Fimm ára bið eftir reglum um starfslokasamninga

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra gerði starfs­loka­samn­ing við for­mann kæru­nefndar útlend­inga­mála sem hugð­ist hætta. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur ekki sett reglu­gerð um slíka samn­inga síðan lög sem kveða á um slíkt voru sam­þykkt árið 2016.

Fimm ára bið eftir reglum um starfslokasamninga
Bjarni Bene­dikts­son og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Fjár­mála­ráð­herra hefur ekki sett reglu­gerð um starfs­loka­samn­inga, en dóms­mála­ráð­herra hefur gert minnst tvo slíka samn­inga við emb­ætt­is­menn síð­ustu tvö ár. Mynd: Pressphotos

Reglu­gerð um starfs­loka­samn­inga, sem Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra ber að setja sam­kvæmt lögum sem tóku gildi árið 2016, hefur enn ekki verið sett. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra gerði í vor starfs­loka­samn­ing við Hjört Braga Sverr­is­son, frá­far­andi for­mann kæru­nefndar útlend­inga­mála, þrátt fyrir að hann hefði til­kynnt um yfir­vof­andi starfs­lok og að hann myndi biðj­ast lausnar.

„Umræddar reglur eru í vinnslu og er gert ráð fyrir að þær verði birtar á næst­unni,“ segir í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Í starfs­loka­samn­ingi Hjartar Braga, sem ráðu­neytið afhenti Stund­inni, kemur fram að hann fær full laun út febr­úar 2022, þrátt fyrir að hafa til­kynnt 15. apríl síð­ast­lið­inn að hann hefði þegið nýtt starf erlendis. Verði laun nýs for­manns kæru­nefndar útlend­inga­mála hækkuð á þessu tíma­bili munu laun og kjör Hjartar Braga einnig hækka. Samn­ing­ur­inn hljóðar þannig upp á 10 mán­aða launa­greiðslur, en almennur upp­sagn­ar­frestur emb­ætt­is­manna er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár