Erla heyrir liti

Hill­billy ræddi við Erlu Þór­ar­ins­dóttur mynd­list­ar­mann, sem er ein af tólf lista­mönnum sem teknir eru á tali í þætt­inum OPNUN II í Rík­is­sjón­varp­inu. Erla vinnur jöfnum höndum með mál­verk, skúlp­t­úra, ljós­myndir, hönnun og inn­setn­ingar en í Gallerí Hill­billy á síðu í Heim­ild­inni kaus hún að sýna teikn­ingu, ein­línu­teikn­ingu.

Erla heyrir liti

Erlu finnst mynd­listin vera eina leiðin. „Mynd­listin er svo stikk­frí, svo mikið fyrir utan, með svo mikið leyfi. Það er frelsi innan mynd­list­ar­innar, maður hefur leyfi til að prófa allt og gera allt,“  segir Erla og bætir við, „þetta er í raun og veru síð­asta vígið, að fá að vera alveg frjáls.“

Veðrið það besta, verðið það versta

Að hverju ertu að vinna þessi dægrin? „Ég er að mála ljósið; bjarta liti, það er komið vor.“ Það er svo sann­ar­lega að koma vor. Páskar á næsta leiti og svo allt í einu komið hásumar og svo blessuð jólin. Svona gengur þetta víst. Hvað er það besta við að vera lista­maður á Íslandi? „Veðrið,“ svarar Erla, „síbreyti­legt. Stuttar vega­lengdir og sund­laug­arnar eru líka góðar. Og íslenska hjartað,“ bætir Erla við. Hvað ætli sé það versta við að vera lista­maður á Íslandi fyrir Erlu? „Verð­trygg­ingin,“ svarar Erla, „hún tryggir hækkun lána en …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Suðurlandstvíæringur: tala, borða og kanna þanþol
MenningHús & Hillbilly

Suð­ur­land­st­ví­ær­ingur: tala, borða og kanna þan­þol

Hópur mynd­list­ar­fólks, hönn­uða, arki­tekta og tón­listar- og fræða­fólks starfar – borðar og spjallar – saman undir for­merkjum Suð­ur­land­st­ví­ær­ings­ins. Tví­ær­ing­ur­inn (South Iceland Biennale) er lif­andi, marg­þjóð­legur, þver­fag­legur vett­vangur lista, menn­ingar og nátt­úru. Síðan í sumar hefur hóp­ur­inn þróað alls kyns list­við­burði í upp­sveitum Suð­ur­lands en fyrst og fremst búið til rými til að eiga frjótt sam­tal, innan hóps­ins og út fyrir endi­mörk tví­ær­ings­ins.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár