Leiðinlegt að glata draumnum fyrir smá áfengi

Stærstu mis­tökin sem Guðjón Þór Valsson hefur gert er að hætta í fót­bolta og byrja að drekka áfengi.

Leiðinlegt að glata draumnum fyrir smá áfengi
Guðjón Þór Valsson, starfar á Hlölla­bátum.

Bakkus hafði slæm áhrif á mig á sínum tíma þegar ég var í fót­bolt­anum. Ég var að brill­era í fót­bolt­anum átján ára gam­all og var kom­inn í KR, ung­linga­liðið. Svo kynnt­ist ég vina­hópi og byrj­aði að drekka í fyrsta skipti og hætti í fót­bolta. Það voru stærstu mis­tök lífs míns. Ég byrj­aði að drekka og hitta ein­hverjar stelpur og fór í rangan félags­skap.

Ég hafði verið kom­inn í úrtöku­hóp fyrir ung­linga­lands­liðið, við fórum á úrtöku­mót á Laug­ar­vatni. Þar var ég einn úr Aft­ur­eld­ingu og þekkti engan. Og var mjög feim­inn. Það gekk ekki sem skyldi að koma sér á fram­færi. Það var ekk­ert haldið utan um þetta þarna þá, eins og í dag. Bara sendur! Og eng­inn að spá í það. Einn í her­bergi með gaur sem ég þekkti ekk­ert.

„Bara ef ég gæti spólað til baka, þá væri það þennan dag, þarna“

En ég var sem sagt nýbyrj­aður að æfa í KR þegar ég byrj­aði að drekka, kynnt­ist Bakkusi. Ég hef hugsað þetta mörgum sinnum um ævina. Bara ef ég gæti spólað til baka, þá væri það þennan dag, þarna.

Það var svo gaman að drekka, ég var ekk­ert að hugsa um afleið­ing­arnar. Bara svo gaman að allt annað gleymd­ist. Svo þegar maður fór að hugsa: Úff, ég er búinn að gera allt of mikið af þessu! – þá var það of seint.

Svo byrj­aði ég aftur í fót­bolta 24 ára en var ekki eins góður og ég var en fer í utandeild­ina. Frá 24 til 37 ára vann ég utandeild­ina sjö sinnum. Einu sinni bik­ar­meist­ari. Og var marka­kóngur flest árin. Er með sönnun heima, alla bik­ar­ana. Leið­in­legt að glata draumnum fyrir smá áfengi.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár