Dómurinn yfir plastbarkalækninum: „Þessi fjölskylda var eyðilögð“

Ítalski skurð­lækn­ir­inn Paulo Macchiarini var dæmdur fyrir allar aðgerð­irnar þrjár sem hann gerði á Karol­inska-sjúkra­hús­inu. Blaða­mað­ur­inn sem afhjúpaði málið, Bosse Lindqvist, segir að dóm­ur­inn hafi afleið­ingar á skaða­bóta­kröfur ekkju Andemari­ams Beyene því nú liggi fyrir dóms­nið­ur­staða um að aðgerðin á honum hafi verið ólög­leg.

Dómurinn yfir plastbarkalækninum: „Þessi fjölskylda var eyðilögð“
Áfrýjar dómnum Paulo Macchiarini, ítalski skurð­lækn­ir­inn sem er mið­punkt­ur­inn í plast­a­barka­mál­inu, ætlar að áfrýja dómnum sem féll á milli­dóms­stigi í Svíþjóð þann 21. júní.

Plast­barka­að­gerðin á Eritreu­mann­inum Andemariam Beyene, sem búsettur var á Íslandi, var ekki gerð af neyð til að bjarga lífi hans og hefði hann getað lifað í all­veru­legan tíma áfram ef hann hefði ekki farið í aðgerð­ina. Þetta er ein af helstu nið­ur­stöð­unum í dómi í Svíþjóð sem féll þann 21. júní. 

Með dómnum var ítalski skurð­lækn­ir­inn Paulo Macchiarini dæmdur í tveggja og hálfs árs fang­elsi fyrir meðal ann­ars aðgerð­ina á Andemariam en hún var gerð á Karol­inska-sjúkra­hús­inu í Solna árið 2011. Paulo Macchiarini hefur gefið það út að hann muni áfrýja nið­ur­stöð­unni til hæsta­réttar Sví­þjóðar. Til þess að það verði þarf hann að fá áfrýj­un­ar­leyfi frá dóm­stólnum. 

Dóms­nið­ur­staðan byggir meðal ann­ars á því að Macchiarini hafi bæði beitt Andemariam, og aðra sem stóðu að aðgerð­inni, blekk­ingum um neyð­ina sem og tækn­ina á bak við aðgerð­ina. 

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

Uppljóstrarar: „Plastbarkamálið er ennþá opið sár“
FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.
Sjúkratryggingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plastbarkamálinu
GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár