Nýr heilbrigðisráðherra ítrekað reynt að heimila rekstur spilavíta

Willum Þór Þórsson sem tek­inn er við sem heil­brigð­is­ráð­herra hefur í þrí­gang lagt fram frum­varp sem myndi heim­ila rekstur spila­víta. Rann­sóknir benda til að spila­víti hafi veru­legan hluta tekna sinna frá fólki með spilafíkn. Litið er á spilafíkn sem lýð­heilsu­vanda.

Nýr heilbrigðisráðherra ítrekað reynt að heimila rekstur spilavíta
Taldi spila­víti jákvæð fyrir ferða­þjón­ust­una Willum lagði fram frum­varp sitt byggt á skýrslum áhuga­manna um rekstur spila­víta. Í umsögnum var á það bent að flest benti til að eng­inn sér­fróður aðili um spilafíkn hefði komið að samn­ingu frum­varps­ins. Mynd: Heiða Helgadóttir

Willum Þór Þórsson, nýr heil­brigð­is­ráð­herra, hefur í þrí­gang lagt fram frum­varp í því skyni að heim­ila rekstur spila­víta hér á landi. Frum­varpið lagði hann fram í tvígang árið 2014 og í þriðja skiptið árið 2015. Það náði ekki fram að ganga.

Rann­sóknir benda til að veru­legur hluti tekna spila­víta komi frá þeim sem eiga við spilafíkn að stríða. Litið er á spilafíkn sem lýð­heilsu­vanda og hefur Lýð­heilsu­sjóður, sem heil­brigð­is­ráð­herra skipar stjórn yfir, á síð­ustu þremur árum veitt tæpum 3,5 millj­ónum til for­varn­ar­starfs, með­ferðar og rann­sókna á spilafíkn.

Rann­sóknir á spila­vanda 16 til 18 ára ung­menna hér á landi sýnir að spila­vandi er á bil­inu 2-3 pró­sent. Árið 2012 sýndi rann­sókn fram á að 2,5 pró­sent þjóð­ar­innar glímdi við spila­vanda. Í mars á þessu ári lagði Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, fram frum­varp á Alþingi sem gerði ráð fyrir að bann yrði sett við rekstri spila­kassa. Í umsögn við frum­varpið frá emb­ætti Land­læknis kom fram að land­læknir styddi bann við spila­kössum. Í umsögn­inni sagði meðal ann­ars að erlendar rann­sóknir á spilafíkn sýndu „að þátt­taka í spila­kössum sé sú teg­und fjár­hættu­spila sem teng­ist helst spilafikn“. Enn fremur var vísað til sænskrar rann­sóknar sem sýndi að um 70 pró­sent af veltu frá spila­könnum kæmi frá fólki með spila­vanda. Í spila­vítum eru spila­kassar alla jafna stór hluti þeirra fjár­hættu­spila sem boðið er upp á.

Á síð­ustu þremur árum hefur Lýð­heilsu­sjóður, sem lögum sam­kvæmt er ætlað að styrkja lýð­heilsu­starf, úthlutað tæpum 3,5 millj­ónum króna til sam­taka sem vinna gegn spilafíkn og til rann­sókna á spilafíkn. Heil­brigð­is­ráð­herra skipar stjórn sjóðs­ins og fjár­munir hans koma frá hlut­falli af áfeng­is­gjaldi, af tóbaks­sölu og með fram­lagi úr rík­is­sjóði af fjár­lögum.

„Þetta smellpassar fyrir Reykja­vík“
Willum Þór Þórsson
í við­tali um fram­varpið árið 2014

Í frétt Vísis frá árinu 2014, um frum­varp sem heim­ila myndi rekstur spila­víta, lýsti Willum því að spila­víti myndi styrkja íslenska ferða­þjón­ustu. „Þetta smellpassar fyrir Reykja­vík,“ sagði Willum. Þar kom einnig fram að frum­varpið byggði á tveimur skýrslum sem einka­að­ilar og áhuga­menn um rekstur spila­víta. Önnur þeirra var unnin fyrir tví­bura­bræð­urna Arnar og Bjarka Gunn­laugs­syni, fyrr­ver­andi knatt­spyrnu­menn, en þeir höfðu þegar árið 2010 sýnt því áhuga að opna hér á landi spila­víti. Þeim bræðrum hafði Willum kynnst sem knatt­spyrnu­þjálf­ari. „Þeir mös­uðu mikið um þetta þegar ég var að þjálfa.“

Frumvarpinu slátrað í umsögnum

Frumvarp Willums fékk ekki umfjöllun á Alþingi fyrr en í þriðja skiptið sem það var lagt fram en þá má með allri sann­girni segja að því hafi verið slátrað í umsögnum. Málið var svæft í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd árið 2016.

Átján umsagnir bár­ust um frum­varpið. Flestar voru þær frá aðilum sem segja má að hefðu orðið sam­keppn­is­að­ilar spila­víta, það er aðilum sem reka happ­drætti og spila­kassa hér á landi nú þegar. Þá bár­ust athuga­semdir frá eig­endum slíkra happ­drætta einnig. Í flestum til­vikum lýstu umsagn­irnar and­stöðu við frum­varpið á for­sendum þess að með því yrði vegið að „sam­fé­lags­sátt­mála“ um rekstur pen­inga­spila á Íslandi, sem gengi út á að um ára­tuga­skeið hefði ríkt sátt um það að hagn­aði af pen­inga­spilum væri varið til góð­gerð­ar­mála hér á landi.

„Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu er ekki gerð grein fyrir afleið­ingum spila­halla á spilafíkn“
úr umsögn Happ­drættis SÍBS

Í umsögnum þeirra aðila sem sáu fram á að lenda í sam­keppni við spila­víti, yrði frum­varpið að lögum, var þó í sumum til­fellum vísað til hætt­unnar af því að heim­ila slíka starf­semi þegar kemur að spilafíkn. Þannig sagði í umsögn Happ­drættis SÍBS: „Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu er ekki gerð grein fyrir afleið­ingum spila­halla á spilafíkn; hvorki er vísað í inn­lendar rann­sóknir né fylgir frum­varp­inu grein­ing á núver­andi stöðu svo mæla megi áhrifin verði frum­varpið að veru­leika.“ Í umsögn Íslands­spila var einnig vakin athygli á sömu áhættu­þáttum og Íslensk get­spá og Íslenskar get­raunir voru á sömu nótum í umsögn sinni.

Sagt að frumvarpið bæri engin merki þess að sérfræðingar hefðu komið að því

Fasta­nefnd á sviði happ­drætt­is­mála skil­aði einnig inn umsögn um frum­varpið. Í nefnd­inni sitja full­trúar þeirra félaga sem þegar halda úti pen­inga­spilum hér á landi, auk þess sem í henni situr full­trúi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Í umsögn nefnd­ar­innar var fjallað um þá hættu að ef frum­varpið yrði sam­þykkt setti það rekstur þeirra fyr­ir­tækja sem um ræðir í upp­nám en einnig var vísað til mögu­legrar skað­semi spila­víta þegar kæmi að pen­inga­þvætti og spilafíkn. „Alvar­leg­ustu ann­mark­arnir þó fólgnir í þeirri léttúð sem umfjöllun um mögu­lega skað­semi af starf­semi spila­hallar fær í frum­varp­inu. Frum­varpið ber þess engin merki að sér­fræð­ingar með þekk­ingu á pen­inga­þvætti eða spilafíkn hafi komið að vinnu þess. Má sjá þess glögg merki að svo gott sem engrar þekk­ingar hafi verið aflað á þessum alvar­legu áhættu­þáttum við mögu­lega starf­semi spila­halla hér á landi.“

Eini aðil­inn sem skil­aði inn umsögn sem segja má að hafi ekki átt við­skipta­legra hags­muna að gæta var Sál­fræði­deild Heil­brigð­is­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands en umsögn­ina rit­aði Dr. Daníel Þór Ólason. Umsögn Daníels er ítar­leg en hann hefur um langt ára­bil rann­sakað spila­hegðun og algengi spila­vanda, eins og það er nefnt.

„Spila­hallir munu því lík­lega auka á vanda þessa hóps“
Dr. Daníel Þór Ólason
um vanda þeirra sem glíma við spilafíkn

Í stuttu máli var það nið­ur­staða Daníels að með opnun spila­víta myndi fram­boð af pen­inga­spilum aukast og nýjar gerðir pen­inga­spila verði aðgengi­legar, spil á borð við póker og rúl­lettu til að mynda. „Það sem ein­kennir þessar teg­undir pen­inga­spila er sam­felld spila­mennska með til­tölu­lega miklum spila­hraða og tíðri end­ur­gjöf vinn­inga en nið­ur­stöður erlendra rann­sókna benda til að slík pen­inga­spil hafi að öllu jöfnu sterk­ari tengsl við spila­vanda en aðrar teg­undir.“

Þá segir einnig í umsögn Daníels að erlendar rann­sóknir bendi til þess að 30 til 60 pró­sent tekna spila­kassa og borð­spila á borð við rúl­lettu, 21 og póker komi „úr vasa þess fámenna hóps sem á við spila­vanda að stríða. Engin ástæða er til að halda að það verði öðru­vísi hér á landi og ekki ólík­legt að til­vist spila­halla muni leiða til þess að þeir sem eiga við vanda að stríða muni leita í meira mæli eftir þeirri þjón­ustu sem þar er í boði. Spila­hallir munu því lík­lega auka á vanda þessa hóps.“

Spila­víti myndu auka á vanda spilafíklaDr. Daníel Þór Ólason hefur um áraraðir rann­sakað spila­hegðun og spila­vanda. Í umsögn um frum­varp Willums mælti hann ein­dregið gegn því að það yrði að lögum.

Aðeins ferðaþjónustan var jákvæð

Í umsögn Háskóla Íslands var vísað til umsagnar Dr. Daníels og ein­dregið varað við að það yrði að lögum. „Verði frum varpið að lögum eru líkur á að spila­vandi auk­ist m eð til­heyr­andi kostn­aði fyrir sam félagið.“

Aðeins ein umsögn um frum­varpið var á jákvæðum nótum. Var það umsögn Samtök ferða­þjón­ust­unnar en í henni sagði að það að heim­ila starf­semi spila­víta væri að mati sam­tak­anna  „jákvætt skref í þróun afþrey­ingar hér á landi.“

Ekki náð­ist í Willum við vinnslu frétt­ar­innar.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Það verður fróðlegt að fylgjast með Wilhelm með spilavítin og Áslaugu Örnu með vínið í búðir ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár