Stundin hefur í dag fjallað ítarlega um skoðun eftirlitsdeildar Sjúkratrygginga á starfsháttum SÁÁ og niðurstöðu þeirrar skoðunar en í henni eru meðal annars gerðar alvarlegar athugasemdir við þúsundir reikninga sem samtökin sendu til Sjúkratrygginga og fengu greidda og standast ekki skoðun að mati eftirlitsdeildar Sjúkratrygginga Íslands. Stundin óskaði eftir því við Sjúkratryggingar Íslands að fá afrit af bréfinu í byrjun vikunnar og hefur það verið samþykkt hjá SÍ en SÁÁ þarf að gefa leyfi til að bréfið verði afhent og Einar Hermannsson, formaður SÁÁ sagði í samtali við Stundina að frestur sem SÁÁ fær til að afhenda bréfið verði nýttur og því verði það ekki afhent fyrr en 17. janúar næstkomandi. Hann staðfesti hins vegar að gerðar væru alvarlegar athugasemdir við þúsundir reikninga sem samtökin sendu til Sjúkratrygginga og fengu þá greidda. Nú sé þeim gert að endurgreiða Sjúkratryggingum Íslands 174 milljónir króna. Málið er komið inn á borð Landlæknis.
…Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Sjá einnig
Sjúkratryggingar krefja SÁÁ um 174 milljónir í endurgreiðslu
rstöðu eftirlitsdeildarinnar frá í lok desember sé stílað á SÁÁ en berist til Einars Hermannssonar formanns. Því sé ekki hægt að líta svo á að bréfið sé til formanns heldur sé það til allrar stjórnar SÁÁ og honum beri skylda til að afhenta aðalstjórninni það umsvifalaust."
Sömu vinnubrögð og Eflingarforystan fyrrum notaði !!