.

Haus­kúpan var áfram á sínum stað og það í ára­tugi.

Mikið gekk á í sögu Kína. Stóra stökkið fram á við. Menn­ing­ar­bylt­ing Maós. Menn­ing­ar­bylt­ing Deng Xiapings. Vofu kap­ít­al­ism­ans var sleppt lausri. Fjöldamorð framin á Torgi hins himneska friðar. Kap­ít­al­ism­inn fór helj­ar­stökk fram á við. Kúgun var þó enn söm við sig. Einræði Xia.

Og Wang dó.

Af hverju beið Wang?

Hvenær Wang dó er ekki vitað. Það er heldur ekki vitað af hverju börn hans létu ekki sækja kúp­una eftir að Deng umbreytti Kína. Eftir það höfðu þau lítið að ótt­ast þótt Wang faðir þeirra hefði hjálpað Japönum að reisa brú fyrir hálfri öld. Þvert á móti. Það var partur af hinum nýja kap­ít­al­isma að forn­gripir og stein­gerv­ingar gengu kaupum og sölum við háu verði. Og Wang hefði orðið hetja frekar en skúrkur fyrir að hafa falið svo merkan fund fyrir hinum illu Japönum.

En börnin gerðu ekk­ert, þótt Wang hafi sagt þeim frá kúp­unni í brunn­inum.

Það var ekki fyrr en 2018, fyrir bara sex árum, að barna­börn Wangs fóru í brunn­inn og fisk­uðu upp kúp­una. Og svei mér þá, það sem upp kom reynd­ist einn merkasti forn­leifa­fundur í Kína­veldi fyrr og síðar.

Sjálfur Dreka­mað­ur­inn.

Frá honum segir eftir viku.

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár