Kórónaveiran á Spáni: Flúði elliheimilið af ótta við að deyja einn

Tala lát­inna vegna kór­óna­veirunnar á Spáni er orðin hærri en í Kína. Á föstu­dag­inn höfðu 1.000 lát­ist á Spáni en nú hafa tæp­lega 3.500 beðið bana. Kór­óna­veiran hefur herjað á mörg elli­heim­ili í land­inu, meðal ann­ars á eitt í Madríd þar sem 89 ára heim­il­is­maður ákvað að taka til sinna ráða áður en röðin kæmi að honum.

Kórónaveiran á Spáni: Flúði elliheimilið af ótta við að deyja einn
Heim­sótti Puerta del Sol Eitt af því sem Raul García gerði á elli­heim­il­inu var að heim­sækja eitt helsta kenni­leiti Madrídar, La Puerta del Sol, í gegnum vef­mynda­vél. Torgið er nú nær alveg autt degi frá degi út af stífs útgöngu­banns sem gildir í Madríd vegna kór­óna­veirunnar.

89 ára gam­all spænskur maður, Rafaél García sem aldrei er kall­aður annað en don Rafael, flúði frá elli­heim­il­inu sem hann bjó á í Madríd af því hann var hræddur við að deyja þar einn og yfir­gef­inn, beint eða óbeint af völdum kór­óna­veirunnar. Saga manns­ins er sögð í spænska blað­inu El País.

Kór­óna­veiran herjar á Spán af slíkri hörku að fjöldi lát­inna er nú orðinn hærri en í Kína. Dán­ar­tíðnin hefur meira en þre­fald­ast frá því á föstu­dag­inn þegar 1.000 manns höfðu dáið og er nú kom­inn upp í tæp­lega 3.500. Líkt og ann­ars staðar í heim­inum þá er það fyrst og fremst eldra fólk, ein­stak­lingar sem komnir eru yfir átt­rætt, sem eru í sér­stakri hættu út af kór­óna­veirunni, sem og ein­stak­lingar sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.  Kór­óna­veiran hefur nú borist inn á 100 af 425 elli­heim­ili í Madríd og valdið dauða að minnsta kosti 100 heim­il­is­manna þeirra. 

Í dag var sagt frá því að Kór­an­veiran hefði dregið tvo lækna til dauða, hina 59 ára gömlu Isabel Munoz í Salamanca, og hinn 63 ára gamla Manuel Barragán frá borg­inni Córdoba. Um er að ræða tvo fyrstu dauðs­föllin í spænsku lækna­stétt­inni af völdum Covid. 

Menn eins og Raul García, sem búið hafði á elli­heim­il­inu í Madríd í sex mán­uði eða allt frá því að eig­in­kona hans lést, eru því í sér­stökum áhættu­hópi ef þeir fá veiruna enda er með­al­aldur þeirra sem falla frá í flestum löndum um og yfir 80 ára, meðal ann­ars á Ítalíu og í Svíþjóð. 

Að minnsta kost 100 látnirAð minnsta kosti 100 heim­ils­menn á elli­heim­ilum í Madríd á Spáni eru látnir vegna kór­óna­veirunnar. Raul García, sem sést hér á skjaskoti frá El País, vildi ekki verða einn af þeim. og flutti því í burtu,

Samtalið sem breytti öllu

Þegar Raul García komst að því í sam­tali við starfs­mann elli­heim­il­is­ins að sex af öðrum heim­il­is­mönnum hefðu lát­ist af völdum kór­óna­veirunnar kom það honum í opna skjöldu. Þetta var fólk sem hann þekkti og hann vissi ekki að væri dáið þegar starfs­maður elli­heim­il­is­ins færði honum mat, líkt og lýst er í El País: 

„Don Rafael tók eftir því að starfs­mað­ur­inn, sem hann þekkti ágæt­lega, var rauður um augun, líkt og hann hefði verið að gráta.

- Ertu búinn að sjá ein­hvern deyja? spurði Raul García

- Sex, don Rafael.

- Hvað ertu að segja maður …

- Hor­tensia, Conchita, Leopoldo ...

 Don Rafael þekkti allt þetta fólk.“

Hræðileg þróunGrafið sínir þróun dauðs­falla í Madríd og hvernig borgin gæti tekið fram úr Lombardy-hér­aði á Ítalíu yfir fjölda dauðs­falla.

Starfsemi elliheimilisins í lamasessi

Í grein El País er því lýst hvernig Raul García átt­aði sig á þeirri stöðu sem hann var í á þessum tíma. Hann var sjálfur í sótt­kví í litlu íbúð­inni sinni á elli­heim­il­inu og ein­ungis örfáir starfs­menn máttu koma inn til hans, vegna ótta um að hann myndi smit­ast af veirunni eða þeir af honum. Starf­semi elli­heim­il­is­ins var í hálf­gerðum lama­sessi og eng­inn hafði komið inn til hans til að þrífa af ótta við smit.

Hann  tók því þá ákvörðun að hringja í dóttur sína og biðja hana um að sækja sig. „Ég þurfti að flytja þaðan eftir að ég komst að því óbeint og eftir trún­að­ar­sam­tal við starfs­mann að heilsa mín og jafn­vel líf mitt væri í hættu,“ segir Raul García við El País í sím­tali frá heim­ili dóttur hans þar sem hann býr í dag. 

„Ég vildi ekki upp­lifa síð­ustu augna­blik lífs míns, ef ég á kannski skammt eftir, í full­kominni ein­semd“

Þetta gerð­ist á föstu­dag­inn, þann 20. mars, dag­inn sem tala lát­inna á Spáni fór upp í 1.000 ein­stak­linga. Raul García hafði á þessum tíma ekki mátt taka á móti gestum eða ætt­ingjum frá því 8. mars síð­ast­lið­inn þegar reglur á elli­heim­il­inu voru hertar til að vernda heim­il­is­fólkið frá því að smit­ast. Hann hafði hins vegar haldið sam­bandi við dóttur sína í gegnum síma og sam­fé­lags­miðla auk þess að halda sér upp­teknum við lestur, skák í tölv­unni sinni auk þess að heim­sækja upp­á­halds­torgið sitt í Madríd, La Puerta del Sol, í gegnum vef­mynda­vél. 

Hefði kannski dáið einn og ekki smitaður af Covid

Þegar García heyrði frétt­irnar um að sex af félögum hans og vinum hefðu lát­ist, tíð­indi sem sögðu þó aðeins hluta sög­unnar því 22 ein­stak­lingar hafa dáið úr kór­óna­veirunni á elli­heim­il­inu sam­kvæmt El País, ákvað hann að hann þyrfti að bregð­ast við. „Þrátt fyrir að ég sé að verða 90 ára, fóta­fú­inn orð­inn og með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, þá er höf­uðið á mér ennþá í full­komnu lagi. Ég vildi ekki upp­lifa síð­ustu augna­blik lífs míns, ef ég á kannski skammt eftir, í full­kominni ein­semd í þessum aðstæðum þar sem ríkti algjört hirðu- og afskipta­leysi og þar sem svo margir þjást.“

Raul García taldi því mögu­legt að hann myndi fekar fá Covid á elli­heim­il­inu og að hann myndi því deyja einn. Hann úti­lokar ekki heldur að hann hefði getað dáið á næst­unni án þess að fá kór­óna­vírus­inn og þá hefði hann einnig dáið ein­sam­all þar sem heim­sókn­ar­bann er á elli­heim­il­inu. 

Í frétt El País er sagt frá því að þegar hann yfir­gaf elli­heim­ilið hafi Raul García faðmað stúlk­una sem vann í mót­töku þess sem og kastað kveðju á fram­kvæmda­stjór­ann með orð­unum. „Guð veri með ykkur,“ áður en hann gekk út um aðal­inn­gang­inn á elli­heim­il­inu og fór heim til dóttur sinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Aðskilin vegna veirunnar

„Mig langar bara til að fá að vera með henni um páskana“
FréttirAðskilin vegna veirunnar

„Mig langar bara til að fá að vera með henni um pásk­ana“

„Við erum vön að vera saman og þekkjum ekk­ert annað.“ Þetta segir Ármann Ingimagn Hall­dórs­son. Eig­in­kona hans, Gróa Ingileif Krist­manns­dóttir dvelur á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Dyngju á Egils­stöðum. Gróa, sem er 62 ára, er með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn Beckers, hún er í önd­un­ar­vél vegna sjúk­dóms­ins og þarf mikla umönnun sem Ármann hefur sinnt að miklum hluta síðan hún veikt­ist. Vegna heim­sókna­banns hafa hjónin ekki hist í margar vikur.
Mikilvægt að halda í jákvæðnina
FréttirAðskilin vegna veirunnar

Mik­il­vægt að halda í jákvæðn­ina

Kjartan Jarlsson er dval­ar­maður á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Sólvangi. Algjört bann við heim­sóknum aðstand­enda á hjúkr­un­ar­heim­ili vegna COVID-19 far­ald­urs­ins veldur því að kona hans, dætur og barna­börn munu ekki geta heim­sótt hann næstu mán­uði, fari svo að bannið verði ekki end­ur­skoðað. Kjartan lætur þetta þó ekki á sig fá og heldur sem fast­ast í jákvæðn­ina.
Fær ekki að heimsækja lífsförunaut sinn til 60 ára
FréttirAðskilin vegna veirunnar

Fær ekki að heim­sækja lífs­föru­naut sinn til 60 ára

Birgir Guð­jóns­son læknir segir algjört heim­sókn­ar­bann við heim­sóknum aðstand­enda á hjúkr­un­ar­heim­ili vera allt of harka­legt, auk þess sem það sé með öllu raka­laust út frá lækn­is­fræði­legum for­sendum. Bannið veldur því að hann getur ekki hitt konu sína, lífs­föru­naut til 60 ára sem er með Alzheimer. Birgir segir bann sem þetta koma verst niður á Alzheimer-sjúk­lingum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár