Samkeppniseftirlitið sektar Samskip um 4,2 milljarða

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur ákveðið að leggja 4,2 millj­arða króna stjórn­valds­sektir á Samskip, vegna sam­ráðs við Eimskip á fyrsta og öðrum ára­tug ald­ar­innar. Sam­an­lagt er um að ræða lang­hæstu sekt­ar­á­kvarð­anir sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur lagt á eitt fyr­ir­tæki vegna rann­sóknar eins máls. Samskip ætlar ekki að una nið­ur­stöð­unni.

Samkeppniseftirlitið sektar Samskip um 4,2 milljarða
Samskip Alls hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið lagt 4,2 millj­arða króna sekt á Samskip.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Samskip hafi brotið með alvar­legum hætti gegn sam­keppn­is­lögum og EES-samn­ings­ins með ólög­mætu sam­ráði við Eimskip og sömu­leiðis brotið gegn sam­keppn­is­lögum við rann­sókn máls­ins með rangri, vill­andi og ófull­nægj­andi upp­lýs­inga­gjöf og gagna­af­hend­ingu. 

Alls hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið ákveðið að leggja 4,2 millj­arða króna stjórn­valds­sekt á Samskip vegna þess­ara brota og auk þess lagt fyrir fyr­ir­tækið að grípa til aðgerða í því skyni að koma í veg fyrir frek­ari brot og efla sam­keppni. Frá þessu er sagt í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef eft­ir­lits­ins í dag.

Fyrirtækin hafi hagnast á samráði á kostnað samfélagsins alls

Eimskip var einnig til rann­sóknar í þessu sama máli, en þeirri rann­sókn lauk með sátt sum­arið 2021. Með sátt­inni við­ur­kenndi Eimskip brot, greiddi stjórn­valds­sekt að fjár­hæð 1,5 millj­arðar króna og skuld­batt sig til til­tek­inna aðgerða.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið til­kynnti um ákvörðun sína í dag og segir í ákvörðun þess að sam­ráð Samskipa og Eimskip hafi í heild sinni verið „til þess fallið að gera fyr­ir­tækj­unum kleift að draga með afdrifa­ríkum hætti úr sam­keppni og hækka eða halda uppi verði gagn­vart við­skipta­vinum fyr­ir­tækj­anna, t.d. með hækkun við end­ur­nýjun samn­inga, hækkun á gjald­skrám og þjón­ustu­gjöldum, upp­töku nýrra gjalda, lækkun afslátta o.s.frv.“ 

„Sam­eig­in­leg yfir­burða­staða Eimskips og Samskipa á mark­aðnum, sam­skipti stjórn­enda fyr­ir­tækj­anna og aðrir þættir í sam­ráði fyr­ir­tækj­anna sköp­uðu kjörað­stæður fyrir fyr­ir­tækin til að ná árangri í sam­ráð­inu og hagn­ast á kostnað við­skipta­vina og sam­fé­lags­ins alls,“ segir í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Samskip ætla ekki að una ákvörðuninni

Í yfir­lýs­ingu sem Samskip sendu frá sér síð­degis í dag segir að nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sé hafnað. „Álykt­anir um víð­tækt og þaul­skipu­lagt sam­ráð eru með öllu til­hæfu­lausar og úr tengslum við gögn og stað­reyndir. Samskip for­dæma vinnu­brögð Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins við rann­sókn­ina og hyggj­ast fá nið­ur­stöð­unni hnekkt,“ segir í yfir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

Enn­fremur segir að nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins „ein­kenn­ist af hálf­sann­leika, vill­andi fram­setn­ingu og rang­færslum“.

„Vinnu­brögð Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í mál­inu eru Sam­skipum mikil von­brigði. Máls­með­ferðin hefur verið ein­stak­lega þung og haft lam­andi áhrif á starf­semi og starfs­fólk Samskipa. Stofn­unin hefur farið offari við rann­sókn máls­ins og gagna­öflun og hefur nú kom­ist að nið­ur­stöðu sem ekki er í nokkrum tengslum við raun­veru­leik­ann. Settar eru fram kenn­ingar og álykt­anir um brot án þess að beinum sönn­un­ar­gögnum sé til að dreifa. Kenn­ingum hefur verið fundin stoð með því að fara bein­línis rangt með efni gagna eða stað­reyndir máls eða með aug­ljósum rang­túlk­unum,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Sam­skipum.

Umhugsunarefni að Eimskip hafi keypt sig frá frekari málsmeðferð

Þar er einnig fjallað um sátt Eimskips við Sam­keppn­is­eft­ir­litið og segir Samskip ljóst að „ákvörðun Eimskips hafi ekki byggt á efni máls­ins heldur mati nýrra stjórn­enda félags­ins á því hvað væri far­sæl­ast fyrir rekstur þess næstu árin.“ 

Fyr­ir­tækið segir það „umhugs­un­ar­efni“ ef „ráð­andi fyr­ir­tæki á mark­aði getur með þessum hætti notað digra sjóði til að kaupa það frá frek­ari máls­með­ferð“. „Þá er alvar­legur hlutur ef löng og þung máls­með­ferð og miklar vald­heim­ildir eft­ir­lits­stjórn­valda geta orðið til þess að fyr­ir­tæki kjósi heldur að játa sök og greiða sekt, án þess að efni séu til, en að leiða hið rétta og sanna í ljós fyrir æðra stjórn­valdi eða dóm­stólum,“ segir í yfir­lýs­ingu Samskipa.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samráð skipafélaga

Samfélagslegt tjón af samráði skipafélaganna metið á 62 milljarða
FréttirSamráð skipafélaga

Sam­fé­lags­legt tjón af sam­ráði skipa­fé­lag­anna metið á 62 millj­arða

Kostn­aður íslensks sam­fé­lags vegna ólög­legs sam­ráðs Eimskips og Samskipa er met­inn 62 millj­arðar króna í nýrri grein­ingu Analytica. Stærstur hlut­inn er sagður hafa lent á neyt­endum vegna hærri kostn­aðar á inn­fluttum vörum og þeim sem skulda verð­tryggð lán. „Dýrkeypt og hrika­leg aðför að neyt­endum,“ segir for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.
Lykilmaður í samráði víkur ekki úr stjórn lífeyrissjóðs
FréttirSamráð skipafélaga

Lyk­il­maður í sam­ráði víkur ekki úr stjórn líf­eyr­is­sjóðs

Fyrr­ver­andi for­stjóri Samskipa, Pálmar Óli Magn­ús­son, sem lýst er sem arki­tekt og lyk­il­manni í sam­ráðs­brotum fyr­ir­tæk­is­ins í úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, ætlar ekki að víkja úr stjórn­ar­for­manns­stóli eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins. Hann var skip­aður í stjórn nokkrum dögum áður en hann var yfir­heyrður vegna gruns um lög­brotin. SA með skipan hans til skoð­unar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár