Umboðsmaður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórnmálamenn skipti sér ekki af lögreglurannsóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn hafi ekki afskipti af rann­sóknum ein­stakra saka­mála eins og gerð­ist í leka­mál­inu. Þróun af slíku tagi má ekki verða í íslenskri stjórn­sýslu. 

Þetta brýnir Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, fyrir stjórn­völdum og þing­heimi í árs­skýrslu sinni fyrir árið 2015. Þar fjallar hann meðal ann­ars um frum­kvæð­is­at­hugun sína á sam­skiptum Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, og aðstoð­ar­manna hennar, þeirra Gísla Freys Val­dórs­sonar og Þóreyjar Vil­hjálms­dóttur, við Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem lauk í upp­hafi árs­ins.

„Sem eft­ir­lits­maður með stjórn­sýsl­unni tel ég ástæðu til þess að und­ir­strika að þótt í þessu máli hafi verið fjallað um til­tekin sam­skipti ráð­herra og lög­reglu­stjór­ans er mik­il­vægt að borg­ar­arnir geti jafnan treyst því að rann­sókn saka­mála í til­efni af kærum þeirra sem bein­ast gegn stjórn­völdum fari fram án afskipta fyr­ir­svars­manna við­kom­andi stjórn­valds,“ segir í skýrsl­unni. „Ef þessa er ekki gætt er m.a. hætta á slíkum afskiptum ef þeir 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár