Hver var Makbeð?

Í Borg­ar­leik­hús­inu er nú ver­ið að sýna harm­leik Shakespeares um Mak­beð Skotakóng og hina ónefndu lafði hans. Leik­stjóri sýn­ing­ar­inn­ar er einn efni­leg­asti leik­stjóri Evr­ópu um þess­ar mund­ir, Uršulė Bartoševičiūtė frá Litáen. Leik­stjór­ar nú­tím­ans fara vit­an­lega sín­um eig­in hönd­um um efni­við Shakespeares en hvernig fór hann sjálf­ur með sinn efni­við, sög­una um hinn raun­veru­lega Mac Bet­had mac Findlaích sem vissu­lega var kon­ung­ur í Skotlandi?

Hver var Makbeð?
Hjörtur Jóhann Jónsson í hlutverki Makbeðs í Borgarleikhúsinu.

Makbeð er nú til sýnis á íslensku leiksviði – það mun vera í fimmta sinn sem atvinnuleikarar takast á við „skoska leikritið“. Leikrit Shakespeares fjallar augljóslega um ótæpilegan metnað sem þróast yfir í grimmdaræði og morð – en fleira má þó finna í leiknum, ef að er gáð. En hver var hinn raunverulegi Makbeð?

Hann  var vissulega á dögum, kóngur í Skotlandi á 11. öld. En gáum fyrst að því hvernig hann birtist hjá Shakespeare.

Þegar leikurinn hefst er nýlokið orrustu þar sem Skotar hrundu innrás norrænna víkinga. Helsti maður Duncans konungs, Makbeð jarl af Glamis, stýrði Skotum í orrustunni og hlýtur mikið lof fyrir.

Nornir birtast

Á leið frá vígvellinum til fundar við Duncan kóng hitta Makbeð og Bankó vinur hans nornir þrjár, heldur svakalegar, sem ávarpa Makbeð glaðhlakkalega fyrst sem jarl af Kavdor og síðan sem konung Skota.

Makbeð furðar sig að vonum á titlatogi nornanna en …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Í minningu afastráksins
1
Viðtal

Í minn­ingu afastráks­ins

Gunn­ar Rand­vers­son starf­aði í ára­tugi sem tón­list­ar­kenn­ari, hef­ur skrif­að ljóð og smá­sagna­safn. Áföll­in hafa mót­að líf hans. Ell­efu ára gam­all horfði hann á föð­ur sinn deyja, 21 árs missti hann móð­ur sína og fyr­ir þrem­ur ár­um lést fjög­urra ára gam­all dótt­ur­son­ur hans. Í ljóða­bók­inni Hvernig er sökn­uð­ur á lit­inn? eru ljóð skrif­uð í minn­ingu litla drengs­ins. Eft­ir frá­fall hans leit­aði Gunn­ar í kirkj­una.
Ráðherrar á Grænlandi sniðgengu opnun ræðisskrifstofu Bandaríkjanna
6
ErlentGrænlandsmálið

Ráð­herr­ar á Græn­landi snið­gengu opn­un ræð­is­skrif­stofu Banda­ríkj­anna

Banda­rík­in opn­uðu í dag nýja ræð­is­skrif­stofu á Græn­landi í mið­bæ höf­uð­stað­ar­ins Nu­uk. Eng­ir af ráð­herr­um Græn­lands voru við­stadd­ir opn­un­ina og að­eins ör­fá­ir þing­menn. Blaða­mað­ur Heim­ild­ar­inn­ar fór á opn­un­ar­við­burð­inn sem fór fram í skugga áforma Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
2
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár