Ráðuneyti Bjarna bendir á ábyrgð Bankasýslunnar sem heyrir undir hann sem ráðherra

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið benti ítrekað á Banka­sýslu rík­is­ins þegar spurn­inga var spurt um söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Banka­sýslan heyrir hins vegar undir ráðu­neyti fjár­mála.

Ráðuneyti Bjarna bendir á ábyrgð Bankasýslunnar sem heyrir undir hann sem ráðherra
Benda á Banka­sýsl­una Rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins bendir á ábyrgð Banka­sýslu rík­is­ins í Íslands­banka­mál­inu og Banka­sýslan bendir svo aftur á bank­ana og verð­bréfa­fyr­ir­tækin sem seldu hluta­bréfin. Katrín Jak­obs­dóttir er for­maður VG, Bjarni Bene­dikts­son er for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Sigurður Ingi Jóhanns­son er for­maður Fram­sókna­flokks­ins. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fjár­mála­ráðu­neytið benti ítrekað á Banka­sýslu rík­is­ins í svörum til fjöl­miðla á síð­ustu vikum þar sem beðið var um upp­lýs­ingar um sölu íslenska rík­is­ins á hluta­bréfum þess í Íslands­banka. Umræðan um söl­una á hluta­bréf­unum, sem Banka­sýsla rík­is­ins sá um, hefur nú leitt til þess að rík­is­stjórnin hefur gefið það út að stofn­unin verði lögð niður. 

„Rétt er því að beina fyr­ir­spurn­inni til Banka­sýslu rík­is­ins.“
Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið

Stundin beindi ítrek­uðum spurn­ingum um sölu hluta­bréf­anna, og eft­ir­lit hins opin­bera með henni, til fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Meðal spurn­inga voru þær hvort ráðu­neytið hafi fengið upp­lýs­ingar um það frá Banka­sýslu ríks­ins á hvaða for­sendum þátt­tak­endur í útboð­inu voru skil­greindir sem fag­fjár­festar en ekki sem almennir fjár­festar, hvort Banka­sýslan hafi haft eft­ir­lit með því að þetta hafi verið gert á hlut­lægum for­sendum hjá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár