Útgerðarmaður á Snæfellsnesi vill sjókvíaeldið úr SFS: „Þetta er ófyrirgefanlegt“

Ólafur Rögn­valds­son, útgerð­ar­maður hjá Hrað­frysti­húsi Hell­issands, hefur skipt um skoðun á sjó­kvía­eldi á laxi eftir slysa­slepp­ing­una hjá Arctic Fish í Pat­reks­firði. Hann er einn af þeim útgerð­ar­mönnum sem er ósáttur við að sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækin sé undir sama hatti og SFS:

Útgerðarmaður á Snæfellsnesi vill sjókvíaeldið úr SFS: „Þetta er ófyrirgefanlegt“
Segir slysa­slepp­ing­una ófyr­ir­gef­an­lega Ólafur Rögn­valds­son, útgerð­ar­maður og einn af eig­endum Hrað­frysti­húss Hell­issands, vill sjóa­kvía­eld­is­fyr­ir­tækin út úr SFS. Ástæðan er slysa­slepp­ingin hjá Arctic Fish í Pat­reks­firði fyrr í sumar.

Ólafur Rögn­valds­son, útgerð­ar­maður og einn af eig­endum Hrað­frysti­húss Hell­issands, segir að slysa­slepp­ingin hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish í sumar  hafi leitt til þess að hann sé orð­inn mót­fall­inn grein­inni. Hrað­frysti­húsið er í 18. sæti yfir stærstu útgerðir lands­ins miðað við kvóta.

„Ég hef verið mjög hlynntur sjó­kvía­eldi út af byggð­ar­legu sjón­ar­miði en þessir atburðir þarna fyrir vestan hafa deyft það algjör­lega niður. Því miður hefur mér snú­ist algjör­lega hugur. Ég er búinn að lifa og hrær­ast í sjáv­ar­út­vegi alla tíð og ef við gerum ein­hver mis­tök þá er okkur hegnt fyrir einn, tveir og bingó. Þarna virð­ist þetta hafa verið algjör­lega eft­ir­lits­laust. Þarna var opin kví í þrjá mán­uði. Þetta er ófyr­ir­gef­an­legt, algjör­lega,“ segir Ólafur í sam­tali við Heim­ild­ina. 

„Ég er algjör­lega á móti því að þetta sé undir hatti SFS, algjör­lega á móti því.“
Ólafur Rögn­valds­son,
útgerð­ar­maður …
Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Ég vil ekki gera lítið úr þessu en núna allt í einu, þegar þúsundir laxa sleppa og ógna íslenska laxinum, verður andstaða gegn sjókvíaeldi.
    Eins og fólk kæri sig kollótt (eða hafi gert hingað til) um öll hin umhverfisspjöll sem fylgja sjóeldi: gríðarleg lyfjanotkun, koparhúðun (eitur!) neta, mengun af völdum úrgangs laxsins, plastagnir sem skolast í sjóinn þegar fóðrið er blásið í gegn um plaströr.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár