Gagnrýna að endurvinnsla plasts sé ekki rædd í stjórn Sorpu

Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins vilja vita hversu lengi stjórn Sorpu var kunn­ugt um að plast sem sent var erlendis til end­ur­vinnslu hafi verið brennt.

Gagnrýna að endurvinnsla plasts sé ekki rædd í stjórn Sorpu
Plast Tölur um end­ur­vinnslu á plasti íslenskra neyt­enda eru sagðar ekki eiga sér stoð í raun­veru­leik­anum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins gagn­rýna að stjórn Sorpu hafi ekki fjallað um mis­bresti við end­ur­vinnslu plasts og krefj­ast upp­lýs­inga um hvort Sorpa hygg­ist leið­rétta töl­fræði um end­ur­vinnslu Reykja­vík­ur­borgar í ljósi þeirra upp­lýs­inga.

Í umfjöllun í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar kom fram að end­ur­vinnsla á plasti sem íslenskir neyt­endur nota sé langtum minni en opin­berar tölur gefa til kynna og að íslensk fyr­ir­tæki fái oft greitt fyrir að end­ur­vinna plast sem ratar aldrei í end­ur­vinnslu. Fram kom að Sorpa hafi ekki sett end­ur­vinnslu plasts í for­gang og að stór hluti plast­s­ins endi hjá umdeildu sænsku fyr­ir­tæki sem brenni það í sem­ents­verk­smiðju.

Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­ráði, þau Eyþór Arnalds, Hildur Björns­dóttir og Marta Guð­jóns­dóttir vöktu athygli á mál­inu í umræðum um fund­ar­gerð Sorpu á fundi ráðs­ins í gær. Sögðu þau athygli vekja að ekki hefði verið rætt um málið á stjórn­ar­fundi Sorpu, þegar að fullt til­efni hafi verið að ræða um end­ur­vinnslu plasts og brotala­mir í því ferli.

Full­trúar meiri­hluta Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar, Pírata og Vinstri grænna bentu á að fund­ar­gerð Sorpu sem rætt hafi verið um væri frá 9. októ­ber, áður en umfjöllun Stund­ar­innar var birt 23. októ­ber. „Nú er stjórn SORPU fjöl­hæf og fá mál­efni henni óvið­kom­andi en ekki býr hún svo vel að eiga tíma­vél til að ferð­ast í fram­tíð­ina til að geta sett efn­isum­fjall­anir ein­staka fjöl­miðla á dag­skrá fundar áður en þær birt­ast í þessum sömu fjöl­miðlum.“

„Almenn­ingur greiðir gjald vegna plasts sem á að nota í end­ur­vinnslu“

Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins bentu hins vegar á að í umfjöllun Stund­ar­innar hafi komið fram að Sorpa hafi verið upp­lýst um yfir­vof­andi umfjöllun og svarað fyr­ir­spurnum vegna máls­ins. „Almenn­ingur greiðir gjald vegna plasts sem á að nota í end­ur­vinnslu,“ segir í bókun Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Mis­brestur hefur verið á því og hefur komið í ljós að SORPA hefur sent efni til ann­arra landa þar sem því hefur verið fargað í stað þess að vera end­ur­unnið.“

Mikinn minnihluta plasts hægt að endurvinna

Full­trúar meiri­hlut­ans sögðu þá að hægt væri að gera mikið betur í end­ur­vinnslu plasts og að Sorpa mundi upp­lýsa betur um ferlið og fyr­ir­hug­aðar aðgerðir. „Stjórn SORPU er vel kunn­ugt um útflutn­ing plasts til orku­end­ur­vinnslu. Aðeins 30% af því plasti sem kemur til end­ur­vinnslu­stöðv­anna og 50% af því sem kemur úr plast­söfnun við heim­ilin er hægt að end­ur­vinna. Annað er sent erlendis til orku­vinnslu. Þetta plast er hins vegar bara brot af því plasti sem er í umferð því t.d. 2019 komu ca. 15.000 tonn af plasti í urðun frá rekstr­ar­að­ilum og ljóst að hægt er að gera mikið betur í þeim efnum. Það er sjálf­sagt að upp­lýsa fólk og borg­ar­full­trúa um feril plasts og þær aðgerðir sem fyr­ir­hug­aðar eru á Íslandi og hjá sveit­ar­fé­lögum til að end­ur­vinna og end­ur­nýta meira og inn­leiða hringrás­ar­hag­kerfið og er SORPA bs. að und­ir­búa að slíkt verði gert.

„Þá er óskað eftir upp­lýs­ingum um hversu lengi stjórn SORPU hefur haft vit­neskju um að plastið hafi ekki verið end­ur­unnið“

Lögðu borg­ar­ráðs­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins einnig fram fyr­ir­spurn um málið. „Hvert er heild­ar­magn plasts sem sent hefur verið frá SORPU til end­ur­vinnslu erlendis frá árinu 2014-2020? Þá er óskað eftir upp­lýs­ingum um hversu lengi stjórn SORPU hefur haft vit­neskju um að plastið hafi ekki verið end­ur­unnið. Hvað hyggst stjórn SORPU bregð­ast við mál­inu og eru uppi áform um að leið­rétta tölur yfir end­ur­vinnslu og end­ur­nýt­ingu hjá Reykja­vík­ur­borg í ljósi þess­ara upp­lýs­inga?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár