Með óbragð í munni yfir að vændiskaupandi stýri SÁÁ

„Ég var hræði­lega veik,“ segir kona sem birtir sam­skipti sín við Einar Her­manns­son frá­far­andi for­mann SÁÁ og lýsir því að hann hafi greitt fyrir afnot af lík­ama hennar á árunum 2016 til 2018. Á þeim tíma sem hann keypti vændi var hann í stjórn sam­tak­anna.

Með óbragð í munni yfir að vændiskaupandi stýri SÁÁ

„SÁÁ hefur oft verið til staðar fyrir mig og ég get bara ekki setið aðgerð­ar­laus hjá,“ segir kona sem segir hér frá reynslu sinni af vændi og afleið­ingum þess, en hún greinir frá því að á meðal þeirra sem keyptu af henni vændi var frá­far­andi for­maður SÁÁ, Einar Her­manns­son. 

Að und­an­förnu hefur Stundin fjallað ítar­lega um nið­ur­stöðu Sjúkra­trygg­inga Íslands í máli er varðar SÁÁ, sem stofn­unin hefur krafið um 175 millj­óna króna end­ur­greiðslu. Meðal við­mæl­enda í þeirri umfjöllun var Einar Her­manns­son, sem hefur nú sagt af sér for­mennsku fyrir sam­tökin vegna vænd­is­máls. Í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér í gær sagð­ist hann hafa svarað aug­lýs­ingu á net­inu fyrir nokkrum árum þar sem í boði hafi verið kyn­líf gegn greiðslu, eða eins og hann orðar það: „Fyrir nokkrum árum svar­aði ég aug­lýs­ingu á net­inu þar sem í boði var kyn­líf gegn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Davíð Viðarsson skrifaði
    Boð og bönn. Ég er einn af þeim sem hef ætíð verið móti vændi og hef ætíð fundið til með því kvenfólki sem er að selja not af líkama sínum. Því meira sem maður hugsar þetta og leggst dýpra í að hugsa út í þessa strarfsgrein því það er ekki annað hægt og hjá því komist lengur en að viðurkenna þetta sem starf enda með elstu störfum sem um getur enda er þetta fullt starf hjá sumum konum án þess að þær hafi verið neyddar út í þessa yðju á nokkurn hátt einungist að þarna virðast liggja auðunnir peningar. Mér finnst orðið tímabært að vændi verði leyft því það er einungis barnalegt að yfirvöldum að reyna sporna við þessari yðju,það væri mikið frekar að þetta verði alfarið gert leyfilegt sé haft upp á yfirborðinu og þá fyrst er hægt að fylgjast með þessari starfsemi og fylgjast með þessum konum sem eru að starfa við þessa grein hvort sem þær eru þarna á eiginvegum eða sé verið að neyða þær út í þetta á einhvern hátt. Ég er á því að að mega auglýsa vændi enn karlmaður megi ekki versla það sé ekki að virka á nokkurn hátt þetta er með því fáranlegasta sem maður hefur heyrt í langan tíma svo satt skal segja gerist það varla mikið heimskulegra. Það er kominn tími til aðstjórnvöld og okkur almenning að hætta öllum tepruskap og viðurkenna að þessi neðanjarðar starfsemi verður ekki stöðvuð og stærstu mistökin sem gerð hafa verið eru þau að reynt sé að fela að vændi því svo virðist vera sem það þrífist hér góðu lífi ég er á því að það sé kominn tími til fyrir okkur að horfa á þá staðreynd að ógjörningur er fyrir yfirvöld að reyna sporna stigum við því.
    0
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Ég er ekki sannfærður um að drykkjsjúklingar sem hafa farið í meðferð séu endilega til þess fallnir að leiðbeina öðrum. Ég held að fagfólk ráði betur við þetta. Einkareknar meðferðarstofnanir reknað af áhugamönnum virðast alltaf lenda í því að einhver sjálfskipaðu sérfræðingur reynist áhugamaður um misnotkun
    1
  • Siggi Sjómaður skrifaði
    Piff, þið getið alveg eins hafa búið þetta bull allt til sjálf, þurfið engar sannanir áður en þið skundið til aftöku. Piff
    -1
  • Inga Gestsdóttir skrifaði
    Mínimum krafa fyrir samtök sem eiga að vera að aðstoða einstaklinga með fíknisjúkdóma að formaðurinn sé ekki að nýta sér neyð þeirra og beita skjólstæðinga samtakana ofbeldi. Bara basic, en svona er þetta einstaklingar sem nýta sér neyð og viðkvæmni annarra koma sér í stöður þar sem þau hafa beinan aðgang af þeim. Mestu aumingjar (mín skoðun) eru þeir sem níðast á "minni máttar" fólk sem sér neyð og ákveður að nýta sér hana. Ógeðlegt mál og skömm fyrir SÁÁ.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Hjalteyrar hjónin Byrgið Krossin Mótorsmiðjan,og svo SÁÁ sem ég hef beðið eftir að myndi skandelesera,þau leikmannasamtök sem rekin hafa verið fyrir almanna fé af leikmönnum og eru ekki nemd bið ég afsökunar á gleymsku minni.Allt er þetta dæmi um leikmenn og leikmannasamtök sem fá völd og almana fé ,slíkarstofnanir eiga að vera reknar að heilbrigðis starsfólki sem hægt er að gera meiri kröfur til en okkar fyrverandi sjúklinga sem getur alltaf SLEGIÐNIÐUR aftur.
    1
  • GJ
    Guðrún Júlíusdóttir skrifaði
    Af hverju eru karlmenn svona raunveruleikafyrrtir í sambandi við kynlíf að reyna að breiða yfir glæpi sína, með því að gera lítið úr þeim og hreinlega ljúga?
    0
  • BS
    Bylgja Sigurjónsdóttir skrifaði
    🤬
    0
  • Karen Linda skrifaði
    Svona er raunveruleikinn í vændis heiminum. Konur að fjármagna neyslu eða framfærslu útaf fátækt. Vændi er og verður alltaf ofbeldi gegn konum.
    1
  • Gunnar Pétur Jónsson skrifaði
    Frábært blað !
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rannsókn á SÁÁ

Stjórnendur SÁÁ bera ábyrgð á þjónustunni en ekki starfsfólkið segir forstjóri SÍ
Fréttir

Stjórn­endur SÁÁ bera ábyrgð á þjón­ust­unni en ekki starfs­fólkið segir for­stjóri SÍ

María Heim­is­dóttir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga segir að nið­ur­staða í máli SÁÁ sé fengin eftir ítar­lega skoðun og SÍ hafi verið skylt að til­kynna málið til hér­aðs­sak­sókn­ara. Ábyrgð á þjón­ust­unni sé alfarið stjórn­enda SÁÁ en ekki ein­stakra starfs­manna. Hún segir afar ómak­legt að Ari Matth­í­as­son, starfs­maður Sjúkra­trygg­inga hafi verið dreg­inn inn í umræð­una og sak­aður um ómál­efna­leg sjón­ar­mið.
Stjórn SÁÁ lýsir fullu trausti til framkvæmdastjórnar SÁÁ
Fréttir

Stjórn SÁÁ lýsir fullu trausti til fram­kvæmda­stjórnar SÁÁ

Auka­fundi stjórnar SÁÁ sem boðað var til vegna nið­ur­stöðu Sjúkra­trygg­inga Íslands lauk rétt í þessu. Á fund­inum var lýst yfir fullu trausti á fram­kvæmda­stjórn SÁÁ, stjórn­endur og starfs­fólk sam­tak­anna. Í ályktun sem sam­þykkt var segir meðal ann­ars, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, að aðgerðir SÍ gegn SÁÁ hafi verið yfir­drifnar og rýri traust almenn­ings á sam­tök­unum.
Segja yfirlýsinguna ekki í nafni alls starfsfólks SÁÁ
Fréttir

Segja yfir­lýs­ing­una ekki í nafni alls starfs­fólks SÁÁ

Yfir­lýs­ing frá starfs­fólki SÁÁ var ekki borin undir allt starfs­fólk sam­tak­anna áður en hún var send til fjöl­miðla í gær, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. „Hún var skrifuð fyrir okkar hönd án okkar vit­undar,“ segir starfs­maður sem Stundin ræddi við. Fleira starfs­fólk sem rætt var við tók í sama streng en aðrir sögð­ust treysta stjórn SÁÁ til að tala fyrir hönd starfs­fólks enda sé það gert í góðri trú.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár