Sérstakur frístundastyrkur fyrir efnalítil börn skilar sér ekki til þeirra

Aðeins hafa borist umsóknir fyrir níu pró­sent þeirra barna sem eiga rétt á sér­stökum frí­stunda­styrk sökum fátæktar for­elda þeirra. For­eldrar þurfa að greiða æfinga­gjöld og sækja um end­ur­greiðslu. Talsmenn fólks í fátækt segja fátækt fólk ekki hafa tök á því að reiða fram gjöldin og bíða end­ur­greiðslu.

Sérstakur frístundastyrkur fyrir efnalítil börn skilar sér ekki til þeirra
Aðeins 430 umsóknir Tæplega 4.800 börn í Reykja­vík eiga rétt á sér­stökum frí­stunda­styrk en minna en tíunda hvert þeirra nýtir styrk­inn. Mynd: Freyr Rögnvaldsson

Aðeins 430 umsóknir hafa borist Reykja­vík­ur­borg vegna sér­stakra styrkja til íþrótta- og tóm­stunda­starfs barna frá tekju­lágum heim­ilum. Tæplega 4.800 börn eiga hins vegar rétt á slíkum styrk. Vel­ferð­ar­svið borg­ar­innar telur að ein af skýr­ingum þess hversu fáir hafi sótt um styrk­inn sé sú að lítil þátt­taka hafi verið í íþróttum og tóm­stundum barna und­an­farna mán­uði vegna Covid-19. Formaður íþrótta­fé­lags­ins Aspar telur hins vegar að léleg kynn­ing, mikið flækju­stig og sú stað­reynd að fólk þurfi að greiða æfinga­gjöldin úr eigin vasa og bíða síðan eftir end­ur­greiðslu, hafi mest um þetta að segja. Þá gagn­rýnir félags­kona í Pepp, gras­rót­ar­sam­tökum fólks í fátækt, að styrk­inn sé ekki hægt að nýta til að greiða dvöl á frí­stunda­heim­ili.

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttir lof­aði í apríl á síð­asta ári 600 millj­ónum króna í sér­stakan frí­stunda­styrk til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár