Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.

Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
Grunaður ISIS með­limur Var hand­tek­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð föstu­dag­inn 12. jan­úar á Akureyri og sendur úr landi sam­dægur ásamt fjöl­skyldu sinni Mynd: Eyþór Árnason

Íslenskt lagaum­hverfi kom í veg fyrir að hægt var að not­ast við allar upp­lýs­ingar sem lög­reglu barst frá erlendum sam­starfs­stofn­unum í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð þar sem maður var hand­tek­inn og fluttur til Grikk­lands ásamt fjöl­skyldu sinni. Maðurinn var grun­aður um að vera með­limur í hryðju­verka­sam­tök­unum Íslamska rík­is­ins, ISIS.

Þetta kemur fram í svörum sam­skipta­stjóra emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra, Helenu Rós Sturlu­dóttir, við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um lög­reglu­að­gerð­ina sem fram­kvæmd var 12. jan­úar síð­ast­lið­inn á Akureyri. Í henni voru þrír menn hand­teknir og hús­leit fram­kvæmd í tveimur íbúðum, þar sem lagt var hald á far­síma og pen­inga.

Í til­kynn­ingu Rík­is­lög­reglu­stjóra var sagt frá því að tveimur karl­mann­anna hafi verið fljót­lega sleppt en sá þriðji verið sendur úr landi sam­dæg­urs ásamt eig­in­konu sinni og sex börnum sem eru á aldr­inum sex mán­aða til 16 ára. 

Lögregla lítið getað tjáð sig um málið

Lög­reglan hefur tjáð sig lítið um málið í kjöl­farið og borið fyrir sig að málið sé enn á við­kvæmu stigi. Í svörum við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar seg­ist tals­maður rík­is­lög­reglu­stjóra ekki geta upp­lýst um það hvort menn­irnir hafi verið staðnir að glæp eða hvort rök­studdur grunur hafi verið fyrir því að þeir haft í hyggju að fremja glæp. 

Í skrif­legu svari lög­reglu kemur þó fram að hættu­stig vegna hryðju­verka hafi hald­ist óbreytt frá því sem það hefur verið und­an­farna mán­uði. 

Mönnunum sem var sleppt ekki grunaðir um aðild í ISIS

Lög­reglan getur lítið tjáð sig um hina menn­ina tvo en getur „þó stað­fest að þeir eru ekki taldir með­limir í ISIS,“ segir Helena Rós Sturlu­dóttir sam­skipta­stjóri Rík­is­lög­reglu­stjóra. 

Í upp­haf­legri til­kynn­ingu lög­reglu sagt frá því að rann­sóknin hafi staðið yfir síðan nóv­em­ber í fyrra. Rann­sóknin hafi verið gerð sam­starfi við erlend lög­reglu­yf­ir­völd eftir að upp­lýs­ingar bár­ust um að fjöl­skyldu­fað­ir­inn, sem sendur var úr landi, hafi verið með­limur í ISIS. Í frétt RÚV stað­festi lög­regla að mað­ur­inn var tal­inn vera virkur með­limur í hryðju­verka­sam­tök­unum. 

Spurð hvað bíði manns­ins og fjöl­skyld­unnar í Grikk­landi svarar Helena Rós að grísk yfir­völd taki „ákvarð­anir um fólk sem þau hafa veitt alþjóð­lega vernd.“ 

Núgildandi lagaumhverfi hefti rannsókn lögreglu

Lögregla getur lítið sagt um rann­sókn­ina, menn­ina sem voru hand­teknir og afdrif fjöl­skyld­unnar sem var send til Grikk­lands. Í svörum lög­reglu er hins vegar er vakin sér­stök athygli á því hvernig núgild­andi lagaum­hverfi hafi komið í veg fyrir að lög­regla hafi getað not­ast við allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar. 

„Hluti þeirra upp­lýs­inga sem var miðlað til íslenskrar lög­reglu reynd­ist ekki unnt að nota hér­lendis við rann­sókn­ar­að­gerðir vegna núgild­andi lagaum­hverfis,“ segir Helena Rós Sturlu­dóttir.

Spurð með hvaða hætti núgild­andi lagaum­hverfi hafi haft áhrif á rann­sókn lög­reglu segir Helena Rós að sam­kvæmt lögum beri „lög­reglu skylda til að afhenda upp­lýs­ingar ef óskað er eftir rann­sóknar­úr­skurðum til verj­enda Sak­born­ingar fá að auki upp­lýs­ingar um þau máls­gögn sem lög­regla hefur.“ 

„Í sumum til­vikum geta miklir hags­munir verið undir, jafn­vel líf og limir upp­lýs­inga­gjafans“
Helena Rós Sturlu­dóttir, sam­skipta­stjóri Rikis­lög­reglu­stjóra
segir að lög­reglu hér á landi sé skylt að afhenda sak­born­ing öll máls­gögn

Þessi lög geta reynst lög­reglu fjötur um fót að sögn Helenu sem bendir á að þegar „lög­regla fær upp­lýs­ingar sem henni er ekki heim­ilt að miðla, til að mynda vegna þess að þær gætu upp­lýst um hver eða hverjir veittu lög­reglu upp­lýs­ingar þá getur hún ekki nýtt þær upp­lýs­ingar til rann­sóknar.“ 

Forvirkar rannsóknarheimildir 

Þá bendir Helena á að erlendis sé þessu öðru­vísi háttað og lög­reglu heim­ildir hafa meira laga­legt svig­rúm til að bregð­ast við slíkum upp­lýs­ingum án þess að vera skylt að afhenda gögn.„Íslenskri lög­reglu skortir heim­ildir til jafns við hin Norð­ur­löndin hvað þetta varðar,“ segir Helena. 

Frumvarp um breyt­ingar á lög­reglu­lögum var lagt fyrir þingið haustið 2023 af dóms­mála­ráð­herra, Guðrúnu Haf­steins­dóttur. Fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, Jón Gunn­ars­son, reyndi að koma sam­bæri­legu frum­varpi í gegnum þingið vorið 2023 án árang­urs. Frumvarp Guðrúnar fór í sam­ráðs­gátt stjórn­valda en frestur til að skila inn umsögn rann út 13. nóv­em­ber 2023.

Samkvæmt tals­manni dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er frum­varpið til­búið til þess að leggja fyrir rík­is­stjórn, en það á eftir að setja það á mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar fyrir vor­þingið. 

Umdeilt lagafrumvarp

Í frum­varp­inu er meðal ann­ars lagt til að skýra og styrkja eft­ir­lits­heim­ildir lög­reglu í þágu afbrota­varna. Í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varpi dóms­mála­ráð­herra segir að „breytt afbrota­mynstur, aukin hætta á hryðju­verkum og útbreiðsla alþjóð­legrar skipu­lagðrar brota­starf­semi krefst þess að lög­gæslu­yf­ir­völd geti brugð­ist við og gripið til aðgerða áður en ein­stök brot eru framin.“

Þá kemur einnig fram í grein­ar­gerð­inni að lög­reglan hér á landi hafi ekki nægi­lega miklar eða skýrar laga­heim­ildir til þess að sinna slíkum aðgerðum. Þá segir einnig að Ísland skeri sig úr í sam­an­burði við önnur Norð­ur­lönd. Stofnana­geta og laga­heim­ildir lög­reglu á sviði afbrota­varna séu tals­vert tak­mark­aðir hér sam­an­borið við nágranna­ríki. 

Þegar frum­varp Jóns leit fyrst dags­ins ljós vakti það mikla athygli og umræðu. Margir stigu fram og gagn­rýndu ýmis atriði í frum­varp­inu. Til að mynda að ekki sé gert ráð fyrir því að bæta eft­ir­lit með því hvernig lög­reglan beiti auknum rann­sókn­ar­heim­ildum.  

Þingmenn Pírata hafa verið sér­lega gagn­rýnir á frum­varpið. Til að mynda hefur Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir bent á athuga­semdir rík­is­sak­sókn­ara við fram­göngu lög­reglu. Í við­tali á RÚV sagði Þór­hildur að bæti þyrfti eft­ir­lit með störfum lög­reglu áður en hún fær auknar heim­ildir til að afla upp­lýs­inga og stunda eft­ir­lit. 

Þar er til að mynda bent á að lög­reglan hafi í nokkrum til­fellum farið á svig við núgild­andi lög um upp­lýs­inga­öflun lög­reglu. Rík­is­sak­sókn­ari hafi bent lög­reglu á þessi brot og sent henni fyr­ir­mæli um að bæta en það hafi hún hins vegar ekki gert.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár