Einar: „Við erum óhrædd við að hagræða“

Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri var við­mæl­andi Aðal­steins Kjart­ans­sonar í nýjasta þætti Pressu. Ræddi hann um hús­næðis- og leik­skóla­mál og hvernig ástandið í Grinda­vík hefur haft áhrif á borg­ina. Hann segir Framsókn óhrædda við hag­ræð­ingu en nýlega var ráð­ist í hag­ræð­ing­ar­að­gerðir sem sneri rekstri borg­ar­innar við um 10 millj­arða.

Í nýjasta þætti Pressu ræddi Aðal­steinn Kjart­ans­son við Einar Þor­steins­son, nýjan borg­ar­stjóra. Talaði Einar hve mik­il­vægt væri að auka hús­næð­is­fram­boð. „Neyðin er mikil. Við verðum að gera eitt­hvað,“ segir hann. Einar segir skemmti­legra en hann bjóst við að koma inn í borg­arpóli­tík­ina. „Við eigum æðis­lega borg.“

Óhagnaðardrifin leigufélög kaupi hluta íbúða sem byggðar verði

„Okkur er að fjölga hraðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en mann­fjölda­spár gerðu ráð fyrir. Fram­boðið er ekki nægt, það er ekki nægi­lega byggt,“ segir Einar. Hann vill meina að í háu vaxtaum­hverfi séu jafn­vel fram­kvæmda­að­ilar sem eru með bygg­ing­ar­hæfar lóðir sem treysti sér ekki til að taka fram­kvæmda­lán. „Þá bíða verk­efnin og fara ekki af stað.“

Einar nefnir eina leið til þess að auka fram­boð á hús­næði með auk­inni upp­bygg­ingu. „Ég vil draga for­svars­menn leigu­fé­laga, óhagn­að­ar­drifnu, inn í sam­tal við lána­stofn­anir, líf­eyr­is­sjóði, Samtök iðn­að­ar­ins, Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun og svo borg­ar­skipu­lagið. Og sjá hvort við getum kom­ist að sam­komu­lagi …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár