Ungliðar mótmæla samningi við Jón Steinar: „Áslaug Arna, ertu að grínast?“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur samið við Jón Steinar Gunn­laug­as­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ara, um aðstoð við umbætur á rétt­ar­kerf­inu. Ung­liða­hreyf­ingar Sam­fylk­ingar og Við­reisnar segja hann ítrekað hafa grafið undan trú­verð­ug­leika brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis.

Ungliðar mótmæla samningi við Jón Steinar: „Áslaug Arna, ertu að grínast?“
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Jón Steinar Gunn­laugs­son Ung­liða­hreyf­ingar gagn­rýna að hæsta­rétt­ar­dóm­ar­inn fyrr­ver­andi sé feng­inn í verk­efnið.

Ung­liða­hreyf­ingar Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar gagn­rýna á sam­fé­lags­miðlum að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hafi samið við Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ara, um aðstoð við vinnu við úrbætur í rétt­ar­kerf­inu.

Frétta­blaðið greindi frá því í morgun að Áslaug Arna hefði samið við Jón Steinar um aðstoð við vinnu ráðu­neyt­is­ins að stytt­ingu máls­með­ferð­ar­tíma í refsi­vörslu­kerf­inu.

Í færslu á Twitter vísa Ungir jafn­að­ar­menn í fjöl­miðlaum­fjöllun um Jón Steinar sem hefur verið umdeildur í gegnum tíð­ina. Var hann árið 2001 dæmdur í hér­aðs­dómi fyrir að hafa brotið gegn frið­helgi dóttur skjól­stæð­ings síns, sem sýkn­aður var af kyn­ferð­is­broti gegn henni í Hæsta­rétti.

Þá sendi hann bréf fyrir hönd Roberts Downey, sem dæmdur var fyrir kyn­ferð­is­brot, til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og þrýsti á að hann fengi upp­reist æru. Hann hélt því einnig fram í grein í Morg­un­blað­inu að menn hefðu ver­ið dæmd­ir fyr­ir kyn­ferð­is­brot og barn­aníð þrátt fyr­ir að vera sak­laus­ir. Slíkt hef­ur aldrei sann­ast á Ís­landi.

„Það er blaut tuska framan í þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á Íslandi“

„Áslaug Arna velur þennan mann – af öllum – til að vinna að úrbótum á með­ferð saka­mála í rétt­ar­kerf­inu,“ stendur í færslu Ungra jafn­að­ar­manna. Það er blaut tuska framan í þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á Íslandi.“

Spyrja ráðherra hvort hún sé að grínast

Þá vísa Ungir jafn­að­ar­menn í sér­á­lit sem Jón Steinar skrif­aði þegar Hæsti­réttur dæmdi karl­mann í þriggja mán­aða skil­orð­is­bundið fang­elsi fyrir alvar­lega árás á eig­in­konu sína. Vildi Jón Steinar að dóm­ur­inn yrði mild­aður vegna fjöl­miðlaum­fjöll­unar um málið. „Fallast má á með ákærða að opin­ber umfjöllun um brot hans, þar sem meðal ann­ars var birt mynd af honum undir nafni, hafi verið ein­hliða og ósann­gjörn og til þess fallin að valda honum þján­ingum og skaða," sagði Jón Steinar í sér­á­liti sínu.

„Áslaug Arna, ertu að grín­ast?“

Uppreisn, ung­liða­hreyf­ing Við­reisnar, gagn­rýnir Jón Steinar einnig í Twitter færslu. „Jón Steinar hefur ítrekað grafið undan trú­verð­ug­leika brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis, sagt þeim að fyr­ir­gefa ofbeld­is­mönnum sínum og barist fyrir því að dæmdur barn­a­níð­ingur fengi upp­reist æru. Áslaug Arna, ertu að grín­ast?

Degi eftir að níu konur kæra íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu vegna van­kanta á kerf­inu þegar kemur að kyn­bundu ofbeldi er þessi maður feng­inn til að fara yfir kerfið. Þetta vekur ekki upp traust um að úrbætur á kerf­inu verði gerðar með fórn­ar­lömb kyn­bundis ofbeldis í huga.“

Fær allt að 1,7 milljón króna fyrir vinnuna

Í samn­ingi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við lög­manns­stofu Jóns Steinars segi að verk­efnið sé enn í mótun og að um sé að ræða grein­ingu á máls­með­ferð­ar­tíma allt frá því rann­sókn lög­reglu hefst og að upp­hafi afplán­unar, auk við­bragða af ýmsu tagi sem miða að því að stytta þennan tíma.

Rétt­ar­fars­nefnd, sem er ráð­herra til ráð­gjafar í mála­flokknum, var ekki upp­lýst um þessa vinnu og hefur ráðu­neytið ekki óskað eftir aðkomu hennar. Miðað er við að Jón Steinar vinni verkið í febr­úar, mars og apríl og verji til þess ekki meira en 100 klukku­stundum. Tíma­gjaldið er 17 þús­und krónur og því mögu­leiki á að þóknun Jóns Steinars verði allt að 1,7 milljón króna.

Kvenréttindafélag Íslands og Stígamót álykta

Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands og Stígamót sendu frá sér ályktun síð­degis þar sem ákvörðun dóms­mála­ráð­herra er gagn­rýnd. Birtist hún hér í heild sinni.

„Í gær buðu 13 kvenna- og jafn­rétt­is­sam­tök til fundar þar sem vakin var athygli á kerf­is­bundnu mis­rétti gegn konum í rétt­ar­kerf­inu og lagðar fram til­lögur til úrbóta. Eitt af því sem sam­tökin vöktu sér­staka athygli á var að máls­með­ferð­ar­tími í kyn­ferð­is­brota- og heim­il­is­of­beld­is­málum í rétt­ar­kerf­inu sé allt of langur, sem hefur slæm áhrif bæði á gæði rann­sókn­anna og líðan brota­þola í ferl­inu. 

Ljóst er að grípa þarf til viða­mik­illa aðgerða og umbóta til að tryggja rétt­indi þolenda kyn­ferð­is­brota og ofbeldis í nánum sam­böndum í rétt­ar­kerf­inu. Það hefði því átt að vera sér­stakt fagn­að­ar­efni að strax dag­inn eftir að femíníska hreyf­ingin vekur athygli á órétt­læti rétt­ar­kerf­is­ins ber­ast fregnir af því að dóms­mála­ráð­herra sé að vinna í því að stytta máls­með­ferð­ar­tím­ann. Við teljum þó að dóms­mála­ráð­herra Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir sendi konum kaldar kveðjur með því að hafa falið Jóni Steinari Gunn­laugs­syni það verk­efni að vinna að nauð­syn­legum umbótum í rétt­ar­kerf­inu. 

Jón Steinar hefur haldið því fram í grein­ar­skrifum að íslenskir dóm­stólar hafi í stórum stíl látið undan kröfum um að slakað verði á sönn­un­ar­færslu í kyn­ferð­is­brota- og barn­a­níðs­málum, að sak­lausir menn hafi verið rang­lega dæmdir og að máls­með­ferð dóm­stóla geri fólki kleift að „ná sér niðri á öðrum með því að bera fram rangar sak­ar­giftir á hendur þeim“. Jón Steinar hefur einnig full­yrt að þolendum kyn­ferð­is­brota „myndi líða miklu betur ef þeim tæk­ist að þróa með sér fyr­ir­gefn­ingu“. 

Traust þolenda kyn­bund­ins ofbeldis til rétt­ar­kerf­is­ins er nú þegar laskað vegna þess hvernig mál þeirra hafa verið með­höndluð. Að fela Jóni Steinari Gunn­laugs­syni það starf að vinna að nauð­syn­legum umbótum er alls ekki til þess fallið að auka traust þeirra á kerf­inu. 

Við þurfum betra rétt­ar­kerfi, en við skipu­lagn­ingu umbóta er nauð­syn­legt að greina núver­andi brotala­mir út frá sem flestum sjón­ar­hornum. Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands og Stígamót leggja áherslu á að mik­il­vægt sé að þessi vinna sé unnin af fólki sem hefur hags­muni þolenda ofbeldis að leið­ar­ljósi.  

Bætum rétt­ar­kerfið svo að rétt­lætið ráði för.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár