Stuðaðir netviðburðir, sóttkvíði og klassískar myndir á stóra tjaldinu

Tón­leik­ar, sýn­ing­ar og við­burð­ir 22. maí. til 4. júní.

Stuðaðir netviðburðir, sóttkvíði og klassískar myndir á stóra tjaldinu

Þetta og ekki svo margt fleira er á döf­inni næstu vik­urnar. Athugið að tíma­setn­ingar gætu breyst með stuttum fyr­ir­vara. Aðgangur er ókeypis að mörgum við­burð­unum, en hægt er að styðja lista­menn með því að kaupa verk þeirra eða plötur á net­inu.

RAFLOST 2020

Hvar? Reykja­vík
Hvenær? Til 23. maí
Streymi: www.raskcollective.com

RAFLOST er fram­sækin hátíð fyrir nýja tón­list og miðla­list þar sem raf­magn og tækni eru notuð við sköpun eða flutn­ing. Í ár er hátíðin haldin í sam­vinnu við RASK lista­manna­hóp­inn, en á dag­skránni eru meðal ann­ars net­við­burðir með tón­skáld­unum Daniil Pilchen og Rebekuh Wilson á föstu­dag­inn; grillpartí og spjall með Birni Þór Jónssyni, Gunnari Gunn­ars­syni og Þórhalli Magn­ús­syni í Viðey á laug­ar­dag­inn; tón­leikar í Mengi með Þórhalli Magn­ús­syni, Julius Rot­hla­ender og Ægi Sindra Bjarna­syni, og Gulla Björns­syni á föstu­dag­inn og með Okuma á laug­ar­dag­inn; gjörn­ingur með Geigen á laug­ar­dag­inn. Einnig verða ýmsar vef­sýn­ingar á lista­verkum. Á völdum stöðum verður hægt að hitt­ast í eigin per­sónu og hæfi­legri fjar­lægð til þess að njóta við­burð­anna saman.

Flæði: Sóttkvíði

Hvar? Kola­portið
Hvenær? 23. & 24. maí
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Á þess­ari sýn­ingu koma fram verk fjög­urra lista­manna sem tóku öll til list­sköp­unar þegar helstu óvissu­tímar Covid-19 gengu yfir og leit­uðu inn á við til að skoða áhrifin sem þessir for­dæma­lausu tímar hafa haft á einka­lífið og sam­fé­lagið. Lista­menn­irnir eru Kata Jóhann­ess, Kaaja Sigvalda, Regn Sól og Una Lilja.

STAF/ÐSETNING

Hvar? Midpunkt
Hvenær? Til 31. maí
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Lista­þonið STAF/ÐSETNING er fyrsta nýja sýn­ingin sem opnar í þessu menn­ing­ar­rými eftir Covid-lokun. Að sýn­ing­unni standa lista­menn­irnir Harpa Dögg Kjart­ans­dóttir og Brynjar Helgason. Þau eru ólíkir lista­menn og verk þeirra mjög frá­brugðin, en eiga það sam­eig­in­legt að vera þrí­víðir munir sem kall­ast á við rýmin sem þeir eru í.

Syngjum saman: Sigga Eyrún & Kalli Olgeirs

Hvar? Hann­es­ar­holt
Hvenær? 24. maí kl. 15.00
Streymi: FB-síða Hann­es­ar­holts

Á Syngjum saman tón­leika­röð­inni koma fram vel valdir söngv­arar og fara í gegnum söng­arf þjóð­ar­innar. Laga­textar birt­ast á tjaldi og gestir verða að þátt­tak­endum. Sigga Eyrún og Kalli Olgeirs taka bolt­ann þetta skiptið og stjórna fjölda­söngnum. Þau eru nán­ast á heima­velli í Hljóð­bergi, enda hafa þau margoft komið fram í Hann­es­ar­holti á ýmsum tón­list­ar­upp­á­komum. 

Tómamengi: Madonna + Child

Hvar? Mengi
Hvenær? 27. maí kl. 20.00
Streymi: Youtube-síða Mengis

Mengi hefur brugð­ist við sam­komu­bann­inu með því að færa tón­leika­hald yfir á Youtube-rás sína. Dul­ar­fulla tvíeykið Madonna + Child spila drunga­lega og til­rauna­kennda tón­list undir dul­ar­fullum og myrkum pía­nó­tónum fyrir net­verja. Þær kalla sig litlar djöfla­systur, sem eru báðar Madonna, báðar Child.

Sinfóníuhljómsveit Íslands og vinir

Hvar? Harpa
Hvenær? 28. maí & 4. júní kl. 20.00
Streymi: www.ruv.is

Sinfó hefur haldið fjöld­ann allan af tón­leikum með vel völdum vinum sem hefur verið streymt á RÚV meðan á sam­komu­bann­inu stendur. Hinn 28. maí spilar sveitin með popp­kóngi Íslands, Páli Óskari, en þetta er þriðja skiptið sem hann kemur fram með þeim. 4. júní stíga svo þeir Víkingur Heiðar Ólafsson og Daníel Bjarna­son á svið með hljóm­sveit­inni.

Múlinn Jazzklúbbur & Sigmar Þór Matthíasson

Hvar? Harpa
Hvenær? 29. maí kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Múlinn jazzklúbbur hefur haldið uppi virkri dag­skrá í maí, en þetta eru fjórðu slíkir tón­leikar sem hann flytur í Flóanum, sem er stórt og opið rými Hörpu, sem býður upp á nægt rými til að virða tveggja metra regl­una. Frum­samið efni eftir Sigmar Þór Matth­í­as­son sem ber vinnu­heitið METAPHOR verður spilað.

Efni:viður

Hvar? Hafn­ar­borg
Hvenær? 30. maí til 23. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Hug­myndin að baki sýn­ing­unni er að tefla saman hönn­uðum og lista­fólki með mis­mun­andi bak­grunn og ólíkar áherslur í mynd­máli, sem eiga það þó sam­merkt að vinna með og kljást við við sem efni­við verka sinna, í einni eða annarri mynd, þegar þau fram­kalla hug­myndir sínar. Þessi sýn­ing er hluti af Hönn­un­ar­Mars 2020.

Klassískar kvikmyndir í bíó

Hvar? Reykja­vík
Hvenær? Frá 22. maí og 4. júní
Aðgangs­eyrir: Fer eftir mynd

Í ljósi Covid-19 far­ald­urs­ins hafa fáar nýjar myndir verið gefnar út. Mörg bíó­hús hafa snúið vörn í sókn og nýta þetta tæki­færi til að end­ur­sýna gamlar perlur úr safni sínu. Á meðan að Sambíóin Álfa­bakka hefja sýn­ingar á The Shawshank Redemption og The Shining 22. maí, byrjar Smárabíó að sýna á ný Stellu í orlofi 4. júní.

Afmælissýning Íslenskrar grafíkur

Hvar? Norræna húsið
Hvenær? Til 9. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Félagið Íslensk grafík fagnar 50 ára afmæli og heldur því sýn­ingu 46 félags­manna. Verk félags­manna eru unnin með ýmsum aðferðum graf­ík­list­ar­innar. Sýn­ing­unni er ætlað að fagna starf­semi Íslenskrar graf­íkur og þeirri breidd í aðferðum og tækni sem félags­menn hafa til­einkað sér á löngum og far­sælum starfs­tíma félags­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár