Fyrirbæri: Miðstöð listamanna og áhugafólks um myndlist

Í húsi á Ægis­göt­unni sem byggt var fyrir verk­smiðju eru nú vinnu­stofur lista­manna, sýn­ing­ar­salur og vett­vangur fyrir fólk sem vill kaupa sam­tíma­list beint af vinnu­stofum lista­manna.

Fyrirbæri: Miðstöð listamanna og áhugafólks um myndlist
Lista­mað­ur­inn Katrín Inga Jóns­dóttir Hjör­dís­ar­dóttir hafði lengi horft löng­un­ar­augum á rýmið, en hún er ein þeirra sem stendur að baki Fyr­ir­bæri. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það hefur ekki farið fram­hjá neinum í lista­sen­unni að Ægisgata 7 hefur lifnað við og innan veggja húss­ins vex múltí-komp­lexið Fyr­ir­bæri/Phen­omenon. Fyr­ir­bæri hýsir vinnu­stofur fjöl­margra lista­manna og sam­eig­in­lega sýn­ing­ar­að­stöðu þeirra.

„Þetta er lista­manna­rekið fyr­ir­bæri; vinnu­stof­urnar, gall­er­í­rýmið og res­idensíu-prógram að þró­ast,“ segir Katrín Inga Jóns­dóttir Hjör­dís­ar­dóttir, sem rekur rýmið. Hún bætir því við að Fyr­ir­bæris-rýmið til­heyri kjall­ara, fyrstu og annarri hæð í hinni fag­ur­gulu Ægisgötu 7. „Þetta eru um 1.100 fer­metrar í heild­ina, brúttó. Við erum yfir 35 lista­menn, þvert á list­greinar, sem erum með vinnu­stofur og svo erum við með sýn­inga­rými sem er um 10 pró­sent af heild­ar­stærð­inni.“

Eru enn þá laus pláss? „Já, í opnum rýmum er laust.“ 

Myndlistarfjölskylda og nágranni

Markmið Fyr­ir­bæris er að skapa tæki­færi fyrir fram­þróun mynd­listar og mik­il­væg­asti grunnur til þess eru góðar vinnu­stofur, sem Ægisgata 7 býr að. „Aðgengi inn á vinnu­stofur er full­komið, þar sem bygg­ingin er …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Suðurlandstvíæringur: tala, borða og kanna þanþol
MenningHús & Hillbilly

Suð­ur­land­st­ví­ær­ingur: tala, borða og kanna þan­þol

Hópur mynd­list­ar­fólks, hönn­uða, arki­tekta og tón­listar- og fræða­fólks starfar – borðar og spjallar – saman undir for­merkjum Suð­ur­land­st­ví­ær­ings­ins. Tví­ær­ing­ur­inn (South Iceland Biennale) er lif­andi, marg­þjóð­legur, þver­fag­legur vett­vangur lista, menn­ingar og nátt­úru. Síðan í sumar hefur hóp­ur­inn þróað alls kyns list­við­burði í upp­sveitum Suð­ur­lands en fyrst og fremst búið til rými til að eiga frjótt sam­tal, innan hóps­ins og út fyrir endi­mörk tví­ær­ings­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár