Framkvæmdastjórn SÁÁ slegin vegna lögreglukæru

„Framkvæmda­stjórn SÁÁ harmar þann farveg sem málið er komið í,“ segir í tilkynningu framkvæmda­stjórnar SÁÁ sem Einar Hermannsson, formaður samtak­anna, sendi fjöl­miðlum. Sjúkra­tryggingar Íslands kærðu samtökin til embættis héraðs­saksóknara fyrir „gríðarlegt magn“ tilhæfu­lausra reikninga.

Sleginn
Sleginn Einar Her­manns­son, for­maður SÁÁ, er sleg­inn, líkt og hinir í fram­kvæmda­stjórn sam­tak­anna, yfir nið­ur­stöðu Sjúkra­trygg­inga Íslands um að kæra sam­tökin til hér­aðs­sak­sókn­ara.

„Framkvæmda­stjórn SÁÁ er slegin yfir þeirri stöðu sem upp er komin,“ segir í tilkynningu Einars Hermanns­sonar, formanns SÁÁ fyrir hönd framkvæmda­stjórnar samtak­anna, til fjölmiðla í morgun. Tilefnið er kæra Sjúkra­tryggingar til embættis héraðs­saksóknara fyrir „gríðarlegt magn“ tilhæfu­lausra reikninga og vanefnda á þjónustu. Stofnunin hefur líka krafið SÁÁ um endur­greiðslu 175 milljóna króna vegna málsins. 

Í yfir­lýsingu SÁÁ segir að ekki hafi verið tekið tillit til skýringa samtak­anna í niður­stöðu eftirlits­deildar Sjúkra­trygginga. 

Stundin fjallaði ítarlega um málið í síðasta tölublaði sem og í gær, þar sem ásakanir Sjúkra­trygginga voru raktar. Þar kom meðal annars fram að athuga­semdir SÁÁ við niður­stöðu eftirlits­deildar Sjúkra­trygginga breyttu engu um þá niður­stöðu að sam­tök­in hafi sent gríð­ar­legt magn af til­hæfu­laus­um reikn­ing­um. Sjúkra­tryggingar kynntu samtökunum niður­stöðu sína í tíu blaðsíðna bréfi sem sent var 29. desember síðastliðinn en kæra vegna málsins barst embætti héraðs­saksóknara öðru hvoru megin við helgi. 

Í tilkynningu SÁÁ …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rannsókn á SÁÁ

Fréttir

Stjórn­endur SÁÁ bera ábyrgð á þjónustunni en ekki starfs­fólkið segir forstjóri SÍ

María Heimis­dóttir, forstjóri Sjúkra­trygginga segir að niður­staða í máli SÁÁ sé fengin eftir ítarlega skoðun og SÍ hafi verið skylt að tilkynna málið til héraðs­saksóknara. Ábyrgð á þjónustunni sé alfarið stjórn­enda SÁÁ en ekki einstakra starfs­manna. Hún segir afar ómaklegt að Ari Matthíasson, starfs­maður Sjúkra­trygginga hafi verið dreginn inn í umræðuna og sakaður um ómálefnaleg sjónarmið.

9 mín. lestur

Fréttir

Segja yfir­lýsinguna ekki í nafni alls starfs­fólks SÁÁ

Yfir­lýsing frá starfs­fólki SÁÁ var ekki borin undir allt starfs­fólk samtak­anna áður en hún var send til fjölmiðla í gær, samkvæmt heimildum Stundarinnar. „Hún var skrifuð fyrir okkar hönd án okkar vitundar,“ segir starfs­maður sem Stundin ræddi við. Fleira starfs­fólk sem rætt var við tók í sama streng en aðrir sögðust treysta stjórn SÁÁ til að tala fyrir hönd starfs­fólks enda sé það gert í góðri trú.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár