Bróðir ráðherrans sem skipaði Sigríði án auglýsingar fékk stöðu án auglýsingar

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­reglu fékk stöð­una án aug­lýs­ingar. Einn þeirra er bróðir ráð­herr­ans sem skip­aði Sigríði í emb­ætti lög­reglu­stjóra án aug­lýs­ingar árið 2014 þegar Sigríður þagði um upp­lýs­ingar í leka­mál­inu sem rann­sak­endur hefðu viljað búa yfir.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, sem var skipuð lög­reglu­stjóri af Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra án aug­lýs­ingar, skip­aði síðar bróður ráð­herr­ans í yfir­manns­stöðu án aug­lýs­ingar.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar um ráðn­ing­ar­mál hjá lög­reglu í nýjasta tölu­blaði, en fimm af tíu yfir­stjórn­endum lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gegna stjórn­un­ar­stöðu sem þeir fengu á grund­velli und­an­þága frá meg­in­reglu starfs­manna­laga um að aug­lýsa skuli laus störf.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir var skipuð lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu haustið 2014. Málið vakti mikla athygli, enda var staðan ekki aug­lýst heldur Sigríður flutt í emb­ættið á grund­velli 36. gr. starfs­manna­laga sem veitir stjórn­völdum und­an­þágu frá aug­lýs­inga­skyld­unni og heim­ilar flutn­ing milli emb­ætta. 

Mikið hefur verið um stöðu­veit­ingar án aug­lýs­ingar hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu síðan veit­ing­ar­valdið féll Sigríði Björk í skaut og þetta valdið tals­verðri ólgu.

Einn þeirra sem fengið hafa yfir­manns­stöðu hjá lög­reglu án aug­lýs­ingar í tíð Sigríðar er Theodór Krist­jáns­son, bróðir Hönnu Birnu, ráð­herr­ans sem gerði Sigríði Björk að lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins án aug­lýs­ingar á sínum tíma.

Theodór var ráð­inn aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn 1. jan­úar 2008 sam­kvæmt aug­lýs­ingu og fluttur tíma­bundið í stöðu yfir­lög­reglu­þjóns þann 1. apríl 2019 á grund­velli 36. gr. starfs­manna­laga. Hann hafði þó setið í yfir­stjórn­inni síðan 2017, en það ár tók hann við stöðu yfir­manns kyn­ferð­is­brota­deildar. Eru yfir­lög­reglu­þjónar skip­aðir af lög­reglu­stjóra sam­kvæmt 28. gr. lög­reglu­laga.

Fram kemur í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið að Theodór hafi verið „fluttur tíma­bundið í stöðu yfir­lög­reglu­þjóns þann 1. apríl 2019 á grund­velli 36. gr.“. Samkvæmt bréfi sem dóms­mála­ráðu­neytið sendi lög­reglu­stjórum lands­ins í vor á hins vegar 36. gr. starfs­manna­laga fyrst og fremst við þegar um var­an­lega ráð­stöfun er að ræða, enda hvergi í 36. gr. kveðið á um heim­ild til að flytja menn tíma­bundið á milli emb­ætta í formi setn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár