Hanna Birna valin í stjórn Jafnréttissjóðs Íslands

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, sagði af sér ráð­herra­dómi og hætti í stjórn­málum eftir að hafa verið staðin að því að segja Alþingi marg­sinnis ósatt um mál er varð­aði brot gegn ein­stæðri móður frá Nígeríu. Nú er hún einn af full­trúum Alþingis í stjórn Jafn­rétt­is­sjóðs Íslands.

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, var kosin sem aðal­maður í stjórn Jafn­rétt­is­sjóðs Íslands á Alþingi í nótt og tekur við af Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur sem full­trúi sjálf­stæð­is­manna í sjóðnum.

„Hér hefur borist ein til­nefn­ing um Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur. Þar sem ekki eru fleiri til­nefndir en kjósa skal lýsi ég Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur rétt­kjörna sem aðal­mann í Jafn­rétt­is­sjóði Íslands,“ sagði Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­seti Alþingis þegar hún til­kynnti um kosn­ingu eins aðal­manns í Jafn­rétt­is­sjóð Íslands í stað Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur sem kosin var af Alþingi þann 15. mars í fyrra. 

Jafn­rétt­is­sjóður Íslands var stofn­aður á grund­velli þings­á­lykt­unar þann 19. júní 2015 í til­efni af 100 ára kosn­inga­rétt­araf­mæli íslenskra kvenna. Meg­in­til­gangur sjóðs­ins er að fjár­magna eða styrkja verk­efni og rann­sóknir sem miða að því að efla jafn­rétti kynj­anna í íslensku sam­fé­lagi og á alþjóða­vísu. 

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir er fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og gegndi emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra árin 2013 til 2014. Hún sagði af sér ráð­herra­emb­ætti eftir að fram hafði farið lög­reglu­rann­sókn á ráðu­neyti hennar og póli­tískur aðstoð­ar­maður dæmdur í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir brot á þagn­ar­skyldu sem bitn­aði á tveimur hæl­is­leit­endum frá Nígeríu. Þá hafði ráð­herra marg­sinnis verið staðin að því að segja fjöl­miðlum og Alþingi ósatt um mála­vöxtu. Í árs­byrjun 2015 komst umboðs­maður Alþingis að þeirri nið­ur­stöðu að Hanna Birna hefði brotið lög og mis­beitt valdi sínu með því að hafa ítrekuð afskipti af lög­reglu­rann­sókn­inni sem beind­ist að hennar nán­ustu aðstoð­ar­mönnum og beita lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þrýst­ingi. Hér er farið yfir helstu atriði máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár