„Það er mikið af hjartahlýju fólki á Íslandi“

Palest­ínsku flótta­menn­irnir mót­mæla enn fyrir framan Alþing­is­húsið. Fólk er dug­legt að vitja þeirra og þeir segj­ast þakk­látir fyrir stuðn­ing­inn. Bergþóra Snæ­björns­dóttir rit­höf­undur reyndi að fá ráð­herra til að ræða við flótta­menn­ina.

Palest­ínskir flótta­menn sem hafa haldið til á Aust­ur­velli frá því á mið­viku­dag hafa fengið stuðn­ing frá fjölda fólks sem á leið hjá. 

Menn­irnir hafa reist lítil tjöld fyrir utan Alþing­is­húsið og nú er komið stærð­ar­innar veislu­tjald á Aust­ur­völl. Palest­ínskir fánar blakta við inn­gang þess. Á vett­vangi mátti sjá íslenskt fjöl­skyldu­fólk í sam­bland við kapp­klædda Palest­ínu­menn­ina. Gestir komu með kaffi til að orna sér í frost­inu og sett­ust saman við lít­inn hitara í veislu­tjald­inu. 

Engin svör hafa borist frá yfir­völdum um hvernig hægt verði að bjarga fjöl­skyldum þeirra, sem fengið hafa sam­þykkt dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar, frá Gasa­svæð­inu.

Finnur fyrir miklum stuðningi frá Íslendingum

Naji Asar, sem Heim­ildin ræddi einnig við í fyrra­dag, seg­ist þakk­látur því að fólk komi að vitja þeirra meðan þeir bíða. Á hverjum degi koma allt að 40 manns að spjalla við þá.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár