Náttúruhamfarir fylgja fjölskyldunni

Nátt­úru­ham­farir virð­ast elta Rakel Ein­ars­dóttur og fjöl­skyldu. Eig­in­maður hennar var tveggja mán­aða þegar gaus í Vest­manna­eyjum, þar sem fjöl­skyldan dvelur nú eftir að hafa flúið jarð­hrær­ingar í Grinda­vík. En nú er hættu­stig í Eyjum.

Náttúruhamfarir fylgja fjölskyldunni
Í Eyjum Hjónin í Vest­manna­eyjum á góðri stund. Rakel er ekki viss hvort þau snúi aftur til Grinda­víkur, það hefur alltaf verið draumur að flytja aftur til Eyja. Mynd: Aðsend

Rakel Ein­ars­dóttir og Bjarki Guðnason flúðu neyð­ar­stig Almanna­varna vegna jarð­hrær­inga í Grinda­vík til Vest­manna­eyja. Eftir nokkra daga í öruggu skjóli í sum­ar­húsi fjöl­skyld­unnar lýstu Almanna­varnir yfir hættu­stigi í Vest­manna­eyjum vegna skemmda á neyslu­vatns­lögn. Þá fyrst fékk Rakel hnút í mag­ann. 

Þetta byrj­aði allt föstu­dag­inn 10. nóv­em­ber, dag­inn sem Almanna­varnir lýstu yfir neyð­ar­stigi og Grinda­vík var rýmd. Rakel kom heim úr vinn­unni og bað son sinn að sækja jóla­dótið upp á háa­loft. „Ég ætl­aði að fara að lýsa upp heim­ilið fyrir Grinda­vík­urbæ. Ég ætl­aði að láta lífið ganga sinn vana­gang og fara að gera föstu­dag­spits­una þegar allt fer að skjálfa,“ segir Rakel. Hún hafði ekki fundið fyrir hræðslu í skjálfta­hrin­unni. „Ég hef verið meiri stuðn­ingur, en svo hætti manni algjör­lega að lít­ast á blik­una þegar maður fann eins og það væri flæði undir gólf­inu. Það var allt á fullu.“

MíaKisa kann vel við sig í Eyjum.

Hjónin ákváðu að fara í bíltúr og end­uðu í Hafn­ar­firði hjá bróður Bjarka. Sonur þeirra, sem er tví­tugur, var hjá vini sínum og dóttir þeirra var á heim­ili sínu í Kópavogi. Heim­il­is­kött­ur­inn, Mía, varð ein eftir í Grinda­vík. Planið var að fara aftur heim um kvöldið. „Svo fengum við bara sím­tal um að það væri neyð­ar­rým­ing. Þá fóru þeir bræður af stað til að ná í Míu. „Hann hefði vaðið eld og brenni­stein, hann Bjarki minn, fyrir Míu. Þetta var smá stress. En hann tók engin föt, bara kött­inn,“ segir Rakel. 

Eftir þrjár nætur hjá bróður Bjarka fengu þau afnot af íbúð vina­hjóna í miðbæ Reykja­víkur en ákváðu svo að fara til Vest­manna­eyja. Bjarki er fæddur þar en var aðeins tveggja mán­aða í Heima­eyj­ar­gos­inu og flúði með fjöl­skyldu sinni. Hús fjöl­skyld­unnar fór á kaf og er nú mið­punktur Eldheima, gossafns­ins í Vest­manna­eyjum. Rakel er Grind­vík­ingur og hjónin hófu búsetu þar en fluttu svo til Vest­manna­eyja árið 2006 og voru búsett þar í ell­efu ár en fluttu svo aftur til Grinda­víkur. „Nú erum við komin aftur hingað og höfum fengið því­líkt góðar mót­tökur.“ Börn hjón­anna eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og þau eru því bara tvö í kot­inu í Eyjum. „Og auð­vitað Mía.“

Af neyðarstigi í skjól yfir í hættustig

Þau voru aðeins búin að vera í Eyjum í nokkra daga þegar Almanna­varnir höfðu aftur áhrif á líf þeirra, nú var það hættu­stig vegna skemmda á neyslu­vatns­lögn, einu neyslu­vatns­lögn­inni til Vest­manna­eyja. „Þetta var í fyrsta skipti sem ég fékk hnút í mag­ann. Ég trúði ekki að þetta væri að ger­ast og ég fyllti þrjá stóra kjöt­súpu­potta af vatni. Tengda­mamma ráð­lagði mér það, hún veit hvernig það er að vera vatns­laus í Vest­manna­eyjum,“ segir Rakel. Til­hugs­unin um hættu­stig og enn meiri óvissu er óþægi­leg. „Ég er nýbúin að pakka niður til að flýja mögu­legt gos og ég gat ekki hugsað mér að vera vatns­laus. Nú hef ég alla­vega smá vatn til að sturta niður og hella upp á kaffi. En þetta hafði pínu áhrif á mig ofan á allt hitt. Maður er að reyna vera jákvæður. Það eiga margir mjög erfitt.“

„Það ger­ist bara það sem ger­ist. Við vitum ekk­ert.“

Kviku­gang­ur­inn er undir heim­ili fjöl­skyld­unnar í Grinda­vík. Rakel er ekki viss hvort þau snúi aftur heim. „Nú er ég bara pínu smeyk. Maður fann vel fyrir hraun­flæð­inu undir hús­inu. Get ég lent í því að það sé hola í blett­inum mínum?“

Maður og sonur Rakelar eru búnir að kanna aðstæður í hús­inu og það virð­ist vera heilt. „En það er á þessu hættu­svæði, það er vestan megin við sprung­una, kvikan á að vera storknuð en við vitum ekk­ert. Ég er ekk­ert rosa­lega spennt fyrir að fara aftur. Ekki fyrr en ein­hver segir mér að ég og mitt fólk séum 100 pró­sent örugg. Það eru margir sem ég þekki sem geta ekki hugsað sér eða treysta sér að fara aftur. Svo eru húsin þeirra í lagi en þau standa verð­laus, fólk þarf að reyna að byrja aftur upp á nýtt.“

 „Við náttúrlega elskum Vestmannaeyjar“

Rakel er jákvæð að eðl­is­fari og trúir því að allt fari vel að lokum. „Ég segi alltaf að ég syrgi ekki dauða hluti því ég hef þurft að syrgja á annan hátt, sem ég veit að er miklu erf­ið­ara. Ég veit alveg að við förum aftur í öruggt skjól, það eina sem ég þarf að gera er að pakka öllu aftur niður.“

Aðspurð hvort það komi til greina að flytja aftur til Eyja segir Rakel að það hafi alltaf verið draum­ur­inn. „Við nátt­úr­lega elskum Vest­manna­eyjar þannig það er eitt­hvað sem gæti alveg orðið. En við erum ekki að fara að búa í þessu sum­ar­húsi.“

Enn sem stendur er fram­tíðin óljós. „Við tökum bara einn dag í einu, við erum bæði þar. Við erum mjög jákvætt fólk og erum ekk­ert að búa til of mikið drama. Það ger­ist bara það sem ger­ist. Við vitum ekk­ert.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár