Gagnrýna launahækkun forstjóra Orkuveitunnar

Laun Bjarna Bjarna­sonar, for­stjóra OR, hækka aft­ur­virkt og eru komin yfir 3 millj­ónir króna á mán­uði. Borg­ar­full­trúar Sós­í­alista­flokks og Flokks fólks­ins leggj­ast gegn hækk­un­inni.

Gagnrýna launahækkun forstjóra Orkuveitunnar
Mótmæla launa­hækkun for­stjór­ans Borg­ar­full­trú­arnir Kolbrún Bald­urs­dóttir og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir segja laun for­stjóra Orku­veit­unnar of há.

Laun for­stjóra Orku­veitu Reykja­víkur eru í „engum takti við veru­leik­ann“ að sögn borg­ar­full­trúa Sós­í­alista­flokks­ins og „út úr öllu korti“ að mati Flokks fólks­ins. Tillaga um hækkun á launum Bjarna Bjarna­sonar, for­stjóra OR, var sam­þykkt á fundi stjórnar OR 27. júní síð­ast­lið­inn og var rædd á fundi borg­ar­ráðs í gær.

Laun Bjarna hækka um 5,5 pró­sent aft­ur­virkt frá 1. jan­úar þessa árs. Stjórn OR sam­þykkti til­lögu starfs­kjara­nefndar um hækk­un­ina, en Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks, sat hjá. Mán­að­ar­laun Bjarna eru nú yfir 3 millj­ónir króna og fær hann 1,2 millj­ónir greiddar aftur í tím­ann þar sem hækk­unin tók gildi í byrjun árs.

Bjarni Bjarna­sonFor­stjóri Orku­veit­unnar fær 1,2 millj­ónir vegna aft­ur­virkrar hækk­unar launa sinna frá byrjun árs.

Fund­ar­gerð stjórn­ar­fundar OR var rædd í borg­ar­ráði í gær. „Á meðan að mann­eskjur á lág­marks­launum og undir því eiga ekki fyrir mat út mán­uð­inn er verið að hækka laun for­stjóra sem er á ofur­launum,“ segir í bókun borg­ar­ráðs­full­trúa Sós­í­alista­flokks­ins, þeirra Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur og Trausta Breið­fjörð Magn­ús­sonar vara­full­trúa. „Það er ljóst að launa­stefna borg­ar­innar og fyr­ir­tækja í eigu hennar er í engu takti við veru­leik­ann, þar sem launa­bilið á milli þeirra hæst laun­uðu og lægst laun­uðu er gríð­ar­legt í því stétt­skipta sam­fé­lagi sem við búum í.“

„Þeir eru í höfr­unga­hlaupi hver við annan og hækka á víxl í launum“

Kolbrún Bald­urs­dóttir, áheyrn­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, lagði einnig fram bókun vegna máls­ins. „Flokki fólks­ins finnst þessi laun vera út úr öllu korti. Allir vita hvaða ástand ríkir nú í sam­fé­lag­inu. Verð­bólga hefur ekki verið eins há síðan fyrir hrun. Þurfa ekki for­stjórar að axla ein­hverja ábyrgð eða eru þeir und­an­þegnir ábyrgð sem öðrum er gert að axla? Það er ekk­ert lög­mál að for­stjórar eigi að vera á ofur­launum. Rökin fyrir svo háum launum for­stjóra eru oft á þá leið að þeir séu að standa sig svo vel í starfi. Þetta eru und­ar­leg rök, eins og það sé ekki bein­línis sjálf­gefið að for­stjóri standi sig vel. For­stjórar orku­fyr­ir­tækja eru sára­fáir en þeir eru í höfr­unga­hlaupi hver við annan og hækka á víxl í launum,“ sagði í bókun Kol­brúnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÖI
    Örn Ingólfsson skrifaði
    Því miður getur almenningur ekki gert afturkræfa kröfu á Íslenska óríkið! Þeir sem hafa varla á milli hnífs og skeiðar eru skattpíndir í botn, með hjálp en þeir sem hafa ofurlaun þá skekkir það allar tölur sem Hagstofa ofl birta um lífskjör almennings með laun undir 450 þúsundum á mánuði fyrir skatt, því sannleikurinn kemur ekki í ljós! 800-1200 manns í skoðanakönnunum sem Á að vera úrtak er ekki marktækt! Hátekjuskatturinn, veiðigjöldin? Lækkað að beiðni ofureignafólks og ofureignakvótakerlinga og karla! Nú það má víst ekki hrófla við? En það verður fróðlegt í haust þegar að kjarabarátta almennings fer af stað, þá fyrir utan BSRB! Því sum félög sömdu um launahækkanir umfram síðustu samninga almennings!
    0
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Sammála!
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Sanna hefði oft getað stutt Kollu í því sem er að í borgini það hefði vakið bæði athygli á flokknum og Sönnu sjálfri.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár