Samherji segist aldrei hafa greitt Swapo flokknum fjármuni

„Þessi frétt The Namibian er því röng,“ segir Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Samherja.

Samherji segist aldrei hafa greitt Swapo flokknum fjármuni
Björgólfur Jóhanns­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son Björgólfur segir frétt The Namibian ranga. Mynd: Vísir/Sigurjón

Samherji hefur aldrei greitt Swapo-flokknum neina fjár­muni, segir Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

The Namibian greindi frá því í dag að blaðið hefði heim­ildir fyrir því að Swapo flokk­ur­inn, sem hefur verið ráð­andi í stjórn­málum Namibíu um ára­tuga skeið, hafi fengið greiðslur frá útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja. „Millj­ónir voru greiddar inn á reikn­ings sem Swapo stjórnar,“ að því er fram kemur í blað­inu. Munu þær hafa átt sér stað árið 2017, skömmu fyrir lands­þing flokks­ins, og farið fram í gegnum lög­manns­stofu.

„Samherji hefur aldrei greitt Swapo-flokknum neina fjár­muni, hvorki beint né í gegnum milli­lið,“ segir Björgólfur í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. „Þessi frétt The Namibian er því röng. Við væntum þess að rang­færsl­urnar verði ekki end­ur­fluttar.“

Eins og Stundin, Kveikur, Al Jazeera og Wikileaks greindu frá í fyrra sýna gögn hvernig Sam­herji greiddi skipu­lega hund­ruð millj­óna króna í mút­ur til stjórn­mála­manna og tengdra að­ila í Namib­íu, til að fá hesta­makríl­kvóta sem lagði grunn að stór­um hluta af hagn­aði fé­lags­ins und­an­far­in ár. Hagn­að­ur­inn og mútu­greiðsl­urn­ar runnu í gegn­um net skatta­skjóla.

Björgólfur tók við af Þor­steini Má Bald­vins­syni, sem steig til hliðar sem for­stjóri eftir að upp­lýst var um málið í nóv­em­ber í fyrra. Þor­steinn Már snéri aftur í mars og hafa þeir starfað saman síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár