Fráfarandi formaður SÁÁ keypti vændisþjónustu af fíknisjúklingi

Einar Her­manns­son, sem síð­degis sagði af sér for­mennsku í SÁÁ vegna vænd­is­máls, keypti á árunum 2016 til 2018 vænd­is­þjón­ustu af konu sem var í mik­illi fíkni­efna­neyslu og hafði verið og er núna skjól­stæð­ingur SÁÁ. Stundin hefur undir höndum gögn sem stað­festa þetta.

Fráfarandi formaður SÁÁ keypti vændisþjónustu af fíknisjúklingi
Frá­far­andi for­maður SÁÁ keypti um tveggja ára skeið vænd­is­þjón­ustu af konu sem var fíkni­sjúk­lingur

Einar Her­manns­son seg­ist í yfir­lýs­ingu sem hann sendi til fjöl­miðla í dag hafa svarað vænd­is­aug­lýs­ingu á net­inu fyrir nokkrum árum. „Fyrir nokkrum árum svar­aði ég aug­lýs­ingu á net­inu þar sem í boði var kyn­líf gegn greiðslu. Sú hegðun er ófyr­ir­gef­an­leg en ég taldi mér rang­lega trú um að þau sam­skipti væru grafin og gleymd og þau hafa ekki haft áhrif á störf mín fyrir SÁÁ. Ljóst er hins vegar að umræða um þetta mál er ein­ungis til þess fallin að varpa rýrð á SÁÁ ef ég sit þar áfram sem for­maður,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

Yfir­lýs­ing for­manns SÁÁ birt­ist í kjöl­far rann­sókn­ar­vinnu Stund­ar­innar vegna umfjöll­unar um vændis­kaupa hans á árunum 2016-2018, sem studd er gögnum sem sýna meðal ann­ars sam­skipti konu og Einars í skila­boðum á Facebook. Stundin hefur rætt við kon­una sem nú er á bata­vegi eftir langvar­andi fíkni­efna­neyslu. Hún seg­ist hafa leiðst út í vændi til að fjár­magna …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Maria Finnbogadottir skrifaði
    þetta er nú alveg frábært, vændi er ólöglegt, og svakalega er maðurinn siðlaus að vera svo formaður samtakana,þvilíkur viðbjóður
    en frábært að það komst upp , greinilega engum treystandi i þessu þjóðfélagi
    0
  • Jón Ölver Magnússon skrifaði
    Svona týpur komast helst til áhrifa á þessu skeri. Rannsóknar efni hvað það er veldur því.
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Hann er ekki sá fyrsti og ekki sá síðasti sem misnotar fíkil. FÍKLUM er ekki sjálfrátt og það vitum við.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rannsókn á SÁÁ

Stjórnendur SÁÁ bera ábyrgð á þjónustunni en ekki starfsfólkið segir forstjóri SÍ
Fréttir

Stjórn­endur SÁÁ bera ábyrgð á þjón­ust­unni en ekki starfs­fólkið segir for­stjóri SÍ

María Heim­is­dóttir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga segir að nið­ur­staða í máli SÁÁ sé fengin eftir ítar­lega skoðun og SÍ hafi verið skylt að til­kynna málið til hér­aðs­sak­sókn­ara. Ábyrgð á þjón­ust­unni sé alfarið stjórn­enda SÁÁ en ekki ein­stakra starfs­manna. Hún segir afar ómak­legt að Ari Matth­í­as­son, starfs­maður Sjúkra­trygg­inga hafi verið dreg­inn inn í umræð­una og sak­aður um ómál­efna­leg sjón­ar­mið.
Stjórn SÁÁ lýsir fullu trausti til framkvæmdastjórnar SÁÁ
Fréttir

Stjórn SÁÁ lýsir fullu trausti til fram­kvæmda­stjórnar SÁÁ

Auka­fundi stjórnar SÁÁ sem boðað var til vegna nið­ur­stöðu Sjúkra­trygg­inga Íslands lauk rétt í þessu. Á fund­inum var lýst yfir fullu trausti á fram­kvæmda­stjórn SÁÁ, stjórn­endur og starfs­fólk sam­tak­anna. Í ályktun sem sam­þykkt var segir meðal ann­ars, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, að aðgerðir SÍ gegn SÁÁ hafi verið yfir­drifnar og rýri traust almenn­ings á sam­tök­unum.
Segja yfirlýsinguna ekki í nafni alls starfsfólks SÁÁ
Fréttir

Segja yfir­lýs­ing­una ekki í nafni alls starfs­fólks SÁÁ

Yfir­lýs­ing frá starfs­fólki SÁÁ var ekki borin undir allt starfs­fólk sam­tak­anna áður en hún var send til fjöl­miðla í gær, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. „Hún var skrifuð fyrir okkar hönd án okkar vit­undar,“ segir starfs­maður sem Stundin ræddi við. Fleira starfs­fólk sem rætt var við tók í sama streng en aðrir sögð­ust treysta stjórn SÁÁ til að tala fyrir hönd starfs­fólks enda sé það gert í góðri trú.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár