Fréttamál

Rannsókn á SÁÁ

Fréttir

Stjórn­endur SÁÁ bera ábyrgð á þjónustunni en ekki starfs­fólkið segir forstjóri SÍ

María Heimis­dóttir, forstjóri Sjúkra­trygginga segir að niður­staða í máli SÁÁ sé fengin eftir ítarlega skoðun og SÍ hafi verið skylt að tilkynna málið til héraðs­saksóknara. Ábyrgð á þjónustunni sé alfarið stjórn­enda SÁÁ en ekki einstakra starfs­manna. Hún segir afar ómaklegt að Ari Matthíasson, starfs­maður Sjúkra­trygginga hafi verið dreginn inn í umræðuna og sakaður um ómálefnaleg sjónarmið.

9 mín. lestur

Fréttir

Stjórn SÁÁ lýsir fullu trausti til framkvæmda­stjórnar SÁÁ

Aukafundi stjórnar SÁÁ sem boðað var til vegna niður­stöðu Sjúkra­trygginga Íslands lauk rétt í þessu. Á fundinum var lýst yfir fullu trausti á framkvæmda­stjórn SÁÁ, stjórn­endur og starfs­fólk samtak­anna. Í ályktun sem samþykkt var segir meðal annars, samkvæmt heimildum Stundarinnar, að aðgerðir SÍ gegn SÁÁ hafi verið yfir­drifnar og rýri traust almennings á samtökunum.
Fréttir

Segja yfir­lýsinguna ekki í nafni alls starfs­fólks SÁÁ

Yfir­lýsing frá starfs­fólki SÁÁ var ekki borin undir allt starfs­fólk samtak­anna áður en hún var send til fjölmiðla í gær, samkvæmt heimildum Stundarinnar. „Hún var skrifuð fyrir okkar hönd án okkar vitundar,“ segir starfs­maður sem Stundin ræddi við. Fleira starfs­fólk sem rætt var við tók í sama streng en aðrir sögðust treysta stjórn SÁÁ til að tala fyrir hönd starfs­fólks enda sé það gert í góðri trú.
Fréttir

Stjórn SÁÁ boðuð á aukafund vegna kröfu Sjúkra­trygginga um 174 milljóna króna endur­greiðslu

Nokkrir í 48 manna aðal­stjórn SÁÁ gagnrýna að hafa ekki fengið að sjá bréf eftirlits­deildar Sjúkra­trygginga Íslands þar sem gerðar eru alvarlegar athuga­semdir við þúsundir reikninga frá SÁÁ. Samtökunum er gert að endur­greiða Sjúkra­tryggingum 174 milljónir króna. Einar Hermannsson, formaður SÁÁ, hefur boðað stjórn samtak­anna á aukafund í næstu viku vegna málsins.
Fréttir

Sjúkra­tryggingar krefja SÁÁ um 174 milljónir í endur­greiðslu

Eftirlits­deild Sjúkra­trygginga Íslands gerir alvarlegar athuga­semdir við þúsundir reikninga frá SÁÁ. Dæmi sé um að ráðgjafi hafi hringt í skjólstæðing til að tilkynna lokun göngu­deilda en skráð símtalið sem ráðgjafa­viðtal og rukkað Sjúkra­tryggingar í samræmi við það. Málið er komið inn á borð Land­læknis. Formaður SÁÁ segir framkvæmda­stjórnina hafna niður­stöðu Sjúkra­trygginga og kallar hana „tilefnis­lausar ásakanir“.

13 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár