Lögreglan í Namibíu bjartsýn á að rannsókn Samherjamálsins klárist fyrir miðjan desember

Paulus Noa, yfir­maður stofn­un­ar­innar í Namibíu sem rann­sakar Sam­herj­a­málið, segir lík­legt að rann­sókn­inni verði lokið um miðjan des­em­ber. Sak­born­ing­arnir í Sam­herj­a­mál­inu verða þá búnir að sitja í gæslu­varð­haldi í eitt ár.

Lögreglan í Namibíu bjartsýn á að rannsókn Samherjamálsins klárist fyrir miðjan desember
Ná lík­lega að klára rann­sókn­ina Yfir­maður ACC segir að rann­sóknin á Sam­herj­a­mál­inu klárist lík­lega fyrir miðjan des­em­ber. Bernhard Esau og tengda­sonur hans, Tamson Hatukulipi, sjást hér í dóms­sal.

Spill­ing­ar­lög­reglan í Namibíu, Anti-Corruption Commision (ACC), er bjart­sýn á að ná að ljúka rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu fyrir miðjan des­em­ber næst­kom­andi. Frá þessu var greint í namibískum fjöl­miðlum i vik­unni. 

Dómari við dóm­stól í höf­uð­borg­inni Windhoek, Vanessa Stanley, gaf það í skyn í sept­em­ber þegar hún úrskurð­aði að sak­born­ing­arnar sjö í mál­inu skyldu verða áfram í gæslu­varð­haldi að ACC fengi ekki lengri tíma en fram í miðjan des­em­ber til að ljúka rann­sókn máls­ins. Í kjöl­farið, og eftir atvikum, mun það verða sent til ákæru­valds­ins ef lík­legt má telja að þeir hljóti dóm fyrir lög­brot.

Sjömenn­ing­arnir eru sak­aðir um að hafa þegið mútu­greiðslur frá Samherja í skiptum fyrir að veita íslensku útgerð­inni aðgang að hesta­makríl­skvóta í land­inu auk þess sem þeir sak­aðir um fjár­svik, sam­særi og pen­inga­þvætti.  Þeir munu hafa setið í gæslu­varð­haldi í eittt ár um miðjan des­em­ber. Greint var frá mál­inu í Stund­inni, Kveika og Al Jazeera, í sam­vinnu við Wikileaks, í nóv­em­ber í fyrra. 

„En við þurfum að gera hvað við getum til að tryggja að við fylgjum fyrirmælum réttarins“

Á Íslandi tíðkast ekki að sak­born­ingar sitji í gæslu­varð­haldi svo lengi á meðan á rann­sókn á málum þar sem þeir liggja undir grun um lög­brot eru til rann­sóknar. Miðað við orð dóm­ar­ans í sept­em­ber þá er ólík­legt að dóm­stól­inn muni fram­lengja gæslu­varð­haldið að þessum tíma liðnum. 

Noa: Flókið mál sem tengist mörgum löndum

Teygir sig til margra landaPaulus Noa segir rann­sókn­ina flókna og að hún teygi sig til margra landa.

Æðsti yfir­maður ACC í Namibíu, Paulus Noa, segir í við­tali við namibíska blaðið The Namibian Sun að stofn­unin vinni nú hörðum höndum að því að vera búin að ná utan um málið svo hægt verði að senda það til rík­is­sak­sókn­ar­ans í Namibíu fyrir miðjan des­em­ber. „Við vinnum að því að tryggja að við höfum sent nauð­syn­legar upp­lýs­ingar til rík­is­sak­sókn­ar­ans Mörtu Imalwa svo hún geti tekið ákvörðun. […] Við verðum að muna það að um er ræða mál sem teng­ist öðrum löndum. Við erum að tala um mál sem felur í sér í rétt­ar­fræði­legar rann­sóknir, margs konar eignir og svo fram­vegis. En við þurfum að gera hvað við getum til að tryggja að við fylgjum fyr­ir­mælum rétt­ar­ins,“ segir hann. 

Noa útskýrði líka í við­tal­inu að sam­skiptin við önnur lönd sem tengj­ast rann­sókn­inni á Sam­herj­a­mál­inu hafi hægt á rann­sókn­inni þar sem gagna­beiðnir þurfi að vera í ákveðnum lög­form­legum far­vegi sem fylgja lands­lögum við­kom­andi ríkis. 

Í frétt  namibíska mið­ils­ins segir að rann­sóknir á mál­inu standi nú yfir í Angóla, Kongó, Zimbabwe, Spáni, Íslandi, Kýpur, Dubaí, Svíþjóð og Noregi. Lítið hefur spurst til þess­ara rann­sókna hér á landi, nema þá auð­vitað íslensku rann­sókn­ar­innar á Samherja þar sem sex núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn eru með rétt­ar­stöðu sak­born­inga. 

Ríkislögmaðurinn segir handtökur standa til

Í frétt­inni kemur einnig fram, og er vitnað í orð rík­is­lög­manns­ins í Namibíu, Ed Marondedze, að til standi að hand­taka fólk í Angóla og á Íslandi í tengslum við rann­sókn­ina. 

Engar slíkar hand­tökur hafa hins vegar farið fram á Íslandi og hafa ekki komið fram neinar heim­ildir fyrir því að þær standi til og verður slíkt að telj­ast ólík­legt.

Sak­born­ing­arnir í Sam­herj­a­mál­inu hafa ekki verið hnepptir í gæslu­varð­hald og verður að telj­ast afar ólík­legt að svo verði úr þessu þar sem það mun vænt­an­lega ekki telj­ast vera mat ákæru­valds­ins að þessir aðilar muni reyna eða geti haft þannig áhrif á gang rann­sókn­ar­innar að gæslu­varð­halds sé þörf. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár