Enn vanti sjálfstætt eftirlit með lögreglu

Þingmenn Pírata leggja til að stofnuð verði sér­stök eft­ir­lits­stofnun á vegum Alþingis sem hafi eft­ir­lit með störfum lög­reglu. Sak­sókn­ara­emb­ættin séu of tengd lög­reglu til að geta rann­sakað vinnu­brögð hennar með trú­verð­ugum hætti.

Enn vanti sjálfstætt eftirlit með lögreglu
Mælir fyrir til­lög­unni Helgi Hrafn Gunn­ars­son er fyrsti flutn­ings­maður máls­ins. Mynd: Pressphotos.biz - (RosaBraga)

Raun­veru­lega sjálf­stætt eft­ir­lit með störfum lög­reglu skortir enn á Íslandi, enda hefur eft­ir­lits­nefndin sem sett var á fót með lögum árið 2016 hvorki heim­ildir né fjár­magn til rann­sókna og beit­ingu við­ur­laga. Þetta er mat þing­manna Pírata sem hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að stofnuð verði sér­stök eft­ir­lits­stofnun á vegum Alþingis sem hafi eft­ir­lit með lög­regl­unni. Þannig megi tryggja sjálf­stæði rann­sak­enda frá hand­höfum alls­herj­ar­valds. 

Að mati þing­mann­anna stenst eft­ir­lit með lög­reglu á Íslandi illa þær kröfur sem leiða af Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, enda hafi Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu lagt áherslu á að við rann­sóknir á vald­beit­ingu og rétt­mæti hennar þurfi rann­sókn­ar­að­ili að vera með öllu sjálf­stæður og ótengdur rann­sókn­ar­þola; dugi þá ekki að við­kom­andi sé aðskil­inn stjórn­sýslu­legu skipu­riti þeirrar greinar rík­is­valds­ins sem er til rann­sóknar heldur þurfi aðil­inn „einnig að vera ótengdur henni í raun“. 

Meg­in­hlut­verk þeirrar nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu sem nú starfar er að greina erindi, koma kvört­unum og athuga­semdum vegna …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár