Frumvarp Jóns um forvirkar rannsóknarheimildir: Mun ekki auka eftirlit með lögreglu

Stundin birtir frum­varp Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra um for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir. Lögregla fær með því víð­tækar eft­ir­lits­heim­ildir án þess að gert sé ráð fyrir að eft­ir­lit með lög­reglu auk­ist. Stofn­unum og öðrum stjórn­völdum verður skylt að veita lög­reglu per­sónu­upp­lýs­ingar um fólk sem lög­regla ákveður að hefja eft­ir­lit með.

<span>Frumvarp  Jóns um forvirkar rannsóknarheimildir:</span> Mun ekki auka eftirlit með lögreglu
Tilbúið frum­varp Frumvarp Jóns Gunn­ars­sonar um for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir er til­búið í dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Það hefur þó verið sent út til umsagnar á valda aðila og mögu­legt er að það taki breyt­ingum þess vegna. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Litlar efn­is­breyt­ingar hafa orðið á frum­varpi um for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir lög­reglu, frá þeirri útgáfu sem lögð var fram í sam­ráðs­gátt í byrjun árs, og þeirri útgáfu sem dóms­mála­ráð­herra sagði til­búið í ráðu­neyt­inu. Þó hefur ákvæði um að heim­ila lög­reglu að nálg­ast upp­lýs­ingar um ein­stak­linga, þar á meðal per­sónu­upp­lýs­ingar, frá opin­berum hluta­fé­lögum, verið felld út, sam­kvæmt nýj­ustu útgáf­unni.

Stundin fékk aðgang að frum­varp­inu í krafti upp­lýs­inga­laga í til­efni af ummælum dóms­mála­ráð­herra í kjöl­far umfangs­mik­illa lög­reglu­að­gerða og hand­töku lög­reglu vegna meintrar hryðju­verkaógnar 20. sept­em­ber.

Með því verða lög­reglu veittar heim­ildir til að hefja rann­sókn, stunda umfangs­mikið eft­ir­lit, fylgj­ast með ferðum fólks á almanna­færi, afla gagna um per­sónu­lega hagi þess og leggja hald á eignir, án rök­studds gruns um að við­kom­andi hafi framið afbrot eða ætli að fremja afbrot. Núver­andi lög­gjöf veitir ekki sam­svar­andi heim­ildir. Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur lagt þunga áherslu á að frum­varpið verði að lögum.

Samkvæmt þeirri útgáfu frum­varps­ins sem Stundin fékk afhenta er ekki gert ráð fyrir því að aukið eft­ir­lit verði með því hvernig lög­regla beiti þessum auknu heim­ildum, umfram það sem þegar er í höndum sér­stakrar nefndar um eft­ir­lit með störfum lög­reglu. Ein meg­in­rök þeirra sem goldið hafa var­hug við því að færa lög­reglu svo umfangs­miklar eft­ir­lits­heim­ildir með borg­ur­unum, hefur verið sú að ekki sé gert ráð fyrir því að virkt eft­ir­lit verði með beit­ingu heim­ild­anna.

Í frum­varp­inu er sér­stak­lega vísað til sam­svar­andi heim­ilda í lög­gjöf Dana og Norð­manna. Þar eru þær stofn­anir sem fara með það vald þó undir sér­stöku eft­ir­liti umfram það sem lög­regla þar býr við almennt. Í Danmörku fer sér­stök nefnd með eft­ir­lit með þeim stofn­unum sem slíkar heim­ildir hafa þar í landi. Auk þess sem starf­semin heyrir undir eft­ir­lit og ábyrgð dóms­mála­ráð­herra og heyrir auk þess undir eft­ir­lits­hlut­verk sér­stakrar þing­manna­nefndar. 

Í Noregi er svip­aður háttur hafður á en þar hefur nefnd á vegum norska þings­ins eft­ir­lit með beit­ingu heim­ild­anna auk þess sem ráð­herra og rík­is­sak­sókn­ari hafa almennt eft­ir­lit með starf­semi lög­gæslu­yf­ir­valda sem heim­ilt er að beita þessum heim­ildum.

Samkvæmt svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins til Stund­ar­innar er ekki loku fyrir það skotið að frum­varpið geti tekið breyt­ingum, áður heldur en það verður lagt fyrir alþingi. Frum­varpið hefur verið sent nokkrum aðilum til umsagnar, meðal ann­ars lög­reglu­stjórum.

Grundvallarbreyting

Ákvörðun um eft­ir­lit með fólki verður á höndum lög­reglu­stjóra og þurfa aðrir aðilar ekki að koma að þeim ákvörð­unum. Þá verður lög­reglu heim­ilt að leggja hald á muni í eigu eða vörslu ann­arra aðila en þeirra sem sæta eft­ir­liti, sé slíkt talið nauð­syn­legt eða lík­legt til að veita lög­reglu upp­lýs­ingar til að koma í veg fyrir brot er varða land­ráð eða brot gegn stjórn­skipan rík­is­ins og æðstu stjórn­völdum. Slík hald­lagn­ing verður þó aðeins ákveðin með úrskurði dóm­ara.

Jón Gunn­ars­son sjálfur greindi frá því að frum­varpið væri til­búið í dóms­mála­ráðu­neyt­inu í fréttum Rík­is­út­varps­ins 22. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og óskaði Stundin því eftir því að fá frum­varpið afhent. Tilefni orða Jóns var að sama dag voru tveir karl­menn úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald, grun­aðir um að hafa í und­ir­bún­ingi hryðju­verka­árásir hér á landi. Þær árásir áttu sam­kvæmt lög­reglu að bein­ast gegn Alþingi og lög­reglu, hið minnsta.

Heimildir til vopnaburðar verða lögfestar

Um er að ræða breyt­ingu á lög­reglu­lögum og lýtur sú breyt­ing að for­virkum rann­sókn­ar­heim­ildum, sem nefnd eru afbrota­varnir í frum­varp­inu, og vopna­burði lög­reglu.

Hvað síð­ari þátt frum­varps­ins, um vopna­burð, varðar er gert ráð fyrir því í frum­varp­inu að við grein lag­anna þar sem fjallað er um vald­beit­ingu bæt­ist nýjar máls­greinar þar sem vopna­burður lög­reglu er til­greindur. Í gild­andi lögum er ekki fjallað um vopna­burð lög­reglu heldur aðeins að lög­reglu sé heim­ilt að beita valdi við skyldu­störf sín, og að ekki megi ganga lengra við beit­ingu valds en þörf sé á hverju sinni. Í hinu nýja frum­varpi er hins vegar sér­stak­lega fjallað um vopna­burð. „Lög­reglu­stjóri getur gefið fyr­ir­mæli um að lög­reglu­menn skuli vopn­ast í sam­ræmi við reglur sem settar eru skv. 3. mgr.,“ segir í frum­varp­inu og til­greint að ráð­herra setji nán­ari reglur um vald­beit­ingu, með­ferð og notkun vopna hjá lög­reglu. Þá skuli rík­is­lög­reglu­stjóri setja verk­lags­reglur um nauð­syn­legar áætl­anir lög­reglu­liða varð­andi við­búnað með vopnum.

Heimilt að nýta samskipti við uppljóstrara

Hvað varðar breyt­ingar þær sem snúa að for­virkum rann­sóknum þá er sér­stak­lega til­greint að lög­reglu­rann­sóknar- og grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra skuli „sinna upp­lýs­inga­öflun og grein­ingum í þágu afbrota­varna á lands­vísu, m.a. með rekstri mið­lægs gagna­grunns“.

Þá er frekar fjallað um þær heim­ildir sem lög­reglu verða veittar til að sinna for­virkum rann­sóknum. Fram kemur að lög­reglu verði heim­ilt að nýta til grein­ingar allar þær upp­lýs­ingar sem hún býr yfir eða aflar við fram­kvæmd lög­gæslu­starfa „og frum­kvæð­is­verk­efna, þar á meðal sam­skipti við upp­ljóstr­ara, eft­ir­lit á almanna­færi og vöktun vef­síðna sem opnar eru almenn­ingi.“

„Af þeim kunni að stafa sér­greind hætta fyrir almanna­ör­yggi er lög­reglu heim­ilt að hafa eft­ir­lit með við­kom­andi“

Þá segir enn fremur að hafi lög­regla upp­lýs­ingar um að fólk eða hópur fólks hafi tengsl við skipu­lögð brota­sam­tök eða „af þeim kunni að stafa sér­greind hætta fyrir almanna­ör­yggi er lög­reglu heim­ilt að hafa eft­ir­lit með við­kom­andi“. Það má lög­regla gera með því að afla upp­lýs­inga um fólk, fylgj­ast með ferðum þess á almanna­færi eða öðrum stöðum sem almenn­ingur hefur aðgang að. Ákvörðun um slíkt eft­ir­lit liggur hjá lög­reglu­stjórum eða öðrum yfir­mönnum lög­reglu sam­kvæmt ákvörðun lög­reglu­stjóra.

Lögreglu er einnig heim­ilt, í sama skyni, að afla upp­lýs­inga, „þar á meðal per­sónu­upp­lýs­inga, hjá öðrum stjórn­völdum og stofn­unum“. Er lög­reglu það heim­ilt ef talið er að þær upp­lýs­ingar hafi veru­lega þýð­ingu við rann­sókn á land­ráða­brotum og brotum gegn stjórn­skipan rík­is­ins eða æðstu stjórn­völdum, „eða til að afstýra slíkum brotum“. Öðrum stjórn­völdum og stofn­unum verður sam­kvæmt frum­varp­inu skylt að veita slíkar upp­lýs­ingar.

Lögregla verði að geta „brugðist við og gripið til aðgerða áður en einstök brot eru framin“

Enn fremur er lög­reglu heim­ilt að leggja hald á muni eða gögn í eigu ann­arra en þeirra sem eft­ir­lit er haft með. Úrskurð dóm­ara þarf fyrir slíkum aðgerðum. Í þeirri útgáfu frum­varps­ins sem Stundin fékk afhent er að finna athuga­semdir Birgis Jón­as­sonar, lög­reglu­stjóra á Norð­ur­landi vestra. Meðal athuga­semda Birgis er að hann telji nauð­syn­legt að útvíkka orða­lag frum­varps­ins þegar kemur að hald­lagn­ingu muna og gagna. Eins og frum­varpið sé verði ekki unnt að leggja hald á muni vegna skipu­lagðrar brota­starf­semi nema því aðeins að um sé að ræða teng­ingu við land­ráð eða brot gegn stjórn­skipan rík­is­ins og æðstu vald­höfum. Telur Birgir að þörf sé á opn­ara ákvæði með teng­ingu við skipu­lagða brota­starf­semi sem „iðu­lega eru fíki­efna­laga­brot, man­sal og vændi. Nefndi enn fremur þegar um ræðir kyn­ferð­is­brota­menn gegn börnum.“

Til­greint er að verði eft­ir­liti hætt án þess að grunur sé um afbrot skuli lög­regla til­kynna nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu um aðgerð­ina eins fljótt og unnt er, eigi síðar en 30 dögum eftir að eft­ir­liti er hætt. Ekki er að sjá lög­reglu sé skylt að upp­lýsa þá sem sætt hafa eft­ir­liti af hennar hálfu um að svo hafi verið. Hins vegar er gert ráð fyrir því að nefnd um eft­ir­lit með störfum lög­reglu muni fá heim­ild til að gera lög­reglu­stjórum skylt að til­kynna hverjum þeim sem sætt hefur eft­ir­liti að til­efn­is­lausu, um slíkt eft­ir­lit. 

Í athuga­semdum með frum­varp­inu segir að breytt afbrota­mynstur og útbreiðsla skipu­lagðrar brota­starf­semi á milli landa krefj­ist þess að lög­gæslu­yf­ir­völd geti „brugð­ist við og gripið til aðgerða áður en ein­stök brot eru framin,“ það er fyr­ir­byggt að framin séu alvar­leg afbrot.

Þá er fjallað um að hér á landi hafi lög­gæslu­yf­ir­völd alla tíð starfað í öðru umhverfi þegar kemur að afbrota­vörnum heldur en ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum. Þar séu alls staðar starf­andi sér­stakar stofn­anir innan lög­reglu sem hafi það hlut­verk að koma í veg fyrir brot sem geti raskað öryggi rík­is­ins. Eru njósnir, hryðju­verk og alvar­leg afbrot í tengslum við skipu­lagða brota­starf­semi þar til­greind sér­stak­lega. Er þar verið að vísa til stofn­ana á borð við dönsku örygg­is­lög­regl­una PET, norsku örygg­is­lög­regl­una PST og sænsku örygg­is­lög­regl­una SÄPO.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Velti fyrir mér hvernig svona frumstæð Mannson 27 grúppa eins og sú Íslenska sem ég hef hingað til talið vera frekar frumstæða villimenn í selskinnsjökkum með hamarinn í hendinni geti komist inn í nýjustu gerð af Iphone og séð allar myndir og hljóðupptökur þar í,sér til skelfingar og svo komið í veg fyrir í gegnum flug fé lagið að öryggisbúnaður eins og skothelt vesti komist til landsins frá Kína?
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Það vantar eitthvað afl til að taka á glæpsamlegum froðusnökkum og lýðskrumurum sem rata inn í stjórnmálin og hafa gert í áratugi samanber bíltúrinn með Geirfinni og bankahrunið. Það er eins og þetta lið sé hafið yfir lög þrátt fyrir nýframin afbrot. Þarna liggja hættulegir glæpamenn með völd í felum, samanber Jack the ripper a Hólmsheiðinni og Manson gengið
    0
  • Ragnar Ragnarsson skrifaði
    Bananalýðveldið Ísland.
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    "Má nota forvirkar rannsóknarheimildir til að rannsaka mútur?
    Illugi Jökulsson"

    "Hægð­ar­leik­ur er að færa rök fyr­ir því að millj­arð­ar og aft­ur millj­arð­ar hverfi úr sam­eig­in­leg­um sjóð­um okk­ar á hverju ári vegna spill­ing­ar – sem op­in­ber­ir að­il­ar þykj­ast þó sem minnst um vita, skrif­ar Ill­ugi Jök­uls­son."
    0
    • SV
      Sigurgeir Vilmundarson skrifaði
      Það má ekki beita þessum lögum á þá sem setja þau, og allsekki rannsaka áratuga langa hefð fyrir misnotkun á lífeyrissjóðum landsmanna , af öllum þeim sem hafa mögullega tök á því að ná sér í smá aukapening og komast upp með þjófnaðinn. Þeir eru ófáir og enginn virðist hafa áhuga á að rannsaka þau mál.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu