Tillögur Flokks fólksins í skattamálum kosta ríkissjóð á annað hundrað milljarða

Flokkur fólks­ins vill hækka skatt­leys­is­mörk í 350 þús­und krónur. Ef það yrði nið­ur­staðan myndu tekjur rík­is­ins skerð­ast gríð­ar­lega. Ekkert er í hendi með hvernig á að mæta slíkum tekju­sam­drætti en flokk­ur­inn lofar að „fjár­magna kosn­inga­lof­orðin“. Sé rýnt í þau lof­orð fæst ekki séð hvernig á að standa við þau.

Tillögur Flokks fólksins í skattamálum kosta ríkissjóð á annað hundrað milljarða
Kosta hund­ruð millj­arða Kosn­inga­lof­orð Flokks fólks­ins myndu kosta hið opin­bera óheyri­lega háar fjár­hæðir, yrðu þau að veru­leika. Mynd: Flokkur fólksins

Ef kosn­inga­lof­orð Flokks fólks­ins um hækkun á skatt­leys­is­mörkum launa­tekna myndi verða að veru­leika gæti það skert tekjur rík­is­sjóðs um á annað hund­rað millj­arða króna. Heild­ar­tekjur hins opin­bera á síð­asta ári námu 1.246 millj­örðum króna.

Í stefnu­skrá Flokks fólks­ins segir að lág­marks fram­færsla eigi að verða 350 þús­und krónur. Skatt­leys­is­mörk verði færð upp í þá sömu upp­hæð en með því myndu skatt­leys­is­mörk launa­tekna hækka um tæpar 182 þús­und krónur og skatt­leys­is­mörk líf­eyr­is­tekna hækka um 188.500 krónur.

Í sept­em­ber 2018 var birt skýrsla um jöfnuð í skatt­kerf­inu sem dr. Haukur Arn­þórs­son vann fyrir Flokk fólks­ins. Þar var í útreikn­ingum miðað við að ef skatt­leys­is­mörk yrðu 300 þús­und krónur, með háuum en fallandi per­sónu­af­slætti, myndi hið opin­bera verða af 32 millj­örðum króna en að sama skapi myndi skatt­byrði þeirra sem lægstar hafa tekj­urnar minnka um allt að 54 millj­arða króna. Til­færsla skatt­byrði tekju­lágra til tekju­hárra yrði um 22 millj­arðar króna. Ekki er að finna útreikn­ing á því hversu mikið tekju­tap hins opin­bera yrði ef miðað er við 350 þús­und króna skatt­leys­is­mörk en það yrði veru­lega mikið meira.

Í svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar, þing­manns Flokks fólks­ins, frá því í sept­em­ber árið 2018 kemur hins vegar fram að yrðu skatt­leys­is­mörk atvinnu­tekna hækkuð í 300 þús­und krónur á mán­uði hefði rík­is­sjóður orðið af 149,3 millj­örðum króna í tekjur árið 2017. Álagning tekju­skatts á ein­stak­linga árið 2017 var 168 millj­arðar króna og hefðu skatt­leys­is­mörk verið 300 þús­und krónur það ár hefði tekju­skattur rýrnað um 89 pró­sent.

Loforð án útfærslna rauði þráðurinn

Flokkur fólks­ins vill sömu­leiðis að skerð­ingar í almanna­trygg­inga­kerf­inu verði afnumdar af atvinnu­tekjum undir 350 þús­und krónum. Þá hyggst flokk­ur­inn hækka frí­tekju­mark elli­líf­eyris vegna líf­eyr­is­tekna úr 25 þús­und krónum í 100 þús­und krónur og að skerð­ingar á elli­líf­eyri vegna atvinnu­tekna verði afnumdar. Ekki kemur fram hvaða kostn­aður myndi hljót­ast af þeim aðgerðum.

Samkvæmt svari Ásmundar Einars Daða­sonar, félags- og barna­mála­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Ingu Sæland, for­manns Flokks fólks­ins, í apríl árið 2019, myndu tekjur rík­is­sjóðs skerð­ast um 16 millj­arða króna ef skerð­ingar ef frí­tekju­mark líf­eyr­is­tekna yrði fært í 100 þús­und krónur. 

Tryggja á öldruðum búsetu­ör­yggi í dvalar- og hjúkr­un­ar­rýmum, að því er segir í stefnu Flokks fólks­ins. Í stefnu flokks­ins kemur ekki fram með hvaða hætti það verði gert, hver talin sé þörfin á upp­bygg­ingu dvalar- og hjúkr­un­ar­rýma í bráð og lengd né heldur hversu kostn­að­ar­söm slík upp­bygg­ing geti orðið. Þá vill flokk­ur­inn að hjálp­ar­tæki verði und­an­þegin virð­is­auka­skatti og að aldr­aðir haldi fullum yfir­ráðum yfir eigin fjár­málum.

Tillögur Flokks fólksins myndu kollvarpa lífeyrissjóðakerfinu

Flokkur fólks­ins vill að líf­eyr­is­rétt­indi erf­ist við and­lát. Með því yrði horfið frá því sam­trygg­ing­ar­kerfi sem núver­andi líf­eyr­is­sjóðs­kerfi bygg­ist að mestu leyti á og í stað þess tekið upp hreint sér­eign­ar­kerfi. Í umsögn Lands­sam­bands eldri borg­ara (LEB) frá því í nóv­em­ber 2020, um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Flokks fólks­ins í þessa veru, segir að það sé „Ijóst að mati LEB að ekki er hægt að taka upp erfða­rétt í sam­trygg­ingu miðað við þau lög og reglur sem líf­eyr­is­sjóðir starfa eftir, enda er um rétt­indi að ræða en ekki eign við­kom­andi sjóð­fé­laga.“

Allir öryrkjar fái þá heim­ild til að reyna fyrir sér á vinnu­mark­aði í tvö ár án nokk­urra skerð­inga á líf­eyr­is­greiðslum. „Við hvetjum ein­stak­ling­inn til sjálfs­bjargar og munum aldrei refsa þeim né skerða tekjur þeirra, sem vilja og geta bjargað sér að ein­hverju leyti sjálfir.“

Flokkur fólks­ins hyggst afnema verð­trygg­ingu hús­næð­is­lána og jafn­framt verði almenn­ingi heim­ilt að end­ur­fjár­magna verð­tryggð lán með óverð­tryggðum lánum án þess að und­ir­gang­ast láns­hæfis- og greiðslu­mat. „Við ætlum að afnema með öllu him­inhá upp­greiðslu­gjöld á lána­samn­ingum sem Íbúða­lána­sjóður gerði á sínum tíma,“ segir einnig í stefn­unni.

Flokk­ur­inn hyggst þá berj­ast gegn hús­næð­is­skorti með því að „skapa hvata til auk­innar upp­bygg­ingar á nýju hús­næði“. Ekki kemur fram hverjir þeir hvatar eigi að verða.

„Kvótann aftur heim og fullt verð fyrir aðgang að sjáv­ar­auð­lind­inni!“

Flokkur fólks­ins hyggst tryggja fjár­mögnun heil­brigð­is­kerf­is­ins að fullu og útrýma öllum biðlistum eftir nauð­syn­legri heil­brigð­is­þjón­ustu. Hvernig það verður gert skýrir flokk­ur­inn ekki og gerir ekki til­raun til að leggja mat á hvaða kostn­aður myndi fylgja, né hvaðan ætti að sækja pen­ing­ana.

Flokk­ur­inn vill að allar fisk­veiði­heim­ildir verði inn­kall­aðar. „Kvótann aftur heim og fullt verð fyrir aðgang að sjáv­ar­auð­lind­inni!“ segir í stefnu­skránni. Ekki kemur fram hvert það fulla verð ætti að vera. Fisk­veiði­auð­lindin sé sam­eign þjóð­ar­innar, lög­festa eigi slíkt ákvæði í stjórn­ar­skrá, og þjóðin eigi að njóta auð­lind­ar­innar.

Aðgerðir í loftslagsmálum megi ekki bitna á almenningi

Í umhverf­is­málum vill Flokkur fólks­ins að Ísland axli ábyrgð í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum, „án þess að aðgerðir í þágu umhverf­is­verndar bitni á almenn­ingi“. Sömu­leiðis hyggst flokk­ur­inn beita sér gegn grænum sköttum sem auki mis­skipt­ingu og fátækt. Þeir eigi að greiða mest sem mengi mest.

Ekkert kemur fram um hvaða grænu skattar það séu sem auki á mis­skipt­ingu og fátækt eða hvaða aðgerðir í þágu umhverf­is­verndar Flokkur fólks­ins telur að geti bitnað á almenn­ingi. Hvergi er neitt að finna um aðgerða­á­ætl­anir í lofts­lags­málum, um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, orku­skipti, kolefn­is­jöfnun eða nokkuð annað er snýr að lofts­lags­málum. Þó segir að flokk­ur­inn vilji nýta hreinar orku­auð­lindir lands­ins til að draga úr mengun.

Ekki skýrt hvernig á að fjármagna loforðin

Hvað varðar fjár­mögnun á kosn­inga­lof­orðum, sem fjallað er um í sér­kafla, er fátt ef nokkuð í hendi hjá flokknum. Vissu­lega er til­tekið að fullt verð verði inn­heimt fyrir aðgang að sjáv­ar­auð­lind­inni, eins og flokk­ur­inn hamrar á, en engin til­raun er gerð til að leggja mat á hvert það verð eigi að vera eða hvaða fjár­hæðum það muni skila.

Þá segir að færa eigi per­sónu­af­slátt frá hinum ríku til hinna efna­minni. Eins og fjallað er um hér að framan mun það hins vegar kosta rík­is­sjóð gríð­ar­legar fjár­hæðir ef per­sónu­af­sláttur verður hækk­aður svo skatt­leys­is­mörk nái 350 þús­und krónum. Þó stuðst sé við útreikn­inga sem Flokkur fólks­ins lét gera fyrir sig, en ekki við mat fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, þýðir það að rík­is­sjóður yrði hið minnsta af tugum millj­arða króna í tekjur, svo trauðla yrðu slíkar aðgerðir til að fjár­magna kosn­inga­lof­orð flokks­ins.

Þá vill flokk­ur­inn að iðgjöld í líf­eyr­is­sjóð verði skatt­lögð strax en ekki við útborgun úr sjóð­unum. Það muni „skila rík­is­sjóði tugum millj­arða króna árlega í auknar tekjur án þess að skerða líf­eyr­is­rétt­indi fólks­ins.“ Þetta er ekki alls kostar rétt því um væri að ræða til­færslu á fjár­munum en ekki auknar tekjur. Þar með myndu líf­eyr­is­sjóð­irnir einnig verða af fjár­munum sem þeir gætu ávaxtað til að byggja upp líf­eyr­is­rétt­indi, sem aftur yrði til þess að líf­eyr­is­rétt­indi kom­andi kyn­slóða gætu skerst.

„Hreinsa til í kerf­inu og draga úr hvers konar óþarfa útgjöldum rík­is­sjóðs“

Samkvæmt mann­fjölda­spá Hagstofu Íslands til næstu fjöru­tíu ára mun hlut­fall aldr­aðra þá aukast veru­lega næstu ára­tugum á sama tíma og draga mun úr fjölda fólks á vinnu­mark­aði. Útgjöld vegna mál­efna aldr­aðra munu því óhjá­kvæmi­lega aukast í fram­tíð­inni. Ef af breyt­ing­unni sem Flokkur fólks­ins boðar yrði myndu tekjur rík­is­sjóðs vissu­lega aukast nú en drag­ast saman í fram­tíð­inni þegar halda mætti því fram að enn meiri þörf væri á hærri tekjum vegna þess sem að framan er rakið.

Þá vill flokk­ur­inn inn­leiða banka­skatt­inn að nýju, eftir því sem kemur fram í stefnu­skrá flokks­ins. Óljóst er hvað átt er við hér þar eð banka­skattur er enn lagður á og skil­aði tæpum 11 millj­örðum króna í rík­is­sjóð á síð­asta ári.

Að síð­ustu segir, í umfjöllun um hvernig Flokkur fólks­ins ætlar að fjár­magna kosn­inga­lof­orðin, að flokk­ur­inn hygg­ist „hreinsa til í kerf­inu og draga úr hvers konar óþarfa útgjöldum rík­is­sjóðs“. Alls óljóst er til hvers er verið að vísa hér, hver þessi óþarfa útgjöld séu og hversu mikið væri hægt að spara með því að draga úr þeim.

Flokkur fólks­ins mæld­ist með 4,5 pró­senta fylgi í nýj­ustu mæl­ingu á fylgi flokka, sem MMR vann fyrir Morg­un­blaðið og birt var í morgun. Það myndi sam­kvæmt frétt blaðs­ins skila flokknum tveimur þing­mönnum, báðum kjör­dæma­kjörnum. Annar þeirra er Inga Sæland, for­maður flokks­ins, sem væri síð­asti kjör­dæma­kjörni þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis suður. Á hitt ber að líta að vegna stærðar úrtaks könn­un­ar­innar og vegna þess hversu margir flokkar næðu inn á þing, níu alls, er óvar­legt að treysta um of á slíkt nið­ur­brot.

Í þjóð­ar­púlsi Gallup sem birtur var 30. ágúst sögð­ust 4,9 pró­sent aðspurðra styðja flokk­inn. Í alþing­is­kosn­ing­unum 2017 fékk flokk­ur­inn 6,9 pró­sent atkvæða og fjóra þing­menn kjörna. Á kjör­tíma­bil­inu var tveimur þing­menn vísað úr flokknum og eru þing­menn hans því tveir nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregðast við ásökunum á hendur frambjóðanda Flokks fólksins
FréttirAlþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregð­ast við ásök­unum á hendur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vilja bregð­ast við tölvu­pósti þar sem fram­bjóð­andi flokks­ins er sak­aður um að hafa brotið ítrekað á konum í gegnum tíð­ina. Hún seg­ist ekki vita um hvað málið snýst og ætli því ekki að aðhaf­ast. Hún seg­ist þó hafa fengið ábend­ingu um sama mál nokkrum dögum fyrir kosn­ingar. Mis­mun­andi er eftir flokkum hvaða leiðir eru í boði til þess að koma á fram­færi ábend­ingu eða kvörtun um með­limi flokks­ins. Flokkur fólks­ins er til að mynda ekki með slíkar boð­leiðir.
Meðlimur í kjörstjórn kærir vegna „gruns um kosningasvik“ í Suðvesturkjördæmi
Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.
Þrír starfsmenn Hótels Borgarness tóku myndir í tómum talningasal
Fréttir

Þrír starfs­menn Hótels Borg­ar­ness tóku myndir í tómum taln­inga­sal

Starfs­menn Hótel Borg­ar­nes höfðu óheftan aðgang að óinn­sigl­uðum atkvæðum í auðum sal hót­els­ins meðan yfir­kjör­stjórn var ekki á staðnum eftir að fyrstu taln­ingu lauk. Lög­reglan getur ekki stað­fest hvort að starfs­menn­irnir hafi farið að svæð­inu sem kjör­gögnin voru geymd vegna þess að starfs­menn­irnir hverfa úr sjón­ar­sviði eft­ir­lits­mynda­véla. Þrír starfs­menn tóku myndir af salnum og þá atkvæðum.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár