„Ég myndi ekki setja pening á að hann sé að hverfa alveg“

„Hann er örugg­lega ekki að fara að segja af sér,“ sagði ég við Davíð Þór Guð­laugs­son mynda­töku­mann þegar við gengum yfir Arnarhól, í átt að fjár­mála­ráðu­neyt­inu, í 14 metrum á sek­úndu í morgun. „Þetta verður örugg­lega frekar óspenn­andi fundur,“ bætti ég við. Það var bara hálf­tíma síðar sem við, rétt eins og hinir frétta­menn­irnir í fund­ar­her­bergi fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, tókum and­köf.

„Ég myndi ekki setja pening á að hann sé að hverfa alveg“
Alveg bit Kristinn Þeyr (t.v.) og Magnús Geir (t.h.) hafa sam­an­lagt verið í frétta­mennsku í tæpa fjóra ára­tugi. Þeir voru býsna hissa á vend­ingum dags­ins. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Magnús Geir Eyj­ólfs­son, frétta­maður hjá frétta­stofu RÚV, byrj­aði í blaða­mennsku fyrir 19 árum síðan, áður en Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra tók fyrst sæti í rík­is­stjórn. Hann var staddur í fund­ar­her­bergi í hús­næði fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins í Lind­ar­götu þegar Bjarni til­kynnti um afsögn sína.

Magnús, rétt eins og aðrir frétta­menn í her­berg­inu, lyfti brúnum þegar hin óvæntu orð voru mælt: „Ég hef ákveðið að láta af störfum sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.“

Afsögnin var við­bragð Bjarna við áliti Umboðs­manns Alþingis sem komst að þeirri niðu­stöðu að Bjarni hafi verið van­hæfur til að að selja félagi í eigu föður síns, Bene­dikts Sveins­sonar, hlut í Íslands­banka í lok­uðu útboði sem fram fór í mars í fyrra.

„Ég er búinn að vera sam­ferða Bjarna lengi vel, svo þetta var sér­stakt,“ sagði Magnús eftir fund­inn. „Það er merki­legt að sjá stjórn­mála­menn yfir höfuð taka svona ábyrgð. Það er oft sem hafa komið úrskurðir frá hinum og þessum batt­er­íum. Það hefur eig­in­lega aldrei haft afleið­ingar.“

Við hverju bjóstu hér í dag? „Að hann hafi ætlað að svara fyrir álitið og ekk­ert meira en það,“ sagði Magnús. 

Með honum var annar reynslu­bolti, Kristinn Þeyr Magn­ús­son mynda­töku­maður sem hefur verið í tvo ára­tugi í brans­anum. „Ég hef séð hann nokkrum sinnum áður,“ sagði Kristinn, sem er fasta­gestur – ásamt mynda­vél­inni – við ráð­herra­bú­stað­inn þegar rík­is­stjórn­ar­fundir fara fram, léttur um frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra. „Ég er eig­in­lega alveg stein­bit. Mér finnst þetta merki­legt.“ 

Bjarni ekki búinn að syngja sitt síðasta í pólitík

Þeir Magnús og Kristinn sögð­ust vera hissa á ákvörðun Bjarna, en áttu ekki von á að fjár­mála­ráð­herra væri að hætta í stjórn­málum. „Hann var ekk­ert að deyja,“ sagði Magnús. „Hann úti­lokar ekk­ert að hann taki annað ráðu­neyti eða haldi áfram. Hann var svo sem búinn að gefa í skyn eftir síð­ustu kosn­ingar að hann úti­lok­aði ekki að taka annað ráðu­neyti.“

Kristinn býst ekki heldur við því að dag­ur­inn í dag sé sá síð­asti sem Bjarni verður fyrir framan mynda­vél­ina. Bjarni hefur ekki enn gefið uppi hvort hann muni áfram sitja á þingi eða jafn­vel taka annan ráð­herra­stól. 

„Maður á eftir að sjá hann aftur örugg­lega,“ sagði Kristinn og Magnús tók undir það: „Ég myndi ekki setja pen­ing á að hann sé að hverfa alveg.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í ríkisstjórn
FréttirAfsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í rík­is­stjórn

For­sæt­is­ráð­herra telur langt í land með að hægt verði að ræða frek­ari banka­sölu, ólíkt frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra sem til­tók það sem sér­stakt verk­efni nýs fjár­mála­ráð­herra, á blaða­manna­fundi for­manna stjórn­ar­flokk­anna í morgun. Stjórn­ar­flokk­arnir sömdu um vopna­hlé eftir skæru­s­umar á Þing­völlum í gær.
„Ég ætti í reynd ekki annan valkost en að sitja áfram við ríkisstjórnarborðið“
FréttirAfsögn Bjarna Ben

„Ég ætti í reynd ekki annan val­kost en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið“

Bjarni Bene­dikts­son frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra telur að hann hafi ekki getað annað en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið, þrátt fyrir að hafa sagt af sér emb­ætti fjár­mála­ráð­herra. Með því að taka sæti utan­rík­is­ráð­herra seg­ist hann vilja auka póli­tískan stöð­ug­leika, sem sé for­senda þess efna­hags­lega.
Að selja banka í góðri trú og armslengd
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Að selja banka í góðri trú og arms­lengd

Álit umboðs­manns Alþingis, sem sagði Bjarna Bene­dikts­son van­hæfan til að selja föður sínum hlut í Íslands­banka, efast ekki um stað­hæf­ingar Bjarna um „hreina sam­visku“ eða góða trú. Það snýr að því að Bjarni hafi ekki gætt að hæfi sínu með því að leyfa sér að taka áhættu um hvort hann væri að selja föður sínum hlut í banka eða ekki þegar hann kvitt­aði undir söl­una.
Armslengd frá stjórnarkreppu
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Arms­lengd frá stjórn­ar­kreppu

Afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur leitt af sér glund­roða innan rík­is­stjórnar Íslands. Nú eru for­menn­irnir í kappi við tím­ann við að finna ein­hverja lausn. Sú lausn þarf að taka mið af þeim raun­veru­leika að Bjarni vill hætta í stjórn­málum. Hann er búinn með sín níu líf á því sviði, en er þó opinn fyrir að stiga burt á annan hátt til að lág­marka skað­ann fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár