Kristján í Hval kallar Svandísi öfgafullan kommúnista

Hvala­út­gerð­ar­mað­ur­inn Kristján Loftsson vandar Svandísi Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra ekki kveðj­urnar í við­tali í Morg­un­blað­inu, þar sem hann segir að „öfga­fullur komm­ún­isti“ stjórni mat­væla­ráðu­neyt­inu. Svandís setti tíma­bundið bann á hval­veiðar í ljósi svartrar skýrslu Mat­væla­stofn­unar um með­ferð dýra við veið­arnar.

Kristján í Hval kallar Svandísi öfgafullan kommúnista
Kvaldir hvalir Í skýrslu Mat­væla­stofn­unar um hval­veiðar er kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að hval­veiðar, sem ein­ungis eru stund­aðar af fyr­ir­tæki Krist­jáns Lofts­sonar, sam­ræm­ist ekki mark­miðum laga um vel­ferð dýra. Mynd: Hard to Port

Kristján Loftsson, for­stjóri og stærsti eig­andi Hvals, einu hvala­út­gerð­ar­innar á Íslandi, segir að ákvörðun Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra um að leggja á tíma­bundið bann við veið­unum hafi komið eins og þruma úr heið­skíru lofti. Þetta segir hann í við­tali við Morg­un­blaðið og bætir við að Vinstri gæn séu að end­ur­skil­greina orðin „með­al­hóf í stjórn­sýslu“. 

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Það verður að segja sem er að þessi ákvörðun Svandísar hefðu stjórnvöld átt að taka fyrir áratugum. Hvalveiðar hafa alltaf verið okkur til vansa og þaðan af síður til framdráttar
    0
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Alveg burtséð frá því hvað mönnum finnst um réttmæti hvalveiða, er tímasetning þessa banns glórulaus. Þetta fagráð hefur verið í fyrsta gír í sinni vinnu við að komast að niðurstöðu og fyrst ekki náðist að berja saman niðurstöðu tímanlega, átti ráðherra að bíða með sinn úrskurð.
    0
    • Guðjón Jensson skrifaði
      Öll rök mæla með því að hvalveiðar eins og þær hafa verið stundaðar samsvara ekki ákvæðum laga um dýravernd m.a. hvernig standa skuli að binda endi á líf dýra. Þá ber skv. lögum að matvælaverkun eigi að fara fram innanhúss en ekki undir berum himni. Kristján hvalafangari hefur ekkert gert til þess að sinna þessum kröfum um betri meðhöndlun matvæla.
      0
  • Olafur Kristjansson skrifaði
    Hann saknar nafna síns úr ráðuneytinu. Sá var fljótur að bregðast vel við skilaboðum frá honum.
    2
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hvað skyldi hann þá vera?
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Það kemur fram í opinberum gögnum SjálfstæðisFLokksins að Hvalur ehf er einn helsti styrktaraðili hans.

    Ein helsta ástæða þess, að hvalveiðar hafa undanfarin ár verið stundaðar við Ísland, er sú að Hvalur ehf borgar feitt í kosningasjóði FLokksins :-)
    4
    • Guðjón Jensson skrifaði
      Það er einmitt ástæðan fyrir þessu upphlaupi gegn ákvörðun Svandísar.
      Stjórnvöld hefðu átt að hafa tekið þessa ákvörðun um bann við hvalveiðum fyrir áratugum enda eru þær okkur ekki til framdráttar.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár