Hafnar sáttaumleitunum Samherja

Samherji kom á fram­færi ósk í gegnum lög­manns­stof­una Wikborg Rein um að fella niður mála­ferli á hendur lista­mann­inum Oddi Eysteini Frið­riks­syni vegna „We‘re Sorry“ list­gjörn­ings­ins. Það gerðu þeir um leið og ljóst var að Odee hefði fengið lög­menn sér til varnar. „Ég ætla ekki að semja um nokkurn skap­aðan hlut,“ segir lista­mað­ur­inn.

Hafnar sáttaumleitunum Samherja
Segir Samherja sýna sitt rétta and­lit Odee hefur ekki í hyggju að semja við Samherja, þrátt fyrir boð þar um. Mála­rekstur mun því halda áfram úti í Bret­landi. Mynd: Odee

Lög­manns­stofan Wikborg Rein, fyrir hönd Samherja, bauð lista­manninnum Oddi Eysteini Frið­riks­syni, Odee, sátt í mála­ferlum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins á hendur honum, um leið og ljóst var að Odee hafði fengið lög­menn til að verja hags­muni sína úti í Bret­landi. Vildi Samherji fella málið niður gegn því að Odee eft­ir­léti fyr­ir­tæk­inu lénið sam­herji.co.uk. Odee hefur hins vegar engin áform um að þiggja þá sátt. „Ég trúi á mál­frelsið og tján­ing­ar­frelsið og á ekki von á öðru en að ég vinni þetta mál.“

Svo sem Heim­ildin hefur ítrekað greint frá setti Odee í loftið vef­síðu sem hluta af list­gjörn­ingi sínum, „We‘re Sorry“, þar sem hann birti yfir­lýs­ingu þess efnis að Samherji bæð­ist afsök­unar á fram­ferði sínu í Namibíu og héti því að vinna með yfir­völdum, namibískum sem íslenskum, auk ann­arra aðila og væri reiðu­búið til að bæta fyrir gjörðir sínar.

Létu blekkjast af fréttatilkynningunni

Samherji fór fram á það fyrir dóm­stóli í Bret­landi að sett yrði á bráða­birgða lög­bann á umrædda heima­síðu og á það féllst dóm­ari í mál­inu.   Byggði mál­flutn­ingur Samherja á því að til­gangur síð­unnar, útlit hennar og nafn, hefði verið til að blekkja net­not­endur, og lögðu lög­menn fyr­ir­tæk­is­ins áherslu á að þeim blekk­ingum hefði verið beint að breskum neyt­endum og hugs­an­legum við­skipta­vinum eða sam­starfs­að­ilum fyr­ir­tæk­is­ins þar í landi. Var bent á að minnsta kosti einn fjöl­mið­ill, írska frétta­síðan The Fishing Daily, hefði látið blekkj­ast og birt frétt upp úr frétta­til­kynn­ing­unni. Lögmenn Samherja bentu á þetta sem dæmi um skaða sem frétta­til­kynn­ingin og vef­síðan hefðu valdið. Umrædd frétt var þó tekin niður af vef­síðu The Fishing Daily.

Óttast frekari skaða á orðspori

Í fram­burði lög­manns Samherja, Cristophers James Grieveson, varð honum tíð­rætt um umrædda frétta­til­kynn­ingu. Sagð Grieveson hana inni­halda „játn­ingar, afsök­un­ar­beiðnir og lof­orð sem kær­andi [Samherji] hefur ein­fald­lega ekki sett fram.“

„Kærandi telur veru­legar líkur á frek­ari skaða á orð­spori sínu hjá við­skipta­vinum“
Christopher James Grieveson
lög­maður Samherja

Þá hefði Odee með gjörn­ingnum villt um fyrir aðilum í sjáv­ar­út­vegi og almenn­ingi sem myndu aug­ljós­lega tengja efni vef­síð­unnar við Samherja og þar með „bera annan hug til kær­anda. Hann hefur skaðað, og gæti skaðað, við­skipta­vild kær­anda og tök fyr­ir­tæk­is­ins á að reka starf­semi sína með þeim lög­mæta hætti sem kær­andi leit­ast við.“

Segjast ekki vera að reyna að hefta málfrelsi

Þá vakti lög­maður Samherja sér­staka athygli dóm­ara á Odee hefði einnig notað vöru­merki Samherja, nafn fyr­ir­tæk­is­ins, í stóra vegg­mynd í Lista­safni Reykja­víkur, sem hefði vakið athygli íslenskra fjöl­miðla og valdið því að fleiri net­not­endur hefðu farið um vef­síð­una. Þó til­greinir Grieveson lög­maður fyrir dómnum að Samherji hygg­ist ekki leita til dóm­stóla vegna vegg­mynd­ar­innar í Lista­safn­inu, ekki að svo komnu máli. Ástæðan sé að um sé að ræða tíma­bundið verk á útskrift­ar­sýn­ingu, og „þó það [fyr­ir­tækið Samherji] gagn­rýni verkið, er það ekki að reyna að hefta mál­frelsi.“

Fer ófögrum orðum um Samherja og Wikborg Rein

Sem fyrr segir buðu lög­menn Samherja sátt í mál­inu strax og lög­menn þeir sem Odee hafði fengið til starfa settu sig í sam­band við Wikborg Rein. „Fyrstu við­brögð hjá þeim voru að Samherji væri til­bú­inn að semja við mig. Þeir vildu í raun bara fella málið niður og fá lénið í sínar hendur,“ segir Odee í sam­tali við Heim­ild­ina.

„Þeir hafa kom­ist upp með að semja sig út úr öllum and­skot­anum“
Odee
um fram­göngu Samherja

Odee segir hins vegar að hann hafi hafnað öllum sátta­um­leit­unum og detti ekki í hug að semja við Samherja um eitt né neitt. „Mín afstaða er að þeir megi fokka sér, þessi norska lög­fræði­stofa má fokka sér, Samherji má fokka sér. Ég ætla ekki að semja um nokkurn skap­aðan hlut. Þeir hafa kom­ist upp með að semja sig út úr öllum and­skot­anum og í kjöl­farið hafa þeir getað sagt að þeir séu sak­lausir af hinu og þessu sem þeir hafa gert. Með fram­komu sinni gagn­vart mér sýna þeir bara sitt rétta and­lit.“

Málið mun því ganga sinn gang fyrir dóm­stólum úti í Bret­landi.

Samherji nú með tölvupóstsamskipti fjölda fólks undir höndum

Í úrskurði dóm­ara varð­andi lög­banns­skröf­una sagði að Odee væri skylt að færa lén vef­síð­unnar yfir til Samherja, auk þess að taka niður síð­una, og að tryggja að hún, auk allra net­fanga sem henni teng­ist, verði gerð óvirk þar til dóm­stóll­inn birtir loka­úr­skurð í mál­inu. Samherja er hins vegar óheim­ilt að nota lénið á nokkurn hátt fyrr en að feng­inni heim­ild dóm­ara. Sömu­leiðis var til­greint að Samherja væri skylt að hlíta hverri þeirri nið­ur­stöðu dóms­ins sem lyti að því að greiða þyrfti Odee bætur vegna lög­banns­ins, ef það til þess kæmi.

Samkvæmt úrskurði dóm­stóls­ins er Odee óheim­ilt að skrá, afla sér eða nota nokkuð lén þar sem orðið sam­herji kemur fyrir, sem og nokk­urt orð sem er því líkt. Þá er honum óheim­ilt að nota orðið Samherji í titli vef­síðu eða í nokkru útgefnu efni. Sömu sögu er að segja um notkun á vöru­merkjum eða útgefnu efni Samherja.

Dómarinn féllst hins vegar ekki á þá rök­semd lög­manna Samherja að Odee hefði notað vöru­merkin í við­skipta­legu sam­hengi og byggði ákvörðun sína um lög­bannið ekki á því, heldur að um óheim­ila notkun á vöru­merkjum væri að ræða.

Odee var þá jafn­framt gert skylt að afhenda Samherja öll tölvu­póst­sam­skipti þar sem not­ast var við sam­herji.co.uk net­föng. Um er að ræða vel á þriðja hund­rað tölvu­pósta, flestir þeirra eru póstar sem Oddur sjálfur sendi en þó ein­hverjir tugir þar sem um er að ræða tölvu­pósta frá nafn­greindu fólki, blaða­mönnum og öðrum, með per­sónu­legum upp­lýs­ingum þeirra. Þá hefur Samherji nú undir höndum.

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þessi gjörningur er sko ekkert slor, sammála SSS
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Því meiri ummfjöllun. því betra fyrir Odee.
    Áfram Oddur alla leið!
    Grálúsugir syndaselir samherja eiga sér engar málsbætur!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár