Kynlífsdúkkur og vinnusamir smitberar

Hatur gegn fólki af asískum upp­runa hefur risið í Banda­ríkj­unum upp á síðkastið, en það á sér djúpar rætur.

Kynlífsdúkkur og vinnusamir smitberar
Frá Chinatown í New York Banda­ríkja­menn af asískum upp­runa ganga fram hjá aug­lýs­inga­skilti for­seta­fram­bjóð­and­ans fyrr­ver­andi, Andrews Yang, í Chinatown. Mynd: SPENCER PLATT / GETTY IMAGES NORTH AMERICA / Getty Images via AFP

Hat­urs­glæpum gegn fólki af asískum upp­runa hefur fjölgað gíf­ur­lega í Banda­ríkj­unum síð­ustu miss­eri og jafn­vel marg­fald­ast í sumum borgum. Margir vilja kenna Donald Trump og Covid-far­aldr­inum um ástandið en for­dómar gegn asísku fólki eiga sér langa sögu og djúpar rætur í banda­rísku sam­fé­lagi. Konur eru meira en tvö­falt lík­legri til að verða fyrir slíkum for­dómum.

Þann 29. sept­em­ber árið 1854 birti banda­ríska dag­blaðið New York Tribune rit­stjórn­arp­istil þar sem varað var við þeim mikla fjölda kín­verskra far­and­verka­manna sem sækt­ust eftir því að koma til lands­ins. 

Á þessum tíma var mik­ill hag­vöxtur í Banda­ríkj­unum og inn­flytj­endur frá öllum heims­hornum flykkt­ust þangað í auknum mæli. Grunn­ur­inn að efna­hags­veldi lands­ins var á sama tíma lagður með fjár­fest­ingum í innviðum á borð við járn­braut­ar­teina. Án slíkra sam­göngu­leiða var ótt­ast að ójöfn­uður og sundr­ung myndi ógna sam­stöðu ríkj­anna – eins og átti raunar eftir að koma á dag­inn nokkrum árum síðar þegar borg­ara­stríð skall á. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár